Víkurfréttir - 23.05.2024, Side 1
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
23.–26. maí
Íbúum með skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum fjölgaði um
12,2% á árinu 2023 og voru þeir 1.500 talsins í árslok. Frá síðustu
áramótum hefur íbúum með skráð lögheimili fjölgað um tæp 9% en
að meðtöldum þeim íbúum sem hafa skráð aðsetur í Vogum en lög-
heimili í Grindavík nemur fjölgunin um 22% frá síðustu áramótum.
Í heild eru íbúar í Vogum nú um 1.830 talsins en samkvæmt mann-
fjöldatölum Hagstofu Íslands voru íbúar í sveitarfélaginu 1.337 talsins
í ársbyrjun síðasta árs.
Íbúar Suðurnesja voru um síðustu
mánaðamót 32.599 talsins og hafði
fækkað um fjórtán einstaklinga frá
1. desember 2023. Það að íbúum
Suðurnesja fjölgi ekki á tíma-
bilinu má rekja til þess að Íbúum
Grindavíkurbæjar fækkar um 266
á þessu tímabili eða um 7,2%. Í
Reykjanesbæ hefur fjölgað um 161
einstakling frá því í desember og í
Suðurnesjabæ um 34. Í tölum fyrir
Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ er
ekki gert ráð fyrir þeim Grind-
víkingum sem mögulega eru sestir
þar að en eru með lögheimili skráð
ennþá í Grindavík.
Í viðtali við Lóu Björg Gests-
dóttur, skólastjóra Heiðarskóla
í Keflavík, í Víkurfréttum í dag
kemur fram að í skólahverfi Heið-
arskóla er barnafólki að fjölga
mikið. í Haust eru 460 nemendur
skráðir í Heiðarskóla en voru 407
á sama tíma í fyrra. Lóa segir að
m.a. séu mörg börn úr Grindavík
sem hafa byrjað nám í Heiðar-
skóla nú eftir áramót og fleiri séu
skráð til skólavistar í haust. Þetta
er fjölgun um þrjár bekkjardeildir
á milli ára og Heiðarskóli, eins og
margir aðrir skólar, glímir nú við
húsnæðisskort.
Íbúum Voga fjölgað um 22%
og börnum fjölgar í Heiðarhverfi
Vegna fram-
kvæmda við
akbraut Echo-1
á Keflavíkur-
flugvelli má
gera ráð fyrir
a ð a u k n i n g
verði í flugum-
ferð yfir byggð
í Reykjanesbæ í sumar. Fram-
kvæmdir á akbrautinni, sem
liggur meðfram flugbraut
01/19, hófust nú í maímánuði.
Frá júní og fram í lok ágúst
hefjast seinni áfangar þessara
framkvæmda sem fela í sér
gerð á nýrri stofnlagnaleið
meðfram aukbrautinni, end-
urnýjun á slitlagi, innleiðingu
miðlínuljósa, endurnýjun
skilta og breikkun á beygju í
enda akbrautar.
Á framkvæmdatímabilinu
gæti því þurft að nota flug-
braut 10/28 meira en ella sem
mun þýða að flogið verður
meira yfir byggð nærri Kefla-
víkurflugvelli. Öllum mótvæg-
isaðgerðum verður beitt til að
koma í veg fyrir það, en ljóst er
að einhverja daga gætu íbúar á
svæðinu orðið fyrir ónæði vegna
flugumferðar.
Framkvæmdirnar sem um
ræðir skipta miklu máli til að
bæta megi flæði og öryggi flug-
brautakerfisins á Keflavíkur-
flugvelli.
Íbúum er bent á hljóðmæl-
ingakerfið á vef Isavia þar
sem hægt er að koma athuga-
semdum á framfæri um ónæði
vegna flugumferðar.
– vegna framkvæmda við
akbraut á Keflavíkurflugvelli
í sumar
Flugumferð gæti
farið yfir byggð í
Reykjanesbæ
Heiðarskóli og hluti Heiðarhverfisins í Keflavík. Barnafólki er að fjölga í hverfinu og 460 börn eru skráð til skólavistar í Heiðarskóla í haust. Þau voru 407 síðasta haust. VF/HBB
Stærsti
róður lífsins
Arnar Magnússon bjargaði félaga sínum úr
sjávarháska úti fyrir Garðskaga. – Sjá síðu 10
Fimmtudagur 23. maí 2024 // 21. tbl. // 45. árg.