Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 31
Helgi Laxdal
Fjórði þáttur
– 10 –
Freyja RE-38
Tíundi togarinn í þessum
hópi var Freyja RE-38,
skráður hér á landi 3. maí
1971, smíðaður hjá Cook-
hrane & Sons Ltd. Selby
Englandi 1960 fyrir J. Marr
& Sons Ltd. Fleetwood.
Fyrst skráður 20. júní
1960 og nefndur Lavinda
FD159. Í apríl 1964 keypti
Richard Irvin & Sons
Aberdeen skipið og nefndi
Ben Arthur A742.
Lengdur á árinu 1966 um
6,6 m., úr 36 m. í 42,6 m.
Við það jókst burðargetan
úr 285 Bt. í 307 Bt. Gunn-
ar I. Hafsteinsson, út-
gerðarmaður í Reykjavík,
kaupir skipið 23. apríl
1971 og nefnir Freyju RE-
38. Lengd 42,6 m., breidd
7,65 m., dýpt 3,38 m., 307 Gt. Knúinn
750 hö. mirlees diesilvél. Skipstjóri, Pétur
Þorbjörnsson og yfirvélstjóri, Kristinn
Gunnarsson.
Ársæll H/F í Hafnarfirði kaupir skipið 16.
júlí 1975 og nefnir Ársæl Sigurðsson ll
HF-12. Í desember 1980 missir skipið haf-
færisskírteinið og er tekið af íslenskri
skipaskrá. Í október 1984 er skipið selt
Albert Draper & Sons í Hull til niðurrifs.
– 11 –
Rán GK-42
Ellefti togarinn í þessum hópi var Rán
GK-42 skráður hér á landi 12. júlí 1971,
smíðaður hjá Welton & Gemmell Ltd,
Bewerley, Englandi á árinu 1961, fyrir Fish-
eries Ltd, Fleetwood, nefndur Boston
Wellvale FD209. Lengd 41,82 m., breidd
8,66 m., dýpt 4,45 m., stærð 419 Bt.
knúinn 1050 hö. dieselvél. Skipstjóri
Dave Venney. Nord Cape Fishing Co Ltd,
Grimsby keypti skipið 25. september
1966. Strandaði við Arnarnes í Ísafjarðar-
djúpi 12. desember 1966 í norðaustan
stórhríð á leið til Ísafjarðar með bilaða rat-
sjá og sjúkan mann sem komast þurfti
undir læknishendur.
Áhöfninni 17 manns var bjargað farsæl-
lega af Björgunarsveitinni Ársæli á Ísa-
firði.
Tryggingafélag skipsins mat það ónýtt.
Guðmundur Marselíusson á Ísafirði keypti
flakið á 150 ₤. Um þessar mundir starfaði
Ágúst Sigurðsson skipatæknifræðingur
mikið á Ísafirði við að teikna nýja dráttar-
braut fyrir Skipasmíðastöð Marsellíusar
Síðustu síðutogararnir
Freyja RE-38.
Rán GK-42.