Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 12
Á HVALVEIÐUM Halldór Friðrik réði sig sem vélstjóra á einn hvalbátanna í eigu Hvals h.f. í Hafnar- firði og starfaði þar óslitið út vertíðina 1975, síðustu vertíðirnar sem yfirvélstjóri á Hval 8. Halldór hefur raunar ekki enn sagt skilið við hvalveiðarnar því hann hefur öll úthöldin leyst af á öðrum hvorum bátnum 8. eða 9. eftir að hann hætti sem fastráðinn vélstjóri hjá Hval. Á hvalveiðum er alltaf eitthvað að gerast, misskemmtilegt að sjálfsögðu. Minnist þess að einhverju sinni þegar ég var yfir- vélstjóri á Hval 8 að þá var ég eitthvað að sýsla á grindinni fyrir ofan vélina og horfi niður og sé að vakthafandi vélstjóri situr í makindum sínum við hliðina á stjórntækj- um vélarinnar og þar sem ég er pínu stríð- inn ákvað ég að gera honum smá grikk, tek járntein sem lá þarna og banka laust í toppinn á vélinni í takt við snúninga henn- ar sem voru um 120 á mín. Nema hvað vélstjórinn sprettur upp og skimar út um allt í vélarúminu eftir því hvað valdi þess- um óvelkomnu smellum. Um leið og hann byrjar að skima hætti ég að banka í topp- stykkið. Þetta endurtók ég nokkrum sinn- um honum til raunar en mér til allnokkurr- ar skemmtunar. Í reynd var ég bara að kanna athygli míns undirmanns. Flóknara var það nú ekki að mínu mati. Eitt sinn þegar við vorum að leggja að bryggju við hvalstöðina í Hvalfirði, og bökkuðum flaug skrúfan af skrúfuöxlin- um. Róin sem heldur skrúfunni hafði losn- að með þeim afleiðingum að skrúfan fór í sjóinn og vélin líklega á góða 200 snúninga þegar álagið fór af henni, í stað þeirra 120 sem er hennar eðlilegi hjartsláttur. Stöðvarstjórinn, Jafet Egill Hjartarson, vél- fræðingur, kom móður og másandi niður á bryggju og spurði, allur eitt spurningar- merki: Hvað hefur eiginlega komið fyrir hjá ykkur strákar? Er komin saumavél í bátinn í stað aðalvélarinnar? Ha. Í framhaldinu var bátur- inn dreginn til Reykjavík- ur í slipp til að festa skrúfuna á aftur. Þetta vesen kostaði okkur að minnsta kosti tveggja sólarhringa töf frá veið- um en segja má að það var lán í óláni að skrúfan flaug af við bryggju en ekki úti á rúmsjó á miklu dýpi því þá hefði það ver- ið þrautin þyngri að fiska hana aftur upp. Um tíma þegar Halldór var á Hval 8. var Þórður Eyþórsson skipstjóri á skipinu. Það fór alltaf mjög vel á með okkur Þórði sem í dagsdaglegu tali var kallaður Tóti. Einhverju sinni, sem oftar, lentum við í smá fætingi sem lyktaði með því eftir hörð átök og brellur af ýmsum toga að við blóð- sprengdum nefin hvor á öðrum og gengum þar af leiðandi með eldrauð nef í tæp- an hálfan mánuð eins og aumustu fyllibyttur, eftir gott fyllirí. LÚALEGA FARIÐ MEÐ HANNES Eins og komið hefur fram starfaði Halldór við Slysavarnaskóla sjómanna, allt frá því að kennslan hófst um borð í gamla varð- skipinu Þór, bæði sem kennari og einnig sem vélstjóri um borð. Eftir að skipið var tekið undir kennsluna voru farnar margar ferðir út á land, þar sem eftirspurnin var hvað mest eins og í Vestmannaeyjum og á Akureyri en þar var nemendafjöldinn hvað mestur. Að kenna fræði tengd slysavörnum lýtur náttúrlega bara sömu lögmálum og önnur kennsla, það er að ná til nemenda og kveikja áhuga þeirra á því efni sem fram er fært en þar sem sjómenn hafa yfirleitt mik- inn áhuga á öllu því sem lýtur að öryggi þeirra gekk kennslan oftast bara nokkuð vel. Þegar rætt er um öryggismál sjómanna og slysavarnir finnst mér nafn Hannesar Haf- stein gleymast of oft en Hannes er að mínu mati sá sem lagði grunninn að því starfi sem fram fer í dag hvað varðar slysavarnir sjómanna, sem í dag eru í góðum höndum hjá arftökum hans, meðal annars núver- andi skólastjóra Slysavarnaskólans, Hilm- ari Snorrasyni. Sjálfur kynntist ég Hannesi persónulega bæði hjá Slysavarnafélaginu á sínum tíma og einnig sem stráklingur í Vogunum en skammt var á milli heimila okkar þar og ég nánast heimagangur hjá honum. Þetta er náttúrlega allt önnur saga en mér fannst alltaf frekar lúalegt hvernig hann var hrakinn frá félaginu á sínum tíma. Rétt er að geta þess hér að það var einmitt Hannes sem lagði ríka áherslu á að fyrsta námskeiðið yrði haldið í Vestmannaeyjum, vegna forystu þeirra í slysavörnum sjó- manna með kaupum á fyrsta björgunar- skipinu í eigu landsmanna. GÓÐAR STUNDIR MEÐ ÓÐNI Um borð í varðskipinu Óðni hef ég átt margar ánægjustundir á liðnum árum, en það var á árinu 2014 sem við Ingólfur Kristmundsson, skólabróðir minn úr Vél- skólanum, fórum að hittast þar og dytta að ýmsu um borð sem aflaga hafði farið á langri ævi skipsins. Smátt og smátt bættist í hópinn og í dag hittumst við þarna á hverjum mánudags- morgni allt upp í 9 vélfræðingar og vinn- um þar við hinar ýmsu endurbætur á vél- búnaði skipsins fram að hádegi. Þegar skipinu var lagt og það gert að hluta af sjóminjasafninu við Grandagarð var ekki reiknað með því að það mundi sigla aftur fyrir eigin vélarafli þar sem soðið var fyrir öll sjóinntök sem tilheyrðu aðalvélum og hjálparvélum skipsins, útaf stóðu bara þau sem tilheyrðu salernum skipsins. Í dag er staðan á skipinu sú að það er komið með haffærisskírteini og við búnir að sigla því bæði til Akraness og Grindavíkur að við- Halldór við stjórntækin í vélarúmi Hvals 8. Hvalbátarnir í höfn. Halldór við Roverinn.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.