Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Side 37
soðið. Þrátt fyrir að þessi tvö skip hafi verið
rafsoðin þá mun flutningaskipið Exchequer,
sem lokið var við hjá Ingalls Shipyard í
Mississippi árið 1940, vera það skip sem
var fyrst rafsoðið á þann hátt sem við
þekkjum í dag. Þau tvö fyrri voru þannig
soðin að stálplöturnar yfirlöppuðu líkt og
gert var þegar plötur voru hnoðaðar en í
tilfelli Exchequer þá voru í fyrsta sinn end-
ar stálplatna rafsoðnir saman. Sú aðferð var
síðan notuð þegar smíði Victory og Liberty
skipanna hófst. Rafsuða í Liberty skipin
mun hafa numið um 182.000 metrum.
RAFMAGN TIL SKIPA
FRAMTÍÐARINNAR
Það er ljóst að fram undan eru miklar
væntingar og að sjálfsögðu breytingar í
skipaheiminum hvað varðar umhverfis-
vænni rekstur skipa. Fjölmiðlar hafa verið
fullir af fréttum af loftmengun frá skemmti-
ferðaskipum og mikið fjallað um hvort það
sé ásættanlegt að fá þessa farþega með
skipum en væntanlega þá betra að fá þá
hingað til lands með flugvélum. Sú meng-
un að koma þeim fjölda farþega sem skipin
koma með hingað yrði eflaust ekki minni
ef ekki meiri þegar upp er staðið. Sænska
útgerðin Fjordtank (SeaFjord Energy) hef-
ur þjónustað skip í yfir 20 ár með brennslu-
olíu en nú hafa þeir ákveðið að undirbúa
sig undir að þjónusta skip framtíðarinnar.
Tveir bræður eiga þessa útgerð og fyrir
tveimur árum byrjuðu þeir að vinna með
hugmyndir að framtíðarskipi útgerðarinn-
ar. Þeir hafa látið hanna skip sem mun geta
hlaðið rafhlöðubanka rafknúinna skipa en
einnig gefið skipum rafmagn þar sem ekki
er nægjanlega stór landtenging til staðar í
höfnum. Verður skipið fljótandi rafhlöðu-
pakki fyrir viðkomandi skip meðan það
lægi í viðkomandi höfn. Mun fyrsta skipið,
af þessari gerð, verða nefnt Fjord Zero og
mun geta afgreitt allt að 50 MW orku. Á
skipið og systurskip þess að geta afgreitt
raforku til siglandi skipa eins og skemmti-
ferðaskipa en einnig bendir útgerðin á að
hægt verði að koma raforku til sjúkrahúsa í
neyð. Þá eiga skipin að geta hlaðið raforku
beint frá vindmyllum. Það verður
spennandi að fylgjast með þessu verkefni.
DÓMUR FALLINN
Það fór heldur betur um norska sjóherinn
þegar freygáta af Fridtjof Nansen gerð,
Helge Ingstad, lenti í árekstri við olíuskip-
ið Sola TS þann 8. nóvember 2018 með
þeim afleiðingum að það fyrrnefnda sökk
eftir að skipinu hafði verið siglt á land sök-
um skemmda. Freygátan var að koma af
NATO æfingu og var að sigla innanskerja
norður af Bergen. Siglt var á 17,4 hnúta
ferð og var skipið ekki sjáanlegt í AIS auð-
kenningakerfinu. Þegar skipið var skammt
frá Sture olíuhöfninni var kallað á skipið í
talstöð og þeim sagt að breyta stefnu til
stjórnborða til að forðast hið 250 metra og
112 þúsund tonna olíuskip Sola TS sem
væri að koma út frá höfninni með aðstoð
dráttarbáts. Í brúnni á Helge Ingstad töldu
þau fimm, sem í brúnni voru, að þessi að-
vörun ætti ekki við þeirra skip heldur þrjú
skip sem sáust á siglingu þar skammt und-
an. Þegar teymið í brúnni á Helge Ingstad
áttaði sig á að aðvörunin ætti við þeirra
skip voru innan við 400 metrar á milli
skipanna og árekstri varð ekki forðað.
Skipherrann, Preben Østheim, var í koju
og vaknaði við áreksturinn. Í maí síðast-
liðnum var vakthafandi yfirmaður Helge
Ingstad fundinn sekur um vanrækslu í
starfi en hann var sá eini sem var ákærður
í málinu þrátt fyrir að hann hafði einungis
verið átta mínútur á vakt áður en árekstur-
inn varð.
FER ÓTROÐNAR SLÓÐIR
Elon Musk hefur verið umdeildur svo um
munar enda hefur hann víða farið ótroðnar
slóðir. Geimáætlun hans, SpaceX, komst á
spjöld sögunnar á dálítið sérstakan hátt
fyrir skömmu. Hefur áætlunin keypt tvö
fjölnota björgunarskip sem ætluð eru til að
endurheimta endurnýtanlegar hleðsluhlífar
og eldflaugahluta frá geimskotum Dragons
geimfarsins. Annað þessara skipa, Doug, er
að fullu mannað konum sem telst nánast
einsdæmi. Eins og áður hefur verið sagt frá
hér á þessum síðum þá var það árið 2021
sem tankskipið Swarna Krishna sigldi, í til-
efni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna,
mannað kvenkyns yfirmönnum. Að vísu
hafði dráttarbátaútgerðin Svitzer, árið
2019, ráðið einvörðungu konur til starfa á
einum dráttarbáta sinna sem starfræktur
var í Dóminíska lýðveldinu. Því er kven-
kynsáhöfnin á Doug ein af þeim fyrstu í at-
vinnurekstri á sjó en skipaiðnaðurinn og
Alþjóðasiglingamálastofnunin hafa leitast
við að auka kynjafjölbreytni á sjó. Sam-
kvæmt rannsókn, frá 2021, eru konur að-
Kafbáturinn sem fannst við kortlagningu skipsflaka í Norðursjó. Ljósmynd/Internetið.
Sjómannablaðið Víkingur | 37