Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Page 38
eins 1,2% prósent af vinnuafli sjómanna á heimsvísu með rúmlega 24.000 konur í þjónustu. EITUREFNI Á HAFSBOTNI Hafrannsóknarmenn frá Syddansk-háskólanum, sem voru við rann- sóknir í Kyrrahafi, uppgötvuðu sér til mikillar skelfingar lög af PCB efninu í sýnatöku á 8.000 metra dýpi í Atacama-skurðinum. Magn- ið var að vísu ekki í því mæli að viðvörunarbjöllur færu að hringja en PCB var bannað í flestum löndum fyrir 1980 vegna mengunar en það var notað meðal annars í botnmálningu skipa. „Það er umhugs- unarvert að við finnum ummerki um athafnir mannsins á botni djúpsjávarskurðar á stað sem líklegast er mest fjarlægur og einangr- aður frá samfélagi okkar,“ sagði prófessor Ronnie N. Glud leið- angursstjóri. Mörg viðkvæm sjávardýr og örverur sem búa í djúp- sjávarskurðum eru því mjög útsettar fyrir eitrinu. RANNSÓKNIR SKIPSFLAKA Íslenskir fiskimenn þekkja vel vandamálið við togveiðar þegar veiðarfæri festast í skipsflökum. Það er fjarri því að vera íslenskt vandamál en nú hefur sérhannað skip verið fengið til að skoða þekkt flök á hafsbotni í norðurhluta Norðursjávar og kortleggja þau betur en þegar er. Tilgangurinn er meðal annars að draga úr veiðar- færatjóni en einnig að afla upplýsinga um stríðsminjar. Skipið sem hefur verið í þessu verkefni hét eitt sinn Jaxlinn og stundaði meðal annars strandsiglingar hér við land. Skipinu var breytt til rann- sóknarverkefna og hefur áhöfn skipsins fundið hvorki meira né minna en 65 ný flök sem ekki var vitað um. Þá kom í ljós að í 79 staðsetningum skipsflaka fannst hvorki tangur né tetur af þeim. Vina, eins og skipið heitir, er rekið af fyrirtækinu JD Contractor AS en með fjölgeislamælis- og fjarstýrðum neðansjávarmyndavélum hafa flakastaðsetningar verið skoðaðar. Meðal nýrra flaka sem fund- ust var talið með mikilli vissu að um væri að ræða breska kafbátinn HMS E37. Um er að ræða 65 metra langan kafbát sem afhentur var frá breskri skipasmíðastöð 17. mars 1916. Kafbáturinn þótti á sín- um tíma vera háþróaður með tvær 800 ha. aðalvélar og tvær ljósa- vélar upp á 420 hestöfl. Þann 1. desember 1916 týndist kafbátur- inn. Fram til þessa hefur ekki verið vitað um afdrif þrjátíu og eins skipverja kafbátsins. Ekki er vit- að af hverju kafbáturinn fórst en vísbendingar eru um að hann hafi orðið fyrir djúpsprengju. Rannsóknir voru einnig gerðar á þýska kafbátnum SM U15 sem smíðaður var árið 1911 en hann var fyrsti kafbáturinn sem sökkt var í átökum í fyrri heimsstyrj- öldinni. Kafbáturinn var í sinni fyrstu eftirlitsferð og varð á ní- unda degi að fara upp á yfir- borðið austur af Hjaltlandi vegna vélarbilunar. Þrátt fyrir að þoka væri sá breskt herskip til kafbátsins. Kafbáturinn reyndi köfun en herskipið náði að sigla á kafbátinn og klippa hann í tvennt með þeim afleiðingum að tuttugu og þriggja manna áhöfn lét lífið. Verk þetta hefur verið unnið í tengslum við Sea War Museum Jutland í Thy- borøn í Danmörku en það er ekki aðeins dýrmætt fyrir fiskiskipa- flotann heldur hefur það einnig mikið sögulegt og sjávarfornleifa- fræðilegt gildi. Þegar allt efni sem safnað var í ferð skipsins hefur verið rannsakað að fullu mun safnið koma með frekari upplýsingar um áður óþekkt flök. Fjord Zero eins og hönnuðurnir sjá skipið. á w w w . t i g u l l . i s Fylgstu með Eyjaflotanum á tigull.is TÍGULL

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.