Víkurfréttir - 23.05.2024, Qupperneq 24
Mundi
Verður Vatnsnesið
Manhattan Reykjanesbæjar?
Vertu velkomin(n) til okkar!
Elmar verslunarstjóri og Bryndís taka vel á móti þér og veita þér
faglega ráðgjöf fyrir málningarverkefnið þitt.
Reykjanesbær hefur lagt fram
vinnslutillögu um breytingu
aðalskipulags svæðis M9 Vatns-
ness unnið af Kanon arkitektum
og VSÓ Ráðgjöf, sem dagsett er
maí 2024.
Meginbreyting er að heildar-
fjöldi íbúða verður 1250 á svæðinu
og heildarbyggingarmagn verður
185.000 fermetrar. Einnig er
ákvæðum breytt í almenna kafl-
anum varðandi leyfisskylda starf-
semi á miðsvæðum.
Umhverfis- og skipulagsráð
Reykjanesbæjar hefur jafnframt
veitt heimild til að auglýsa vinnslu-
tillöguna.
Atvinnuhúsnæði fyrir 100
starfsmenn rís við Aðaltorg
Sótt hefur verið um bygg-
ingarleyfi fyrir verslunar- og
skrifstofuhúsi að Aðalgötu 62
í Keflavík við svokallað Aðal-
torg.
Á fyrstu hæð er matvöru-
verslun og sérverslanir en á
annarri hæð er skrifstofustarf-
semi og tannlæknastofur. Vöru-
aðkoma er á norðurhluta lóðar
og aðstaða fyrir sorpgáma er
í yfirbyggðu porti við norður-
hluta byggingar. Áætlaður fjöldi
starfsmanna í matvöruverslun er
tíu, í sérverslunum sex, á tann-
læknastofu fimmtán og í skrif-
stofurýmum sjötíu manns.
Byggingaráformin eru sam-
þykkt en erindið uppfyllir gild-
andi skipulagsskilmála.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
samþykkt að veita körfuknatt-
leiksdeild UMFN styrk upp á
fimm milljónir króna, sem er
sambærilegur styrkur og veittur
var körfuknattleiksdeild Kefla-
víkur. Styrkurinn er veittur
vegna rekstrarvanda félagsins.
Við afgreiðslu málsins ítrekaði
bæjarráð fyrri ákvörðun um að
veita ekki styrk vegna forsendu-
brests vegna íþróttahússins við
Stapaskóla.
Beiðni Körfuknattleiksdeildar
UMFN um fjárstuðning var tekin
fyrir á fundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjanesbæjar 14.
maí. Hámundur Örn Helgason,
framkvæmda- og íþróttastjóri
UMFN, og Ágústa Guðmarsdóttir,
fjármálastjóri UMFN, fylgdu úr
hlaði erindi körfuknattleiksdeildar
UMFN. Þau gerðu grein fyrir fjár-
hagsstöðu körfuknattleiksdeildar
sem er afar erfið og hefur aðal-
stjórn UMFN þurft að lána deild-
inni fé á undanförnum mánuðum.
Íþrótta- og tómstundaráð tók
undir áhyggjur félagsins en segist
í afgreiðslu ekki geta orðið við er-
indinu sökum þess að það er ekki á
fjárhagsáætlun ráðsins. Því var því
vísað til bæjarráðs.
1.250 íbúðir
verða byggðar
á Vatnsnesi
Aðaltorg í Reykjanesbæ.vf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
n Veita ekki styrk vegna forsendubrests
Styrkja körfuknattleik í Njarð-
vík um fimm milljónir króna