Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 35
„Mánafoss á Torfunefið langa“ Þegar leið á árið 1962 spurðist út að Eimskipafélag Ís- land hygði á stækkun flota síns sem þá taldi tíu skip. Rætt var um nýsmíði en einnig kaup á eldra skipi. Í desember það ár undirritaði svo forstjóri félagsins, Óttarr Möller, samning um kaup á hinum danska Ketty Danielsen, 1.400 tonna og rúmlega 66 metra löngu skipi, smíðað þremur árum fyrr í Niðurlöndum. Skipið var formlega afhent félaginu í lok janúar árið eft- ir og fékk þá nafnið Mánafoss. Athöfnin fór fram í Frederikshavn en þaðan sigldi Mánafoss til Gautaborgar og Kaupmannahafnar og gleypti þar í sig varning. Síðan var lagt í haf. Á Akureyri var undirbúin mikil móttökuathöfn en þar átti Mánafoss að leggja fyrst að landi. En þá gerðist slys- ið. Fánum prýddum kom Mánafoss inn á Pollinn en í stað þess að leggjast mjúklega að Torfunefsbryggju sigldi skipið harkalega á bryggjuna. Varð þá skáldinu og meistara hringhendunnar, Rósberg G. Snædal, að orði: Allt í blossa! Áfram! Hart í bak! Út með trossur! Láttu rokkinn ganga! Bylmingskoss af miklum móði rak Mánafoss á Torfunefið langa. Ekki verður séð að Akureyringar hafi sett þetta mikið fyrir sig. Þeir höfðu fjölmennt á bryggjuna að taka á móti Mánafossi og þegar landgangurinn var settur nið- ur þustu þeir um borð að skoða skipið í boði Eimskipa- félags Íslands. Hugað að skemmdum á bryggjunni. Í Akureyrarblaðinu Íslendingi segir þetta um óhapp- ið: „Svo óheppilega vildi til, er Mánafoss lagði að Torfunefsbryggjunni, að stefnið gekk inn í bryggjuna, braut í hana skarð, og skaddaðist „Fossinn“ sjálfur á stefninu. Var þegar undinn bráður bugur að því að gera við bryggjuna, og bráðabirgðaviðgerð fór jafnframt fram á skipinu.“ Mynd: Gunnlaugur P. Kristinsson/Minjasafnið á Akureyri

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.