Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Qupperneq 44
44 | Sjómannablaðið Víkingur
míráll, yfirmaður Kyrrahafsflotans, í
hyggju að leika golf með Short hers-
höfðingja. Hermennirnir voru meira
og minna í fríi og alls staðar ríkti ró
og friður. Enda sunnudagur. Kimmel
var þó á skrifstofu sinni þegar loft-
árás Japana hófst og út um glugga
fylgdist hann skelfingu lostinn með
eyðileggingunni.
Þó höfðu borist flugufréttir er bentu
til töluverðrar athafnasemi japanska
flotans en hinir bandarísku höfðu í
grandaleysi sínu gert ráð fyrir að flot-
inn væri á leiðinni til Suðaustur-
Asíu. Sjálfur var Kimmel sannfærður
um að Japanir myndu ekki ráðast á
Honululu.
Furðulegt andvaraleysi yfirmanna í
sjóliðinu var undirstrikað þegar
vaktmaður í ratsjárstöð nyrst á Ohau,
einni af eyjum Hawaii, vakti athygli á
dularfullum ljósblettum á rat-
sjárskjánum.
Gætu þetta verið japanskar sprengju-
flugvélar velti hann fyrir sér og hóaði
í vaktforingjann, Kermit Tyler lautin-
ant, sem þótti hugmyndin fráleit og
svaraði: „Æ, hafðu ekki neinar
áhyggjur af þessu.“
Tyler átti von á flota B-17 sprengju-
flugvéla og fannst fjarstæðukennt að
blettirnir á skjánum gætu verið
óvinavélar.
Þegar þarna var komið sögu hefði
allsherjarútkall þó ekki bjargað
Pearl Harbour – það var þegar orðið
um seinan – en vísast hefði tekist að
bjarga hundruðum mannslífa.
Hálftíma seinna voru japanskar
sprengjuflugvélar teknar að varpa
sprengjum á amerísk skip og á að-
eins 90 mínútum missti bandaríska
þjóðin um 2.400 syni í valinn.
Á þessum um það bil hálftíma sem
leið frá því að ratsjármaðurinn sá
ljósdeplana dularfullu og þar til árás
Japana hófst hefði verið hægt að
manna loftvarnabyssur og senda orr-
ustuvélar á loft. Bandaríkin guldu
léttúð Tylers varðstjóra dýru verði.
En höfuðábyrgðin hvíldi þó á herð-
um stjórnmálamanna í Washington
og æðstu yfirmanna í Honolulu sem
virtu að vettugi hættuna sem steðjaði
að Perluhöfn. Margsinnis hafði verið
bent á að höfnin væri illa varin og
því óráðlegt að gera hana að megin
höfn bandaríska flotans á Kyrrahafi.
Að minnsta kosti ef ekki ætti að bæta
úr vörnum hafnarinnar sem ekki var
gert.
Á miðri Perluhöfn blaktir fáni Bandaríkjanna við hálfa stöng yfir flaki USS Arizona. Alls fórust 1.177 sjóliðar með skipinu. Nöfn þeirra eru greipt í granít og má lesa í minnishofi sem rís
yfir flakinu og þúsundir gesta heimsækja árlega.
Husband E. Kimmel uggði ekki að sér þegar Japanir réðust á Perluhöfn í
desember 1941. Fyrir vikið var hann settur af sem yfirmaður Kyrrahafsflota
Bandaríkjanna og sviptur tveimur stjörnum af fjórum sem þýddi að hann
var ekki lengur talinn hæfur til að gegna æðstu stöðum innan sjóhersins.
Heimild: Geoffrey Regan, The Guinness Book of Military Blunders (London 1991), þýtt og endursagt.