Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 36

Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 36
r k. Ur austri og vestri J Hér koma nokkrar tölur, sem segja sína sögu um þróun skóla- og menntamála í Sov- étríkjunum: 1914, á dögum keisaraveldisins, sóttu alls 7,9 milljónir barna byrjunar- og miðskóla í öllu landinu. Árið 1937 sóttu í Sovétríkjun- um barna og miðskóla 29,6 milljónir, árið 1940 sóttu þessa skóla 49 milljónir og 52 milljónir 1952. Svo þetta sé nánar sundurlið- að samkvæmt skýrslum sóttu miðskólana 700.000 nem. árið 1914 í Rússlandi keisar- anna, en undir sovétskipulaginu 14.8 millj. 1940, en 21.4 milljónir árið 1943. 1914 stunduðu nám í háskólum Rússlands keisaranna 117.000 stúdentar. En 1940, undir sovétskipulaginu 812.000. Og árið 1953 var talan komin upp í 1.562.000 Fjölgunin held- ur áfram. ★ „í dag eru amerísk börn, borið saman við evrópísk börn á sama aldri, heilsufarslega ver á sig komin heldur en þau evrópisku“, segir dr. Hans Kraus við háskólann í New York. Þessi niðurstaða er fengin eftir rannsókn á 40 þúsund börnum og unglingum. Þannig hafa aðeins 7% evrópískra barna verið dæmd óhæf til leikfimiiðkana á móti 56% hinna amerísku barna, er prófuð voru. ★ VlSNA Jónan Jónasson frá Hofdölum, sem er lesendum ritsins gamal- og góðkunnur af kvæðum sínum og vísum, sendir nú Vinnunni og verkalýðnum vísnabálka og frá- sagnir af nafna sínum Jónasi Jón- assyni frá Torfmýri í Skagafirði. Að þcsr.u sinni birtum við þann hlutann, sem fjallar um viðskipti þeirra Jónasar frá Torfmýri og Síntonar Dalaskálds. „Jónas Jónasson frá Torfmýri var nafnkunnur hagyrðingur í Skaga- firði fyrir og eftir síðustu aldamót. Jónas var tæplega meðalmaður á hæð en all þrekinn. Höfuðstór langhöfði. Augun gráblá, í stærra lagi og leiftrandi. Ekki var hann margmáll, en talaði fagtirt mál og viturlegt. Eftir hann er þessi alkunna vísa: Sólin þaggar þokugrdt þerrar sagga úða. Fjólan vaggar kolli kát klædd i daggar skrúða. Jónas bjó alllengi í Torfmýri í Blönduhlíð, með konu þeirri er Sigriður hét. Hún var ekkja. Frá Torfmýri fluttust þau Sigríður að Dýrfinnustöðum. Þá bjó á Syðri- Hofdölum Ingibjörg ckkja Guð- mundar Péturssonar. Hún var greind konti og skemmtileg. Hófst fljótlega kunningsskapur með Jónasi og henni, og svo fór að lok- um, að Jónas flutti til hennar að | Hofdölum og þar dó hann eftir í nokkur ár. Jónas var ölkær en j tilfinningamaður, og þó dulur. 198

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.