Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.05.2024, Page 21

Víkurfréttir - 23.05.2024, Page 21
konunum en fyrsta sæti í mínum aldursflokki. Keppnin er ekki tæknilega flókin, helmingurinn af henni er hlaup, eða ganga, og þ.a.l. nær hún til margra og er rosalega flott áskorun. Hægt er að keppa í ein- staklings-, para- og liðakeppni. Það er mjög hvetjandi að hafa markmið í að auka þrek sitt og þol. Ég vil hvetja fólk til að einblína minna á kíló og sentimetra þegar stefnt er að bættri heilsu, spurðu sjálfan þig frekar hvað getur þú gert í dag og hvað langar þig til að geta gert síðar varðandi þol, styrk og liðleika. Þegar þú nærð árangri í þessum þremur þáttum þá er mjög lík- legt að kílógrömm og sentimetrar verða ekki aðal fókusinn. Þegar þú keppir í Hyrox getur þú séð heildarárangur þinn og árangur í hverri grein fyrir sig og borið hann saman við alla sem keppt hafa í Hyrox og þinn eigin tíma ef þú hefur keppt áður. Þú keppir með flögu sem gefur þér splitttíma á hverri grein fyrir sig (splitttími er tíminn frá því að keppandi fer út úr hlaupabrautinni til að gera æfingu og þar til hann fer aftur út á hlaupabrautina). Þetta er mjög hvetjandi og fær þig til að setja markið hærra.“ Hvernig er það, nú hafið þið Fimm fræknu verið ansi lengi í svona kraftakeppnum, er það ekki? „Já, við erum flestar búnar að vera að síðan í kringum 2000 en þá byrja eiginlega þessar þrek- keppnir á Íslandi. Við kepptum í Þrekmeistaranum á Akureyri tvisvar á ári og svo kom Þrekmóta- röðin í framhaldi af því sem var fjórum sinnum á ári, síðan hætti Þrekmeistarinn en Þrekmótaröðin hélt áfram. Svo misstu þeir eitthvað dampinn með Þrekmótaröðina og hún hætti 2017 minnir mig. Þá stendur maður allt í einu uppi með það að vera búin að þrífast á svona keppnum í þetta langan tíma og þurfa að leita annað. Bretar eru kolgeggjaðir í alls- konar svona keppnum og þeir hafa t.d. tekið Hyrox upp á næsta „level“. Það er kjaftfullt í allar keppnir hjá þeim og selst jafnvel upp í mótin samdægurs. Nú við vildum keppa meira og ég hafði verið í sambandi við fólk sem ég hafði kynnst árið 2007 þegar ég keppti í Dubai út á þann árangur sem ég hafði náð í mótum hér heima. Við fórum svo að taka þátt í minni keppnum úti í Bretlandi svona tvisvar á ári. Síðan kom Covid og allt hrundi niður en þá sá ég að einn af þessum Bretum sem ég var búin að kynnast tók þátt í einhverju sem heitir Hyrox. Nú, ég sendi honum póst og spurði hvort þetta væri ekki eitthvað fyrir mig. „Jú, þú yrðir geðveikt góð í þessu. Þetta er svo mikið hlaup og svo æfingar inn á milli. Þú ættir að kíkja á þetta.“ Það var 2021 sem ég sé þetta fyrst en þá var Covid í gangi svo þá gat maður ekki farið af stað. Við fórum svo allar 2022 og þrjár okkar unnu sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótið 2023, Ásta Katrín Helgadóttir og Árdís Gísla- dóttir í parakeppni 50–59 ára og ég í fer inn sem einstaklingur, það voru meira að segja tveir aðrir Íslendingar sem kepptu á heims- meistaramótinu í fyrra. Núna erum við aftur búnar að vinna okkur réttinn til að keppa í HM Hyrox 2024 og förum til Nice núna í júní þar sem ég er að fara í einstaklings- keppnina og þær keppa í para- keppni 60+. Síðan bættust tvö við núna. Jóhanna Júlía Júlíusdóttir, CrossFit-stelpa sem hefur verið mjög framarlega hér á Íslandi og á m.a. Íslandsmetið í armbeygjum sem hún setti í Skólahreysti og enginn hefur getað slegið, held að það hafi verið 177 armbeygjur eða einhver sturluð tala. Hlauparinn Sigurjón Ernir Sturluson hefur líka tryggt sér sæti svo við verðum líklegast fimm héðan frá Íslandi á heimsmeistaramótinu í ár.“ Þú ert að þjálfa uppi í Sporthúsi, er þetta þá ekki næsta námskeið sem verður sett á laggirnar? „Það gæti alveg verið, þetta er spurning hvort maður hafi tíma,“ segir Kristjana og hlær. „Nei, ef þau fara af stað þá mun ég að sjálfsögðu hjálpa til við að draga vagninn. Ég er núna með námskeið í Sport- húsinu sem heitir Heilsurækt fyrir konur en það er mjög gefandi að hvetja fólk áfram í að efla heilsu sína. Fólk sér ekki alltaf sjálft styrk- leika sína og því er ég ófeimin við að benda fólki á þá því allir geta eitthvað það er nokkuð ljóst. Það skiptir miklu máli að fá hvatningu og hún getur svo sannarlega komið þér lengra. Það kostar ekkert að hvetja aðra áfram en það gefur svo ótrúlega mikið.“ Að æfa þessa íþrótt krefst ekki mikils tækjabúnaðar en þegar maður er farinn að keppa er þetta þá ekki farið að kosta eitt- hvað, að maður tali ekki um þegar verið er að keppa erlendis? „Auðvitað er kostnaður á bak við ferðalög og keppnir en það má flétta saman keppnir og skemmtun í góða helgarferð. Þetta er val og ég vel að fara í keppnisferðir ef ég hef kost á því. Við erum margar í mínum ald- ursflokki sem erum ansi góðar en maður þarf að halda sér á tánum til þess að geta verið í fremstu röð. Um leið og hlutirnir eru orðnir stærri þá fara fleiri gamlir íþrótta- menn að detta inn í þetta og því mun Heimsmeistaramótið í ár vera mun sterkara en í fyrra. Ég varð í öðru sæti á Heimsmeistaramótinu í fyrra og stefni ég að sjálfsögðu á pall á ný. Það er erfiðara aðgengi okkar hér frá Íslandi að sækja keppnir miðað við t.d. vini mína sem búa í Bretlandi eða Þýskalandi en þeir geta auðveldlega stokkið upp í bíl eða lest og keppt víðsvegar án mikillar fyrirhafnar. Maður væri alveg til í að vera í þeirra stöðu því auðvitað kemur keppnisreynsla manni líka lengra áfram.“ Þegar Kristjana er spurð hver sé hennar bakgrunnur í íþróttum segist hún hafa verið handbolta- kona. „Ég var í marki. Kona sem nennti ekki að hlaupa, fannst það hundleiðinlegt,“ segir hún og hlær að hugmyndinni. „Ég spilaði fyrst með Reyni Sandgerði, síðan með Keflavík en svo fór ég í Íþrótta- kennaraskólann á Laugarvatni og lék þá með Selfossi. Þegar ég kom svo til baka var búið að leggja meistaraflokkinn í Keflavík niður. Þá fóru nokkrar í FH en áhuginn var einhvern veginn farinn hjá mér. Þá lá leiðin í ræktina og byrjaði ég eiginlega strax að kenna í líkamsræktarstöðinni Perlunni. Ég kenndi í nokkur ár í Perlunni en fór svo yfir í Lífsstíl og þegar ég var komin þangað byrjaði þetta þrekmótadæmi hjá mér.“ Spennufíkn „Mér hefur alltaf þótt gaman að keppa en mér þótti ekki alltaf jafn gaman að æfa fyrir keppnir. Þegar ég var í handboltanum bjó ég ekki yfir þeim aga sem ég bý yfir í dag en það breyttist þegar ég fór að keppa í þrekmótum. Ég var ekkert endilega að nenna að leggja neitt aukalega á mig, ég var í úrtakshóp fyrir landsliðið í handbolta en komst ekki lengra en það því mig vantaði klárlega að átta mig á því að þú þarft að leggja á þig auka- æfingu til að skara fram úr. Þegar þrekmótin fóru að detta inn byrjaði ég að hlaupa, lyfta og taka ábyrgð á sjálfri mér og mínum árangri. Ég byrjaði að keppa í liða- keppnum og fór svo að bæta við parakeppni með Vikari Sigurjóns- syni ásamt því að keppa sem ein- staklingur. Stundum keppti maður í þremur keppnum sömu helgi. Þetta eru mjög ólíkar keppnir og reyna á þig á ólíkan hátt. Ég var líka dugleg að taka þátt í hinum ýmsu hlaupum en sá grunnur hefur hjálpað mikið í Hyrox-keppnunum í dag. Ég fæ mikla útrás í þessum keppnum en það er svo gaman að sigrast á einhverju og þá sérstak- lega á sjálfum sér. Sumum finnst leiðinlegt í ræktinni en mér finnst aldrei leiðinlegt því þegar þú ert að vinna að ákveðnu marki þá er það svo mikill drifkraftur sem keyrir mann áfram. Það er spennan, þetta er hálfgerð spennufíkn.“ Kristjana segir að það sé tvennt ólíkt að æfa einn eða í hóp en það sé gott að vera sjálfstæður. „Að geta farið sjálfur og tekið æfingu óháð öðrum er nauðsynlegt en það er náttúrulega ofboðslega gott að eiga góða að og ég er svo heppin með að eiga frábæra æfingafélaga. Ég segi alltaf að þetta eru einstakar konur og við erum ótrúlega staðfastar. Við mætum oftast alla morgna nema sunnudaga, þá leyfum við okkur að gera eitthvað annað. Annars mætum við sex daga vikunnar og það er ekkert „ég nennti ekki“ eða „ég ákvað að sofa aðeins lengur“. Þú mætir bara, þetta er eins og að bursta tennurnar. Félagsskapurinn hefur auðvitað mikið að segja, það er bara þannig,“ sagði kraftakonan að lokum. Tilnefning heiðursborgara Reykjanesbæjar Reykjanesbær hefur ákveðið að útnefna heiðursborgara á hátíðarfundi bæjarstjórnar sem fram fer á 30 ára afmælisdegi sveitarfélagsins, þann 11. júní næstkomandi. Óskað er eftir tilnefningum frá starfsmönnum, bæjarbúum og öðrum áhugasömum aðilum. Tilnefningarnar þurfa að innihalda eftirfarandi upplýsingar: • Nafn viðkomandi einstaklings ásamt ítarlegum upplýsingum. • Ítarlegur rökstuðningur fyrir tilnefningunni. • Upplýsingar um sendanda tilnefningarinnar. Útnefning heiðursborgara Reykjanesbæjar skal taka mið af störfum viðkomandi einstaklings í þágu Reykjanesbæjar eða afrekum í þágu lands og þjóðar. Sérstaklega verður litið til þess hvort störf viðkomandi hafi haft veruleg jákvæð áhrif á samfélagið. Senda skal tilnefningar á heidursborgari@reykjanesbaer.is fyrir 1. júní næstkomandi. Sumum finnst leiðinlegt í ræktinni en mér finnst aldrei leiðinlegt því þegar þú ert að vinna að ákveðnu marki þá er það svo mikill drifkraftur sem keyrir mann áfram. Það er spennan, þetta er hálfgerð spennufíkn ... VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum // 21

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.