Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Síða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Síða 20
Nú styttist í næstu ljósmyndakeppni sjómanna Vík- ingsins en í næsta blaði verða úrslit kynnt. Þegar eru farnar að berast myndir og því ekki til setunnar boðið annað en að draga fram myndir og senda okkur. Eins og undanfarin ár þá munu 15 myndir, sem dómnefnd velur, taka þátt í Norðurlandaljós- myndakeppni sjómanna sem fram fer í Danmörku í byrjun næsta árs. Hlynur Ágústsson hreppti annað sætið í síðustu Norðurlandaljósmyndakeppninni en íslenskir sjómenn hafa verið sigursælir í keppninni. Það þarf alls ekki að eiga flottustu græjurnar til að geta tekið þátt því jafnvel nýjustu farsímarnir geta tekið myndir í góðum gæðum því það er augað en ekki myndavélin sem skapar góða mynd. Allir sjó- menn á íslenskum skipum sem og íslenskir sjómenn á erlendum skipum hafa þátttökurétt í keppninni. Reglur keppninnar eru ekki flóknar en þær eru eft- irfarandi: Félag skipstjórnarmanna v/Sjómannablaðsins Víkings Ljósmyndakeppni 2023 Grensásvegi 13 105 Reykjavík • Hver þátttakandi má senda inn að hámarki 15 myndir. • Myndir eiga að vera í hæstu mögulegri upplausn. • Myndefnið á að tengjast umhverfi sjómannsins hvort heldur er um borð í skipum, frá landi hvort heldur er í vinnu eða frítíma. • Með hverri mynd á að fylgja heiti, hvar myndin var tekin auk upplýsinga um á hvaða skipi viðkomandi starfar. • Myndir eiga helst ekki vera eldri en tveggja ára. • Myndir með vatnsmerkjum, tímastimpli eða nafni á myndinni eru ekki gjald gengar. • Myndir sem sendar eru inn verða að vera í eigu þess sem tók myndina með því að ýta á afsmellarann og á höfundarrétt hennar. • Ljósmyndarinn tekur ábyrgð á að ef einstaklingar séu á myndinni að heimild sé fyrir að birta hana. • Með þátttöku samþykkir ljósmyndarinn að umsjónarmaður keppninnar fari með þínar upplýsingar í samræmi við upplýsingalögin í þeim eina tilgangi að upplýsa um þig í tengslum við íslensku og Norðurlandakeppnina. • Áskilinn er réttur til að birta myndirnar í blöðum þeirra aðila, sem að keppninni standa án greiðslu. • Skilafrestur er til 1. desember nk. LJÓSMYNDAKEPPNI 2023 Sjómanna Stafrænar myndir í keppnina skal senda á netfangið iceship@heimsnet.is en ef þær eru sendar inn á öðru formi skulu þær sendar til:

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.