Mímir - 01.05.1984, Qupperneq 13

Mímir - 01.05.1984, Qupperneq 13
mönnum hættir til að líta á allt sem Steinn segir eins og talað út úr hjarta höfundarins, a.m.k. á þeim tíma þegar hann skrifaði bókina. Hallberg segir t.d.: „í Vefaranum beinist svo að segja öll athyglin að Steini Elliða; allt er afstætt persónu hans og á allt er litið frá hans sjónarmiðiV6 Þar að auki snýst sagan um Ieit Steins að lífsviðhorfi og þá liggur beint við að draga þá ályktun að sú niðurstaða sem Steinn kemst að, sé boðskapur sögunnar. Hallberg hefur tengt saman ævi skáldsins og verk hans. Sönderholm fjallar mest um hug- myndir Steins Elliða. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa einblínt á persónu Steins Elliða og lífs- viðhorf hans við túlkun sögunnar. Þegar þeir ræða t.d. um viðhorf til kvenna í sögunni eru þeir fyrst og fremst að tala um viðhorf Steins Elliða. I þessari ritgerð er ætlunin að fjalla um Vef- arann mikla frá Kasmír á nokkuð annan hátt. í fyrsta lagi að athuga frásagnaraðferð til að kanna samband sögumanns og aðalpersónunn- ar, Steins Elliða. í öllum sögum er einhver sem segir frá og má kalla hann söguhöfund eða sögumann (í merkingunni ,,narrator“). Hann fer oft huldu höfði og villir á sér heimildir, en hefur mjög mótandi áhrif á lesandann. Það er misjafnlega auðvelt að finna nálægð sögumanns í hverju verki, en í Vefaranum er hann ekki vandfundinn, ef lesandi hefur augun hjá sér. Mikilvægt er að ákveða ekki fyrirfram að sögu- maður sé Steinn Elliði eða á hans bandi. Annað gæti nefnilega komið í ljós. Náskylt þessu atriði er að skoða persónulýsingu. Annars vegar verð- ur í ritgerðinni fjallað um persónulýsingu Steins Elliða og hins vegar um persónulýsingu Diljár, þeirrar aukapersónu sem mest rúm tek- ur í sögunni. Þar að auki er Diljá helsta kven- persóna sögunnar og í ljósi þess kvenhaturs og hinnar klofnu afstöðu til kvenna, sem áður hef- ur verið minnst á, er fróðlegt að athuga sérstak- lega hvernig henni er lýst og hafa um leið per- sónulýsingu Steins til hliðsjónar. Hugmyndir og lífsviðhorf Steins Elliða er 6 Peter Hallberg: Ve/arinn mikli, II, 1954, bls. 103. ekki nýstárlegt viðfangsefni, þar sem umfjöllun um Vefarann hefur hingað til einkum beinst að þessu. Hins vegar hefur lítið sem ekkert verið minnst á lífsviðhorf Diljár, sem er þó ekki síður athyglisvert, einkum vegna þess að það er algjör andstæða við lífsviðhorf Steins Elliða og veldur hugmyndalegum átökum í sögunni. Hallberg er ljóst að viðhorf Steins og tog- streitan milli þeirra, kemur berlega í Ijós í tengslum við afstöðu hans til kvenna. Sönder- holm segir einnig: „Steinns livssyn kan hele tiden sammenholdes med hans forhold til det andet kön.“7 í þessari ritgerð verður reynt að einþlína ekki þara á viðhorf Steins Elliða til kvenna, heldur athuga þau viðhorf til kvenna sem koma fram í sögunni og sýna fram á, hvemig þau endurspegla andstæð lífsviðhorf. Að lokum verður reynt að bera niðurstöðumar að einhverju leyti saman við seinni verk Hall- dórs Laxness. I. Frásagnaraðferð og persónulýsingar. a) Steinn Elliði Lesendur Vefarans mikla frá Kasmír kynnast Steini Elliða fyrst af afspurn. Það er Diljá, vin- kona hans, sem lýsir honum af heitri hrifningu fyrir fóstru sinni, Valgerði, ömmu Steins: Tók hann kannski ekki heimspekispróf með ágætiseinkunn í vor? Á, var svo? Og hvað sagði þýski prófessorinn, sem Steinn ferðaðist með fyrir norðan í fyrra? Vóru það ekki hans óbreytt orð, að hann hefði ekki komist í kynni við jafn- eldlegar gáfur í öllu Þýskalandi? Eine feurige Begabung, sagði hann við Örnólf, amma mín. Og hvað segja vinir hans, sem margir eru bæði frægir og mentaðir? Þeir dást að honum og trúa á hann ... því hann er svo mikið skáld, svo full- ur af andagift, svo hugkvæmdaríkur og snjall- ur.. .(bls. 10-11) Áður en hann kemur sjáifur til sögunnar er ljóst að mikill ljómi leikur um nafn hans, hann er annálaður fyrir gáfur og hefur á sér það orð að 7. Erik Sönderholm: Halldór Laxness, en monoerafi, 1981, bls. 128. 13
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.