Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Síða 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2023, Síða 45
Bónda nokkrum var sagt frá því að þegar Andrew Carnegie kom til Bandaríkjanna hafi hann ekki átt nema 25 sent en þegar hann lést hafi hann látið eftir sig 250.000.000 dollara. Bóndi þagði stundarkorn, stundi svo við og mælti: „Hann hefur átt sparsama konu, mað- urinn sá.“ * Stór og skrautlegur hani elti litla, rytjulega hænu. Hænan gargaði ofboðslega og hljóp í sífelldum krókum til að forða sér undan hananum. Að lokum hljóp hún út á götu og varð fyrir vörubíl sem kom brun- andi. Tvær rosknar piparjóm- frúr, sem sátu við glugga, voru sjónarvottar að þessum harm- leik. „Sástu!“, sagði önnur þeirra með hátíðlegum alvörusvip um leið og hún benti á dauðu hænuna. „Hún vildi heldur deyja.“ * Frá þingmannsefninu, sem ekki náði kosningu, birtist svohljóðandi þakkarávarp: „Bestu þakkir frá mér til allra sem kusu mig og bestu þakkir frá konunni minni til allra sem kusu mig ekki.“ * Sultarlegur umrenningur nam staðar fyrir framan bóndabæ og bað um mat. Húsfreyjan færði honum út fullan disk af mat og setti fyrir hann á hlað- inu. Þegar hann hafði nærri lokið af diskinum kom lítil rauð hæna hlaupandi eftir hlaðinu og á eftir henni stór hani. Um leið og haninn hljóp hjá fleygði umrenningurinn brauðbita fyr- ir hann. Haninn snarstoppaði og byrjaði að höggva í sig brauðið af mikilli græðgi. Um- renningurinn hristi höfuðið og sagði: „Ja, lagsmaður, langt ertu leiddur! Ég vona að ég eigi aldrei eftir að verða svona svangur.“ * Ung ekkja kom til legsteinasala og bað um legstein á leiði mannsins síns. Á steininn skyldi höggvið: „Sorg mín er þyngri en svo að ég geti borið hana.“ Skömmu síðar kom ekkjan aft- ur til legsteinasalans. Var hún þá búin að losa sig við sorgar- búninginn og með nýjan gift- ingarhring. Erindið var að biðja legsteinasalan um að bæta aftan við fyrrgreinda setn- ingu orðinu „ein“. * Bandarískur þingmaður hélt ræðu á fundi hermálanefndar þingsins. Þetta var í seinna stríði og var hann þungorður í garð kvenþjóðarinnar heima fyrir og sagði að á meðan mennirnir berðust upp á líf og dauða á fjarlægum vígstöðvum lifðu eiginkonur þeirra þús- undum saman í synd og svív- irðu. Það ætti að lækka fjár- styrk þessara hórkvenna um helming, var skoðun þing- mannsins. Þingkonan og repúblikaninn Clare Boothe Luce reis þá á fætur og kvaðst hjartanlega sammála ræðumanni en lagði jafnframt til að í hvert skipti sem hermaður á fjarlægum víg- stöðvum væri staðinn að því að lifa í synd skyldi styrkur eigin- konu hans hækkaður um helming. Málið var látið niður falla án frekari umræðna. * Ung stúlka trúði rithöfundin- um Somerset Maugham fyrir því að hún væri ekki viss um hvort hún elskaði tiltekinn ungan mann og bað rithöfund- inn ráða. „Það er aðeins til eitt ótvírætt sannindamerki um það,“ sagði Maugham. „Getur þú hugsað þér að nota tannburstann hans?“ * Á dögum Viktoríu drottningar Sjómannablaðið Víkingur | 45 Ekki sama Jón eða séra Jón, karl eða kona. Á það benti þingkonan Clare Boothe Luce með eftirminnilegum hætti. Banda- rískir hermenn í Reykjavíkurtjörn, væntanlega að fagna stríðslokum.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.