Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 18
SKOTIÐ FYRIR BORÐ Á öllum bátum sínum stundaði Svavar þorsk- veiðar með línu og handfærum. Netaveið- ar á grásleppu stundaði hann einnig grimmt og til marks um það þá náði hann 57 tunnum af hrognum eitt árið einn síns liðs. Þessar veiðar stóðu yfir vor og sumarmánuðina með miklum vökum og streði. Slík vinna skilur óneitanlega eftir bilanir hér og þar í líkaman- um. Samhliða eigin útgerð var Svavar á vertíðar- bátum sem gerðir voru út frá suður- og vestur- landi svo sem frá Grindavík, Sandgerði, Tálknafirði og Suðureyri við Súganda- fjörð. Síldarsumrin urðu einnig ófá og sumar uppákomur þar minnisstæðari að aðrar. Sennilega gleymir Svavar þó seint þeim atburði þegar snurpuvírinn gerði tilraun til að klippa hann í sundur. Þannig var að málum staðið þegar nótinni var kastað að snurpuvírinn lá í gegnum lás sem festur var við stjórnborðs síðu snurpubátsins. Svavar hafði það hlutverk í köstuninni að húkka snurpulásum nótarinnar á snurpu- vírinn aftan við lásinn sem vírinn rann í gegnum. Eitt sinn þá verið var að kasta nótinni og hún á leið í sjóinn hætti skipstjórinn skyndilega við og skipaði spilmanninum að stoppa rennsli vírsins af spiltromlunni. Spilmaðurinn brást við hart, smellti bremsunum á og steinstoppaði rennslið á snurpuvírnum. Við þessi skjótu viðbrögð spilmannsins strekktist snöggt á vírnum og varð hann eins og þaninn fiðlustrengur. Skipti þá engum togum að lásinn sem vírinn lá í gegnum slitnaði frá bátnum og small snurpuvírinn undir bringspalir Svavars þar sem hann húkkaði lásunum á vírinn. Skipti þá engum togum að Svavar þaut í loft upp sem ör af boga og náði engu jarðsambandi fyrr en langt aftan við nóta- bátinn. Óljóst er hve hátt upp í himingeiminn hann flaug en benda má á að lóðrétt fór hann í loftið og lóðrétt kom hann niður aftan við bátinn. Reikna mætti út flughæð Svavars ef skothraði hans og framskrið bátsins væru þekktar stærðir. Eftir að í sjóinn kom náði Svavar taki á afturbandi nótabátsins og handstyrkti sig eftir því um borð í bátinn aftur. Óskaddaður að kalla slapp hann frá flugi þessu að undan- skildum eymslum og dökkum bláma sem yfir framan verðan búkinn breiddist þá frá leið. Að ekki fór verr má sennilega þakka því að nótabáturinn var í djúpri bakborðs veltu og Svavar því boginn yfir vírinn og mjög nálægt honum er hann slitnaði frá bátnum. Að leikslokum hefði ekki þurft að spyrja hefði vírinn verið fjær brjóst- kassa Svavars þegar óhappið reið yfir því þá hefði vírinn klippt hann í sundur. NÆR HÖFÐINU STYTTRI Á síldarbátnum Flosa ÍS mátti Svavar þakka fyrir að verða ekki höfðinu styttri. Við undirbúning dælingar úr nótinni var brjóst nótarinnar híft upp á síðu með tal- íu og var blökk hennar fest upp í góssi masturs. Endi kaðalsins var síðan festur á polla sem soðinn var á stjórnborðslunn- ingu skipsins. Svavar var á spilinu og rétt búinn að koma dælunni fyrir borð er suða á nefnd- um polla gaf sig með þeim afleiðingum að hann þeyttist þvert yfir skipið og út fyrir borðstokk bakborðs megin. Þessi óvænta flugferð pollans hefði ekki komið að verulegri sök hefði hann ekki haft við- komu í toppstykkinu á Svavari sem stein- rotaðist og lá óvígur á dekki eftir. Þarna skildu örfáir millimetrar á milli lífs og dauða því að hefði flug pollans verið að- eins lægra hefði Svavar kvatt þessa veröld liggjandi á dekkinu. Heilahristingur og nokkurra daga sjúkrahúsvist fylgdu síðan í kjölfarið. Í SJÁVARHÁSKA Á VON TH Á vetrarvertíðinni 1958 var Svavar háseti á Von TH-5 frá Grenivík sem strandaði 19 mars það sama ár. Ellefu manna áhöfn var á bátnum er óhapp þetta reið yfir Dagana fyrir strandið var veiðisvæði skipsins á Sandvíkunum norðvestan við Reykjanestána. Aflinn hafði verið fremur tregur, svona 6 til 10 tonn, og því var far- in stysta leið til lands og aflanum landað í Sandgerði en þaðan var honum ekið til Grindavíkur þar sem að honum var gert. Óhappadaginn var aflinn með besta móti, eða rúmlega 20 tonn, og því var ákveðið að sigla suður fyrir Reykjanesið og landa í Grindavík. Að netadrætti loknum var skipið statt grunnt á Víkunum. Komið var fram á kvöld og myrkur skollið yfir þegar stefn- an var sett suður fyrir Reykjanesið. Veður var gott en gild úthafsalda. Alda sem verður að ólgandi brimi þegar hún mætir fyrirstöðu lands. Ekki liðu nema örfá andartök frá því sett var á fulla ferð til lands þegar mikill hnykkur kom á skipið og það renndi upp á flúðir 40 til 60 metrum undan landi. Meirihluti skipshafnar var á þilfari aftan hádekks að bjástra við veiðarfæri þegar skipið renndi upp á flúðina. Í því brimi sem þarna var veltist skipið á bæði borð en dýpra á stjórnborða og lagði þá möstur í sjó þegar undan því fjaraði á útsoginu. Með ólíkindum má telja að enginn skyldi hrökkva fyrir borð þá skipið lagðist og dekkið undir fótum manna varð allt í einu lóðrétt. Skipstjórinn kom einu neyðarkalli út á ljósvakann áður en rafmagnið yfirgaf tal- stöðina. Ingólfur Reynald vélstjóri reyndi að kom- ast niður í vélarúmið til að gangsetja loft- kælda ljósavél en varð frá að hverfa. Það segir sig sjálft að í dansi við dauðann Sjötta bátinn keypti Svavar árið 1986 og fékk sá nafnið Hugrún ÞH-240. Bátur þessi er nú til sýnis á Sjóminjasafni Grenivíkur. 18 | Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.