Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Síða 51

Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Síða 51
voru 150 lifandi kýr, svo vandinn var ekki annar en velja þá réttu Elsu úr hópnum. Það ætlaði þó ekki að ganga slysalaust. Þeirri fyrstu, sem kjörin var, vísaði áróðursstjórinn af- dráttarlaust á bug og lét fylgja þá athugasemd, að hún liti út „eins og innflytjandi''. Loks varð fyrir val- inu kýr af ,,jersey“-kyni, sem fram að þessu hafði gengið undir nafninu ,,LobeLía“, en var nú dubbuð upp með grænni á- breiðu, sem nafnið Elsa var saumað í með silkiþræði. Elsa var leidd inn á risa- stóran bás, er byggð- ur hafði verið sér- staklega handa henni; í rauninni heilt hús. Þar var að sjálfsögðu snyrti- borð, og það af veggjunum, sem ekki var úr spegil- gleri, skreytt lands- lagsmyndum. Sam- kvæmt upplýsingum er stjórn mjólkur- hringsins gaf sendi- nefnd bandarískra dýravina áttu mynd- irnar að firra Elsu þunglyndi og heim- þrá. Dýravinirnir sneru ánægðir heim á leið, og auglýsinga- sérfræðingar mjólk- urhringsins sýndunú, svo ekki varð um villzt, að þeir þekktu sinn vitjunartíma. — Elsa tók á móti gestum á „Hótel Roosevelt", en þar var hún leidd inn í einn af borðsölun- um. Elsa var heiðursgestur á ára- mótadansleik einnar af herdeildum Þjóðvarðarins. Elsa lék í kvikmynd, sem tekin var í Hollywood, með Kay Frances í öðru aðalhlutverkinu, o. s. frv., o. s. frv. í fjarveru Elsu frá heimssýningunni reyndu menn að láta aðra kú troða upp í hennar stað, en sýningargestir upp- götvuðu fljótt oð brögð voru í tafli. Því glappaskoti var þó snúið upp í sigur, er eitt gáfnaljós auglýs- ingadeildarinnar fékk þá hugmynd að leiða nautið Elmar inn á tóman bás Elsu, sem einmitt þá var á opinberu ferðalagi ..... Sýningargest- irnir tóku með mikl- um fögnuði þeim tíð- indum, að Elmar væri eiginmaður Elsu, og gætti heim- ilisins í fjarveru hennar. Sá almenni fögnuður náði vissu- lega hámarki sínu þegar þetta banda- ríska fyrirmyndar fjölskyldulíf bar þann ávöxt, að Elsa eignaðist kálf, er gef- ið var nafnið Beulah. Á þessu var þó einn meinbugur, sem að- standendur Elsu létu liggja í þagnargildi, enda þótt þeir hugg- VINNAN og verkalýðurinn 213

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.