Víkurfréttir - 23.05.2024, Page 4
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar samþykkti á fundi sínum 6. maí 2024, að auglýsa tillögu
að breytingu á deiliskipulagi Keflavíkurflugvallar á vestursvæði í samræmi við 43. gr.skipu-
lagslaga.
Um er að ræða umtalsverða breytingu á gildandi skipulagi en meginbreytingin felst í að
aðlaga núverandi deiliskipulagsáætlun í átt að nýrri þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar eins
og eðlilegt þykir. Í því felast töluverðar breytingar en þær helstu eru fjölgun bílastæðahúsa úr
einu í tvö, fækkun almennra bílastæða á yfirborði, breyting á legu Reykjanesbrautar og
hringtengingu innan svæðis, stærð athafnasvæðis minnkar úr 22 ha. í 8 ha. og lóðir þar
felldar niður. Lóðir fyrir nýtt flugvallarhótel og bílastæðahús eru nánar skilgreindar og
lóðamörk færð til þar sem þarf í samræmi við nýtt og aðlagað gatnakerfi.
Jafnframt eru byggingarreitir við flugstöðina stækkaðir, heimild er veitt fyrir byggingu
tveggja spennistöðva á nýjum lóðum og staðsettur er reitur fyrir nýtt auglýsingaskilti.
Ásamt því er heimild veitt til haugsetningar/ geymslu jarðefna og staðsetning sýnd vestast
á skipulagssvæðinu þar sem skipulagssvæðið er jafnframt stækkað um nokkra ha.
Tillagan er aðgengileg á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, sem og á vef Isavia frá 22. maí
2024 til og með 3. júlí 2024.
www.skipulagsgatt.is
www.isavia.is/skipulag-i-kynningu
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna og koma með
sínar athugasemdir eigi síðar en 3. júlí 2024 í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Vestursvæði, Keflavíkurflugvelli
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Undanfarna mánuði hafa Samkaup hf. og Skel fjárfestingarfélag
hf. átt í könnunarviðræðum um fýsileika samruna Samkaupa og
tiltekinna dótturfélaga SKEL. Aðilar hafa framkvæmt forskoðun á
samrunafélögunum með aðstoð sérfræðiráðgjafar og í samræmi við
ákvæði samkeppnislaga. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Skrifað hefur verið undir sam-
komulag um helstu forsendur fyrir
því að hefja formlegt samrunaferli,
þar sem Samkaup verður yfirtöku-
félagið. Nú hefjast því samninga-
viðræður um samrunann með
það að markmiði að komast að
samkomulagi um efni endanlegs
kaupsamnings með fyrirvara um
samþykki Samkeppniseftirlitsins
og hluthafafundar. Samruninn
er í samræmi við framtíðarstefnu
Samkaupa og felur í sér margvísleg
tækifæri og breikkar tekjugrunn fé-
lagsins.
„Samkaup er yfirtökufélag í
þessum samruna og ég er mjög
ánægður með þessa niðurstöðu
eftir vinnu síðustu missera. Ég er
sannfærður um að sameinað félag
eigi eftir að gera góða hluti til hags-
bóta fyrir neytendur. Með samein-
ingu verður til fjárhagslega öflugt
verslunarfélag á neytendamarkaði
með sterka markaðshlutdeild í
dagvöru, lyfjum og orku. Sameinað
félag er með djúpar rætur í þjón-
ustu við viðskiptavini um allt land
og verður enn sterkari keppinautur
á markaði með mikil tækifæri til
vaxtar. Aukin hagkvæmni hlýst af
stærri rekstrareiningu en einnig
eru mikil tækifæri víða um land
með auknu þjónustuframboði,“
segir Gunnar Egill Sigurðsson, for-
stjóri Samkaupa, í tilkynningunni.
Upplýsingar um Samkaup,
Orkuna og Heimkaup:
n Samkaup reka rúmlega 60
verslanir víðsvegar um landið
undir vörumerkjunum Nettó,
Kjörbúðin, Krambúðin og
Iceland. Hjá félaginu starfa
um 1.400 starfsmenn í rúmlega
660 stöðugildum.
n Orkan starfrækir 72 orku-
stöðvar, tíu þvottastöðvar undir
merkjum Löðurs, sex hrað-
hleðslustöðvar, tvær vetnis-
stöðvar og eina metanstöð. Þá
á félagið 32 fasteignir og lóðir
víðs vegar um landið, auk ann-
arra eigna.
n Heimkaup reka sjö apótek
undir merkjum Lyf javals,
netverslunina Heimkaup og
níu þægindaverslanir undir
merkjum 10-11, Extra og Ork-
unnar, auk annarra eigna.
„Ég er sannfærður um að sameinað
félag eigi eftir að gera góða hluti
til hagsbóta fyrir neytendur. Með
sameiningu verður til fjárhagslega
öflugt verslunarfélag á neytenda-
markaði með sterka markaðshlut-
deild í dagvöru, lyfjum og orku,“
segir Gunnar Egill.
Samkaup, Heimkaup og Orkan
hefja samrunaviðræður
Heiða Hrólfsdóttir
ráðin leikskólastjóri
við Heilsuleikskólann
Suðurvelli í Vogum
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins
Voga samþykkti samhljóða á
fundi sínum á dögunum að ráða
Heiðu Hrólfsdóttur leikskóla-
stjóra við Heilsuleikskólann Suð-
urvelli. Heiða tekur við starfinu
af Maríu Hermannsdóttur sem
lætur af starfinu 30. júní næst-
komandi.
Heiða lauk
leikskólakenn-
aramenntun frá
Kennaraháskóla
Ís l a n d s á r i ð
1997 og stundaði
verk- og stjórn-
endanám við
Nýsköpunarmiðstöð Íslands á
árunum 2015-2017.
Heiða starfaði sem deildarstjóri
við Heilsuleikskólann Suðurvelli á
árunum 2017-2020 en á árunum
1999-2004 var Heiða aðstoðarleik-
skólastjóri við Leikskála á Siglu-
firði og hafði jafnframt umsjón
með sérkennslu. Heiða hefur sinnt
umsjónarkennslu við Stóru-Voga-
skóla frá árinu 2020.
Styrkja ljósleið-
aratengingu við
Svartsengi
HS orka hefur óskað fram-
kvæmdaleyfis til lagningar
ljósleiðara í vegkanti frá
Fitjum og að Stapafellsvegi
við Hafnaveg til að styrkja
tengingu við Svartsengi. Af-
notaleyfi Vegagerðarinnar
liggur fyrir. Við Stapa-
fellsveg tengist ljósleiðarinn
inn á annan leiðara sem
þegar hafði verið lagður fyrir
Reykjanes og að Grindavík.
Skipulagsfulltrúi hefur gefið
út framkvæmdaleyfi og óskar
staðfestingar. Umhverfis- og
skipulagsráð hefur samþykkt
framkvæmdaleyfið.
Opið fyrir tilnefningar á heið-
ursborgara Reykjanesbæjar
Reykjanesbær hefur ákveðið að útnefna heiðursborgara á hátíðar-
fundi bæjarstjórnar sem fram fer á 30 ára afmælisdegi sveitar-
félagsins þann 11. júní næstkomandi.
Óskað er eftir tilnefningum frá
starfsmönnum, bæjarbúum og
öðrum áhugasömum aðilum á
netfangið heidursborgari@reykja-
nesbaer.is fyrir 1. júní 2024.
Auk nafns, kennitölu og heimil-
isfangs þeirra sem tilnefnd eru þarf
að fylgja ítarlegur rökstuðningur
ásamt upplýsingum um sendanda.
Útnefning heiðursborgara
Reykjanesbæjar tekur mið af
störfum viðkomandi einstaklings í
þágu Reykjanesbæjar eða afrekum
í þágu lands og þjóðar. Er sérstak-
lega litið til þess hvort störf við-
komandi hafi haft veruleg jákvæð
áhrif á samfélagið.
Nýja íþróttahúsið við Stapaskóla tilbúið í lok júlí
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar heimsótti nýja íþróttahúsið við
Stapaskóla á dögunum. Húsið á að vera tilbúið ásamt sundlaugarsvæði í lok júlí.
„Um er að ræða glæsilega aðstöðu sem mun nýtast vel í kröftugu íþrótta- og
lýðheilsulífi Reykjanesbæjar,“ segir í fundargerð ráðsins.
4 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum