Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Síða 21
VÍMAN
og verhaiýðurinn
Útgefandi: Útgáí'uí'élag alþýðu h.f. — Okt. Des. 1955 — 5.—6. tbl. — 5. árg.
Ritstjóri: JÓN RAFNSSON. Ritnefnd: TRYGGVI EMILSSON tilnefnclur af Vcrkamanna-
félaginu Dagsbrún, BJÖRN BJARNASON tilnefndur af Iðju, félagi verksmiðjufólks,
ANNA GESTSDÓTTIR tilnefnd af A. S. B., FINNBOGI JÚLÍUSSON tilnefndur af
Félagi blikksmiða.
HALLDÓR KILJAN LAXNESS:
í LANDSÝN
Eg skildi við þig, úng í alvaldsgeim
mín ættjörð, hvar þú gnæfðir björt úr mar,
kvaddi þann leir sem þekkir spor mín þar
og þjóðin treður enn: Farvel og gleym!
Farmanni kátum sól á söltum brám
úr suðri Ijómar. Hýr við disk og skál
í syðri löndum lærði eg fjarskyld mál,
eg las þar aldin sæt af grænum trjám.
En þá var sál mín þar sem holtið grátt
og þúfan mosarauða býr við kal,
og bæarfjallið blasir yfir dal,
og berst í kvíða þjóðarhjartað smátt.
Og þá fanst mér sem þessi nakta strönd
og þetta hjarta væri brjóst mitt sjálft,
og líf mitt án þess hvorki heilt né hálft,
— og heimfús gestur kvaddi eg önnur lönd.
Sjá fjöll mín hefjast hvít sem skyr og mjólk
úr hafi, — gnoðin ber mig aftur heim
á vetrarmorgni —, af þiljum lieilsa eg þeim:
þú ert mitt Iand og hér em eg þitt fólk.
r--------------------- N
EFNI:
A.K.: Frá tjörninni,
forsíðumynd.
Halldór Kiljan Laxness:
í landsýn, kvæði.
Bjöm Bjarnason: Af al-
þjóðavettvangi.
Alþjóðasamtökin og við,
forystugrein.
Eggert Þorbjarnarson, Brýn-
asta hagsmunamálið.
Jón Jóhannesson: Ameriskur
hershöfðingi í Kóreu
1952, ljóð.
Einar K. Freyr: Gifting,
saga.
Úr austri og vestri.
Vísnabálkur.
Mjólkurfræðingafélag ís-
lands 10 ára.
Félag blikksmiða í Reykjavík
20 ára.
Verkalýðsfélög og alþýðu-
lýðræði.
Adda Bára Sigfúsdóttir:
Kvenþjóðin og kaup-
gjaldið.
Góðra ntanna getið.
Kaupskýrslur o. fl.
>_______________________________y
VINNAN og verkalýðurinn
183