Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.06.2024, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 26.06.2024, Blaðsíða 14
„Það var frábært að ná að landa þessum sigri og vera handhafi tveggja stærstu titlana á Íslandi. Ég lék vel í öllu mótinu en var þó ekki alveg á boltanum á fyrstu brautunum í úrslitaleiknum. Það small svo allt í gang á áttundu braut og ég lék frábært golf eftir það sem skilaði mér sigri,“ segir Logi Sigurðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja en hann varð Íslandsmeistari í holukeppni eftir sigur í úrslitaleik á móti Jóhannesi Guðmundssyni (Golfklúbbi Reykjavíkur). Mótið fór fram á Garðavelli á Akranesi um síðustu helgi en lauk á mánudag. Í holukeppni er leikin útsláttar- keppni og þurfti Logi að hafa betur gegn fjórum kylfingum í holu- keppni en fyrsta keppnisdaginn var leikin 36 holu höggleikur. „Það voru margir jafnir og spennandi leikir. Holukeppnin er skemmtileg og góð tilbreyting frá höggleiknum sem við leikum alltaf nema í þessu móti,“ sagði Logi. Logi varð Íslandsmeistari í högg- leik á síðasta ári en það er stærsta mót ársins. Íslandsmót í holu- keppni er annað stærsta mótið og Logi vildi ná þeim titli líka og er því handhafi tveggja stærstu titlana en Íslandsmótið í höggleik fer fram á Hólmsvelli í Leiru, heimavelli Loga, 18.–21. júlí í sumar. „Það er auðvitað markmiðið að verja titilinn og ég hlakka mikið til mótsins. Ég er á heimavelli og þekki völlinn auðvitað mjög vel, búinn að vera þar nánast frá því ég byrjaði í golfi.“ Hvernig muntu undirbúa þig fyrir það mót? „Ég er að leika gott golf og í góðum gír. Þekki völlinn auðvitað mjög vel og mun huga vel að leik- skipulagi sem maður þarf að hafa en númer eitt er auðvitað að vera vel á boltanum og huga að eigin leik. Samkeppnin er hörð og ég þarf að leika mitt besta golf til að verja titilinn.“ Logi tók þátt í tveimur sterkum áhugamannamótum í St. And- rews í Skotlandi og á Norður- Írlandi rétt áður en hann kom aftur heim til að leika í holu- keppninni á Akranesi. Hvernig gekk það? „Mótin voru á strandvöllum sem eru öðruvísi en við erum vön hér heima. Það vantaði herslumuninn hjá mér að komast lengra en mér tókst að þessu sinni en þetta fer í reynslubankann og ég hlakka til að fá fleiri tækifæri utan land- steinana.“ Logi er þriðji Suðurnesjakylfing- urinn til að sigra á Íslandsmótinu í holukeppni en þetta var í 36. skipti sem það fór fram. Árið 1999 sigraði Helgi Þórisson þegar leikið var á Hólmsvelli í Leiru og félagi hans, Örn Ævar Hjartarson, vann árið 2006 þegar leikið var í Grafarholti. Örn og Logi eru því einu kylfing- arnir frá Suðurnesjum sem hafa hampað tveimur stærstu titlunum. Verji Logi Íslandsmeistaratitilinn í höggleik síðar í sumar verður hann fyrstur til að vera titilhafi tveggja Íslandsmeistaratitila í höggleik í röð og vera titilhafi eins holu- keppnistitils. Logi handhafi tveggja stærstu titlana í golfi Íslandsmeistarinn í höggleik bætti við Íslandsmeistartitli í holukeppni GOLF Páll Ketilsson pket@vf.is Ég er að leika gott golf og í góðum gír. Þekki völlinn auðvitað mjög vel og mun huga vel að leikskipulagi sem maður þarf að hafa en númer eitt er auðvitað að vera vel á boltanum og huga að eigin leik ... Kærastan, Sara Kristinsdóttir, var Loga til halds og trausts á Íslandsmótinu. Sigurpáll Geir Sveinsson, íþróttastjóri GS, var hrikalega ánægður með sinn mann þegar titillinn var í höfn. VF/PKet Jóhann Gunnar Jóhannsson, ellefu ára kylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja, bættist í hóp einherja sem hafa farið holu í höggi á einni erfiðustu braut landsins, Bergvíkinni á Hólmsvelli í Leiru. Hann er sá þriðji sem nær draumahögginu á þessari mögnuðu braut í sumar. Á Bergvíkinni þarf að slá vel yfir hundrað metra á flugi yfir sjóinn og grjótvarnargarðinn svo ekkert nema alvöru golfhögg ratar rétta leið en þúsundir golfbolta hafa endaði í hafinu. Bræðurnir og vinir hans, Eiríkur og Einar, voru með Jóhanni þegar hann sló draumahöggið og fengu þeir verðlaun við hæfi frá Guðmundi Rúnari Lúðvíkssyni, veitingamanni í Leiru, í tilefni dagsins þegar komið var í skála að leik loknum. Ellefu ára fór holu í höggi á einni erfiðustu holu landsins Einherjinn Jóhann Gunnar Jóhannsson með happakúluna fyrir miðri mynd. sport vf.is Úrslit leikja og fréttir birtast á sport

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.