Þroskaþjálfinn - 2002, Page 25
Starfsdagar
Þroskaþjálfinn
í;
alltaf tryggt að eiga frí þar sem starfinu fylgir ónæði heima,
mikið álag gerir það að verkum að erfitt er að sinna und-
irbúningsvinnu, erfitt getur verið að vinna eftir áætlunum
vegna starfsmannaskorts, tíð mannaskipti valda því að
mjög oft er verið að setja nýtt fólk inn í starfið og vegna
skorts á hæfu fólki hlaðast verkefni upp án þess að kröfur
minnki frá yfirmanni. Hvað léleg launakjör varðar var
bent á að þrátt fyrir að launin hafi batnað þá séu þau enn-
þá of lág með tilliti til álags og vinnuframlags. Fjármagns-
skortur í málaflokknum og sífelldur sparnaður hefur
hamlandi áhrif á þjónustuna, auk þess sem úrræðaleysi og
þungt kerfi kringum skjólstæðingana virkar oft seint og
illa.
Svör þroskaþjálfanemanna gáfu að mestu leyti sömu
niðurstöður og birtust í niðurstöðum þroskaþjálfanna en
tveir þættir skera sig þó úr. Annars vegar þau jákvæðu á-
hrif að starfa með öðrum þroskaþjálfum sem eru góðar
fyrirmyndir, fólk sem hefur náð langt í sínu starfi, sem
borin er virðing fyrir og hægt er að sækja leiðsögn til.
Hins vegar þau neikvæðu áhrif
sem birtast í gamaldags við-
horfum sumra þjónustustofn-
ana. Ferskir í námi sjá nem-
endur oft það sem þroskaþjálf-
ar, eldri í starfi, eru ef til vill
hættir að sjá eða vita af en eiga
í erfiðleikum með að breyta.
Samantekt
Þau atriði sem fram komu í
könnuninni segja okkur að
flest það sem þroskaþjálfar
telja að hafi áhrif á velgengni í
starfi er almenns eðlis og getur
átt við hvaða starf sem er. Því
er vert að spyrja hvort ein-
hverjir þættir eru sérstakir á-
hrifavaldar eingöngu hjá
þroskaþjálfum og ef svo er
hvaða þættir það eru? Þroska-
þjálfar hafa ákveðna sérstöðu,
þeir eru menntaðir til og þjón-
usta fyrst og fremst hóp fólks
sem hefur alla tíð verið og er
enn minnihlutahópur í ís-
lensku samfélagi. Hefur það á-
hrif á velgengni þroskaþjálfa í
starfi? Ef svo er hvaða áhrif
gætu það hugsanlega verið?
Með aukinni áherslu á rétt
þroskahefts fólks til að njóta
fullrar þátttöku í samfélaginu
eru um leið gerðar kröfur til þroskaþjálfa sem fagstéttar
að fylgja þeirri þróun eftir. Þroskaþjálfar hafa í gegnum
tíðina lagað sig að þeim breytingum sem orðið hafa á
högum fatlaðra og munu gera það áfram. En önnur hlið
er á því máli. Hún er sú að þroskaþjálfar þurfa í sumum
tilvikum að réttlæta veru sína á vettvangi. Þegar við á-
kveðum að starfa á tilteknum vinnustað erum við sjaldn-
ast undir það búin að þurfa að réttlæta veru okkar þar.
Það skapar aukið álag og því er mikilvægt að eiga sterkt
bakiand í stéttinni.
Það er verðugt verkefni fyrir þroskaþjálfa að skoða ofan
í kjölinn þá þætti sem hafa áhrif á velgengni í starfi. Rann-
sóknir á störfum þroskaþjálfa geta gefið okkur skýrari
mynd af þörfum stéttarinnar og styrkt stöðu hennar sem
fagstéttar enn frekar.
Hrönn Kristjánsdóttir
Höfundur er þroskaþjálfi og leggur stund á
rannsóknartengt MA nám við Háskóla Islands
25