Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.05.2024, Side 2

Víkurfréttir - 23.05.2024, Side 2
Beint flug hafið milli Calgary og Keflavíkur Kanadíska flugfélagið WestJet lenti á Keflavíkurflugvelli í fyrsta skipti í síðustu viku en það mun bjóða upp á beint flug milli Calgary í Albertafylki og Kefla- víkur fram í október. Angela Avery, framkvæmdastjóri hjá WestJet, sagði við það tækifæri að áfangastaðurinn Ísland byði upp á landslag sem væri hrífandi og jarðfræðilega fjölbreytt. „Við erum afskaplega ánægð með að geta bætt Íslandi við sem nýjum beinum áfangastað okkar í Evrópu.“ Hún benti á að WestJet væri eina flug- félagið sem tengdi Ísland við Calgary. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, sagði einnig við þetta tæki- færi að hann hlakkaði til sam- starfsins við WestJet sem yrði mikilvægur samstarfsaðili flugvall- arins til framtíðar. „Sú ákvörðun WestJet að hefja þetta áætlunar- flug styður við þá framtíðarsýn okkar að tengja heiminn í gegnum Ísland.“ Fyrsta fluginu var fagnað í morgun og klipptu forstjóri Isavia og framkvæmdastjóri frá WestJet á borða áður en flogið var frá Kefla- víkurflugvelli. WestJet flýgur á Boeing 737MAX vél milli Calgary og Keflavíkurflug- vallar fjórum sinnum í viku fram í miðjan október næstkomandi. Í tilkynningu frá WestJet kemur fram að félagið hafi gert samning við Icelandair þess efnis að far- þegar kanadíska flugfélagsins geti bókað sig áfram á einum flugmiða frá Calgary í gegnum Keflavíkur- flugvöll áfram til áfangastaða Icel- andair í Evrópu. Það sama sé í boði fyrir farþega sem fljúgi frá Keflavík til Calgary sem geti farið áfram til annarra áfangastaða WestJet víða um heim. Klippt var á borða eftir fyrstu lendingu WestJet á Keflavíkurflugvelli. Rekstur Voga á réttri leið n Ársreikningur 2023 samþykktur í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga „Þrátt fyrir krefjandi aðstæður gekk rekstur Sveitarfélagsins Voga betur en áætlanir gerðu ráð fyrir á síðasta ári. Sá góði árangur sem náðst hefur í rekstri sveitarfélagsins er ekki síst að þakka skýrri markmiðasetningu sem bæjarstjórn hefur unnið samkvæmt síðustu ár og miðar að því að auka sjálfbærni í rekstri sveitarfélagsins og tryggja að sveitarfélagið geti staðið undir nauðsynlegri uppbyggingu og mætt nýjum áskorunum sem óhjákvæmilega fylgja þeim hraða vexti sem hefur verið í uppbygg- ingu íbúðarhúsnæðis í sveitar- félaginu," segir Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri Sveitar- félagsins Voga, við afgreiðslu ársreikningsins á vef bæjarins. Rekstrarniðurstaða betri en áætlað var á árinu 2023 Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2023 námu heildartekjur sam- stæðu A og B hluta 2.095 m.kr á árinu og jukust um 24,2% frá fyrra ári. Rekstrargjöld samstæðu námu 1.892 m.kr. á árinu og jukust um 17,7% á milli ára. Rekstrarniður- staða fyrir afskriftir var jákvæð um 202 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarniðurstaða fyrir af- skriftir yrði jákvæð um 122 m.kr. Rekstrarniðurstaða að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða var neikvæð um tæplega 4 m.kr. sem er um 55 m.kr. betri rekstrarniður- staða en áætlað var. Skýrist betri rekstrarniðurstaða samanborið við áætlanir einkum af hærri tekjum en áætlað var. Verðbólga var meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og hefur það neikvæð áhrif á annan rekstr- arkostnað og fjármagnsliði og þar með afkomu. Veltufé frá rekstri 9% af tekjum Veltufé frá rekstri nam 189 m.kr. á árinu, eða sem nemur 9% af rekstr- artekjum árins, sem er umtals- verð aukning frá síðasta ári þegar veltufé frá rekstri var um 70 m.kr. Fjárfestingar á árinu að teknu tilliti til innheimtra gatnagerðargjalda námu 122 m.kr. Stærsta fjárfesting ársins var í fráveitukerfi sem er nú að mestu lokið. Framkvæmdir vegna nýs heilsugæslusels frest- uðust til ársins 2024 sem er helsta skýring fráviks um 20 m.kr. frá áætluðum fjárfestingum. Í árslok var handbært fé 154 m.kr. borið saman við 234 m.kr í ársbyrjun. Skuldaviðmið lækkar niður í 69,2% Skuldaviðmið skv. reglugerð í árslok 2023 var 69,2% borið saman við 83% í árslok 2022. Íbúum fjölgað um 22% frá áramótum Íbúum með skráð lögheimili í Vogum fjölgaði um 12,2% á árinu 2023 og voru þeir 1.500 talsins í árslok. Frá síðustu ára- mótum hefur íbúum með skráð lögheimili fjölgað um tæp 9% en að meðtöldum þeim íbúum sem hafa skráð aðsetur í Vogum en lögheimili í Grindavík nemur fjölgunin um 22% frá síðustu ára- mótum. Í heild eru íbúar í Vogum nú um 1.830 talsins en samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofu Íslands voru íbúar í sveitarfélaginu 1.337 talsins í ársbyrjun síðasta árs. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Friðuð hús við Hafnargötu flutt á Klapparstíg og Kirkjuveg Sótt hefur verið um byggingar- leyfi vegna flutnings á friðuðu húsi frá núverandi staðsetningu á Hafnargötu 24 á nýja lóð á Klapparstíg 11. Húsið er ein- býli á einni hæð með kjallara og rishæð. Gert er ráð fyrir að byggja nýjan sökkul/kjallarahæð sem húsið verður flutt á. Þá hefur verið sótt um bygg- ingarleyfi vegna flutnings á friðuðu húsi frá núverandi staðsetningu á Hafnargötu 22 á nýja lóð á Kirkju- vegi 8. Húsið er einbýli á einni hæð með kjallara og rishæð. Gert er ráð fyrir að byggja nýjan sökkul/kjall- arahæð sem húsið verður flutt á. Byggingaráformin eru samþykkt en erindin uppfylla gildandi skipu- lagsskilmála. Taka sæti í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ Árni Þór Sigurðsson, Guðný Sverrisdóttir og Gunnar Einarsson munu taka sæti í sérstakri framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór verður formaður nefndarinnar. Lög um framkvæmdanefndina voru samþykkt á Alþingi fyrr í vikunni en hún tekur formlega til starfa 1. júní nk. Undirbúningur er þó hafinn og mun nefndin m.a. hitta bæjarstjórn Grindavíkurbæjar í næstu viku. Nefndin mun einnig eiga undirbúningsfundi með stofnunum á vegum ríkisins sem hafa unnið að viðbragði vegna jarðhræringa við Grindavík. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. „Framkvæmdanefnd vegna jarð- hræringa í Grindavíkurbæ er mikilvægt skref til þess að skerpa á ábyrgð og hlutverki stjórnvalda um málefni Grindavíkur. Þetta skref er til góðs fyrir Grindvíkinga, en ekki síður fyrir samfélagið allt, sem stendur með Grindvíkingum á þessum erfiðu tímum,“ segir Svandís Svavarsdóttir, innviðaráð- herra. Um nefndarfólk Árni Þór Sigurðsson sat á Alþingi um árabil en var áður borgar- fulltrúi í Reykjavík um þrettán ára skeið og sat um tíma í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Árni Þór hefur starfað í utanríkis- þjónustunni frá árinu 2015 og verið sendiherra Íslands í Finn- landi, Rússlandi og nú síðast í Danmörku. Guðný Sverrisdóttir var sveitar- stjóri Grýtubakkahrepps í tæp 27 ár, allt til ársins 2014. Guðný hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstöfum. Hún var lengi formaður ráðgjafa- nefndar Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga og gegndi þeim störfum fram til ársins 2023. Gunnar Einarsson var bæjar- stjóri í Garðabæ um 17 ára skeið og þar áður forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs bæjarins. Gunnar hefur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum og var m.a. í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga um tólf ára skeið. Hlutverk nefndarinnar Framkvæmdanefndin mun fara með stjórn, skipulag og fram- kvæmd tiltekinna verkefna sem henni eru falin með lögum, sam- hæfingu aðgerða, tryggja skilvirka samvinnu við Grindavíkurbæ, önnur stjórnvöld og aðra hlutað- eigandi aðila og hafa heildaryfirsýn yfir málefni Grindavíkurbæjar. Framkvæmdanefndin er fjölskipað og sjálfstætt stjórnvald sem hefur með höndum verkefni sem snúa að úrlausnarefnum sem tengjast jarð- hræringunum við Grindavík. Helstu verkefni nefndarinnar munu snúa að samfélagsþjónustu með því að starfrækja þjónustu- teymi á sviði velferðar- og skóla- þjónustu og þá mun nefndin hafa yfirumsjón með framkvæmdum og viðgerðum á mikilvægum inn- viðum í Grindavík. Verkefnið hefur verið undirbúið í góðu samstarfi við bæjarstjórn Grindavíkur sem óskaði eftir sam- starfi um tilhögun og stjórnarfyrir- komulag verkefna við óvenjulegar aðstæður vegna jarðhræringa í Grindavík. 2 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.