Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Síða 36
ALLTAF STÆRRI SKIP EN HVER ER
AUKNINGIN?
Stærsta gámaskip allra tíma er um þessar
mundir í prufusiglingum og brátt mun það
hefja áætlunarsiglingar. Skipið, MSC TUR-
KIYE, vantar aðeins 10 sentimetra í að vera
400 metra langt og breiddin er 61,3 metri.
Skipasmíðastöðin Jiangsu Yangzi Xinfu
Shipbuilding á heiðurinn af þessari smíði
þar sem þeir kalla skipið einfaldlega Xinfu
107. Flutningsgeta skipsins er hvorki meiri
né minni en 24.346 gámar en það er eitt
sex systurskipa sömu gerðar. Þegar er búið
að afhenda fjögur þeirra en verið er að
leggja lokahönd á þau tvö síðustu.
Til að leika okkur aðeins að tölum þá er
burðargeta skipsins 240.000 tonn. Með því
að gefa okkur að þungi áhafnar, vistir og
sjóbúnaður sé um 5% af þunga skipsins þá
mætti hver gámur vega 9,3 tonn til að
burðargeta skipsins yrði fullnýtt. Eigin
þyngd gámanna, miðað við að skipið lesti
einungis 20 feta gáma, væri þá 53,5 þús-
und tonn. Eiginlegur farmur yrði þá 174,5
þúsund tonn.
Færum þetta nær okkur en stærstu gáma-
skipin í íslenskri eigu eru systurskipin Brú-
arfoss og Dettifoss auk systurskips þeirra
Tukuma Arctica en þau voru einnig smíðuð
í Kína en um 1.500 km sunnar en Xinfu
107. Þessi þrjú skip eru með meðalþunga
hvers gáms, á sömu forsendum og áður er
getið, upp á 11,3 tonn en það þyrfti að
lesta þau 11 sinnum til að ná heildarfjölda
gáma Xinfu 107 en einungis 9 sinnum til
að ná sama farmþunga. En á heildina litið
þá myndu þau flytja tæplega 48 þúsund
tonna meiri farm í þeim ellefu ferðum sem
þau þyrftu til að ná sama gámafjölda og
MSC TURKIYE.
DANSKI KAUPSKIPASTÓLLINN
EFLIST
Mánudagurinn 1. maí 2023 var stór dagur
í danskri kaupskipasögu en þá tilkynnti
Maersk A/S að þeir væru að færa 16 gáma-
skip undir danska fánann þennan dag. Um
er að ræða svokallaða L gerð sem hafði siglt
undir fána Singapúr og Hong Kong en hafa
nú fengið dönsk kallmerki og Kaupmanna-
höfn sem heimahöfn. Skipin 16 voru
smíðuð hjá Daewoo Shipbuilding í Okpo
og afhent á árunum 2011 til 2013. Þau er
299 metrar á lengd, 45 metrar á breidd og
lesta 8.700 TEU. Koma skipanna undir
danskan fána skapar fjölda starfa fyrir þar-
lenda farmenn þótt einnig verði eitthvað af
erlendum sjómönnum áfram á skipunum.
FYRSTA RAFSOÐNA SKIPIÐ
Það hefur gjarnan verið talað um að fyrstu
skipin sem voru rafsoðin hafi verið stríðs-
byggðu skipin af svokallaðri Victory og
Liberty gerð. Vissulega voru þau skip raf-
soðin sem flýtti verulega fyrir smíðatíma
skipanna því sú aðferð var mun fljótlegri
en að setja stálplötur saman með hnoðum.
Þegar skip voru smíðuð með þeirri aðferð
þá voru stálplöturnar látnar yfirlappa, eða
leggjast yfir hvora aðra, og því fór mun
meira stál í að smíða skipin og þau að því
skapi þyngri. Það var reyndar skömmu eft-
ir lok fyrri heimsstyrjaldar sem í fyrsta sinn
var farið að nota rafsuðu við smíði skipa
sem var hjá Cammell Laird í Birkenhead
við Manchester skipaskurðinn í Bretlandi.
Það skip fékk nafnið Fullagar þegar það var
sjósett árið 1920. Tíu árum síðar var olíu-
skipið Carolinian sjósett hjá Charleston
Dry Dock & Machine í Suður-Karólínu í
Bandaríkjunum en það skip var einnig raf-
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
Áhöfnin á Doug.
36 | Sjómannablaðið Víkingur