Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Síða 47
Gifting . . .
Framhald af bls. 196.
Um kvöldið heimsótti hún Hörpu.
Móðir hennar, Sigurbjörg, tók á móti
henni í dyrunum og hjálpaði henni
úr kápunni. Harpa og Sigurjón voru
í stofunni. Sigurbjörg færði þeim
kaffi og yfir því hófust fjörugar sam-
ræður.
Ætlar þú ekki að verða járnsmíða-
meistari? spurði Halla.
Nei, sagði Sigurjón, ég verð senni-
lega gerður að verkalýðsforingja.
Það er ágætt, ekki veitir af að
sporna við dýrtíðinni eða reyna að
hækka kaupið, sagði Halla.
Kaupið er allt of hátt, sagði Sigur-
]ón og vitnaði í ótal blaðagreinar úr
því sauðahúsi, sem hann þekkti sig
bezt í.
Það er rétt, sem Halla segir, sagði
Sigurbjörg og talaði út frá sinni
eigin lífsreynslu. Þau hættu að tala
um dýrtíðina og verkalýðsmál. Og
það var talað um náungann það sem
eftir var kvöldsins.
Sex vikum síðar fór Halla aftur
til spákonunnar. Hún fór gangandi,
henni datt ekki í hug að fara í strætis-
vagni. Jólahátíðin var í nánd. Frost
hafði staðið í nokkra daga svo að
þeli komst í jörð. Það var dásamlegt
að ganga úti í slíku veðri og hugsa um
þá framtíð, sem forlögin höfðu ætlað
henni og vera á leiðinni til spákonu
til þess að fá staðfestingu á þessari
dásamlegu, óhjákvæmiiegu framtíð...
Þetta verður jólasnjórinn, hugsaði
hún og gerði sér beztu vonir um jól-
in og framtíðina. Hún leit í kringum
sig og dáðist að fegurð vetrarríkis-
ins. Allt var á kafi í snjó, götur og
garðar, holt og hæðir, heiðardrög og
hálsar og svo fjallahringurinn hvít-
blár. Hvílíka fegurð höfðu forlög'in
ekki valið henni þetta milda kvöld
til þess að mæta hjá spákonunni?
Já, og hvílíkur himinn? Stjörnumergð
lýsti upp hreina mjöllina.
Halla vildi fá að vita allt um fram-
tíð sína. Og spákonan lagði spilin á
borðið og sagði:
Nú, það er svona?
Já, ég er ófrísk, en sjáið þér ekki
meira? sagði Halla og vonaðist eftir
einhverjum nýjum boðskap af for-
lögunum. Og það var eins og spá-
konan skildi hana og hún sagði aðeins
þetta:
Nei? Gifting?
Þar með var heimsókn Höllu til
spákonunnar lokið. Og spákonan
stokkaði spilin.
S K 3 N F Á X 9 H.F.
Klapparstig 39
Simi 6484
Raímagnsiðnaður
é----------------------
VINNAN og verkalýöurinn
209