Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Blaðsíða 32
Bernharðssonar á Ísafirði. Hann hafði fylgst náið með tilraunum Guðmundar, sonar Marsellíusar, við að bjarga flakinu sem var kveikjan að því að þau hjónin Guð- rún Lárusdóttir og Ágúst Sigurðs- son keyptu flakið af Guðmundi eft- ir að það hafði sokkið oftar en einu sinni í björgunarferlinu. Ágúst fær björgunarskip til að draga flakið til Hafnarfjarðar. Á leiðinni til Hafnarfjarðar var Ágúst einn um borð í flakinu af Boston Wellvale, eina tengingin við björg- unarskipið var dráttartaugin. Allt gekk þetta vel og þegar til Hafnar- fjarðar kom var flakið af Boston Wellvale dregið upp í fjöru við gamla Drafnarslippinn. Þar var þétt í götin á botninum, að hluta með smjörlíki. Samið við Landsmiðjuna um viðgerð á botni skipsins sem í framhaldinu var dregið til Reykja- víkur í slipp. Nokkur fyrirtæki komu að viðgerðinni sem tókst mjög vel. Stóra málið var samt hvort aðalvélin væri í lagi og gang- fær. Við nánari skoðun virtist hún bæði gangfær og í þokkalegu standi. Í framhaldinu stofnuðu hjónin, Guðrún Lárusdóttir og Ágúst Sig- urðsson, útgerðarfélagið Stálskip h/f um reksturinn. Skipið nefndu þau Rán GK-42 sem var skráð í ís- lenska skipaskrá í júlí 1971. Skip- stjóri var ráðinn Kristján Andrés- son og yfirvélstjóri, Halldór Guðjónsson. Þetta skip var upphaf- ið að Útgerðarfélaginu Stálskip h/f í Hafnarfirði sem þau hjónin, Guð- rún og Ágúst, ráku af miklum myndarskap allt til ársins 2014 þegar þau seldu vegna veikinda Ágústar. Eftir að útgerð Ránarinnar hófst landaði skipið oft í Grimsby og þegar fyrrverandi eigandi þess sá það og hve vel heppnuð viðgerðin var bauðst hann til að gefa þeim hjónum systurskip Boston Wellvale sem þau ætluðu þiggja en þar sem skipið var eldra en 12 ára heimil- uðu íslenskar reglur ekki innflutn- inginn. Selt 16. maí 1980 Ísstöðinni h/f Garði og nefnt Ingólfur GK-42. Selt, 18. mars 1984, Niðursuðu- verksmiðjunni Miðjunni h/f á Ísa- firði og nefnt Arnarnes ÍS-42. Selt 8. mars 1985 Torfunesi h/f, Ísafirði. Óbreytt nafn og númer. Selt 8. apríl 1988 Sædóri h/f Siglufirði og nefnt Arnarnes SI-42. Selt á árinu 1999 Þormóði Ramma – Sæberg. Hélt nafni og númeri. Boston Wellvale strandar Högni Torfason, fréttaritari Morgun- blaðsins á Ísafirði, fór á strandstað. Rifjum upp stórfróðlega frásögn Högna: „Boston Wellvale strandaði í fjörunni við Arnarnestá kl. rúmlega 18 í dag. Viti er þarna á tánni og virðist sem togarinn sigli inn í hvíta geislann frá vitanum. Lágsjávað var, er togarinn strandaði um 100 metra frá landi. Fjaran er þarna stór- grýtt, klappir og sker. Hið versta veður var á um þetta leyti, hávaðarok og bylur. Boston Wellvale sendi út neyðarskeyti strax eftir strandið, en leki kom að skipinu og komst sjór í vélarrúm. Við það stöðvað- ist ljósavélin og eftir það var ekki unnt að hafa samband við skipið. Neyðarskeytið heyrðist á Ísafirði og fóru þrír brezkir togarar, sem þar voru í höfn þegar á strandstaðinn, Northern Prince, Ross Renown og Prince Philip. Einar Jóhannsson, yfirhafnsögumaður, fór með Northern Prince og stjórnaði björg- unaraðgerðum af sjó. Lítill bátur, Þórveig, gerði tilraun til að sigla upp að hliðinni á Boston Wellvale um sjöleytið. En Þórveig tók niðri og varð að snúa frá. HIRTU EKKI UM LÍNUNA FYRST Í STAÐ Um 30 manna sveit úr slysavarnadeild karla og björgunarsveit skáta fór frá Ísa- firði strax og fréttist um strandið. Gekk heldur illa að komast á staðinn, þar sem þungfært var og þurftu ýtur að ryðja veg- inn. Komust björgunarmenn á strandstað- inn klukkan liðlega 19. Þeir skutu strax línum um borð og gátu komið þremur línum þangað. En skipverj- ar voru ákaflega sinnulausir og hirtu ekki um að taka línuna og festa björgunar- stólinn. Það var ekki fyrr en milli kl. 20.30 og 21 tókst að ná fyrstu mönnunum. Svo komu þeir í björgunarstólnum smám saman og kl. 22 var búið að ná 14 mönnum. Þegar hér var komið sögu bar skip- brotsmönnum sem í land voru komnir ekki saman um, hversu margir væru eftir í togaranum. Gamall skipverji taldi, að þeir hefðu verið 21, en aðrir sögðu 18. Um kl. 22.30 komu þrír menn í land til viðbótar, háseti, vélstjóri og stýrimaður. Stýrimaðurinn fullyrti, að enginn væri eft- ir um borð nema skipstjórinn, sem hann kvað veikan í maga og hefði ekki hug á að koma í land. Það kom til tals að senda mann út í togar- ann og freista þess að ná skipstjóranum, en skipverjar hafa gengið þannig frá björg- unarstólnum, að hann er neðarlega utan á hvalbaknum, svo það yrði illkleift að kom- ast upp á hann og ná handfestu. Það var því horfið frá því ráði. TALSVERT BRIM – STÓRGRÝTT FJARA Búast má við því, að togarann flatreki upp í fjöruna á flæðinu og getur verið, að hann fari illa á því, þar sem fjaran er stórgrýtt og klappir miklar. Þó er ekki talið, að skip- stjórinn sé í verulegri lífshættu eins og er. Að vísu brimar talsvert, en veður er þó skaplegt nú um miðnættið og úr- koma engin. ILLA Á SIG KOMNIR Skipbrotsmenn voru mjög mis jafnlega á sig komnir, enda voru allir þeir sem í land komu, að einum undanteknum, undir áhrifum áfengis. Þeir voru blaut- ir, en ekki aðþrengdir. Tveir eru slasaðir, annar með brotna hnéskel, en hinn naflaslitinn og var togarinn einmitt á leið með hann til hafnar, er strandið varð. Boston Wellvale hafði verið viku í veiðiferðinni og fengið lítinn afla. Stýrimaðurinn segir, að hann hafi heyrt í íslenzka útvarpinu á miðviku- dagskvöld að stormur væri í aðsigi. Var togarinn þá 30 mílur út af Straumnesi og náðist varpan inn með herkjum, enda komið versta veður. Siglt var til lands í var og í dag var ákveðið að sigla með hinn naflaslitna til hafnar. Boston Wellvale á strandstað. Mynd: Fleetwood Motor Trawlers 32 | Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.