Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 38

Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 38
lo ana ttlj ólhunþiœðuujcv^élacj XslaucÍ9 Tímaritið Vinnan og verkalýðurinn náði tali af Sigurði Runólfssyni mjólkurfræðingi, formanni Mjólkur- fræðingafélags íslands. En Sigurður var einn af aðalhvatamönnum að stofnun félagsins fyrir tíu árum, fyrsti formaður þess og hefur gegnt for- mannsstarfi í félaginu oftar en nokk- ur annar. Við fengum tækifæri til að ræða r.okkra stund við Sigurð í tilefni 10 ára afmælisins. Honum fórust svo orð: „19. nóvember er sennilega hinn rétti afmælisdagur félags okkar, því þann dag fyrir 10 árum komum við nokkrir mjólkurfræðingar saman í skrifstofu Alþýðusambands íslands. Var þar samþykkt að „stofna nú þeg- ar“, eins og segir í fundargerðinni, „stéttarfélag mjólkurfræðinga og væntanlegri stjórn félagsins falið að sækja um upptöku í Alþýðusamband íslands f.h. félagsins. A fundinum var kosin þriggja manna nefnd til að semja lagaupp- kast fyrir framhaldsstofnfund. Og í þá nefnd voru kosnir Sigurður Run- óífsson, Skúli Bergstað og Guðmund- ur Guðmundsson. Þá var kosin þriggja manna nefnd til að semja uppkast að kjarasamningi og í hana kjörnir: Sig- urður Runólfsson, Ólafur Jónsson og Börge Hillers. Eftir nýárið 1946 var svo haldinn framhaldsstofnfundur og þá var kosin félagsstjórn. Hana skipuðu Sigurður Runólfsson formaður, Malling Andr- easen r'itari og Skúli Bergstað gjald- keri. Áður en mjólkurfræðingar félags- bundust voru kjör þeirra afar bág, en mér óhætt að segja. Þegar ég kom 1939 til landsins, eftir fjögurra ára nám í Danmörku, höfðu mjólkurfræð- ingar, með fjögurra ára nám erlend- is, sömu kjör og menn, sem engan slíkan lærdóm höfðu kostað upp á sig'. Yfirvinnugreiðsla þekktist vart og vinnuvaktir voru 10—11 tímar á dag að jafnaði. Orlof var yfirleitt ekki um að ræða. Fyrstu samningar, sem félagið nær fram, eru gerðir 19. desember eða á eins mánaðar afmæli félagsins. Þá samninga man ég ekki í einstökum atriðum, en aðal vinningurinn við þá samninga var viðurkenning fé- lagsins'sem samningsaðilja. Upp frá því hefur félagið gert all marg'ra kjarasamninga og jafnan sótt Fyrsta stjórn Mjólkurfræð- ingafélags íslands: Frá vinstri: Skúli Bergstað, gjaldkeri, Sig- urður Runólfsson, formaður, Malling Andreasen, ritari. 200 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.