Fjarðarfréttir - 04.07.2024, Blaðsíða 11
www.fjardarfrettir.is 11FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2024
Ert þú með áhugaverða hugmynd
að starfsemi í Hellisgerði?
Hellisgerði er 100 ára gamall lystigarður í miðbæ
Hafnarfjarðar með mikil tækifæri fyrir einstaklinga, fyrirtæki
eða hópa sem vilja búa til rekstur og skapa upplifun
og ævintýri á einstökum stað. Hafnarfjarðarbær leitar
eftir samtali við alla áhugasama um mögulegan rekstur
Oddrúnarbæjar og tækifærin í garðinum allt árið um kring.
Deildu draumum þínum með okkur
Hugmynd skal fylgja greinargerð sem útlistar hugmynd
að starfsemi, sérstöðu út frá vöru og/eða þjónustu ásamt
upplýsingum um bakgrunn, færni og reynslu þess sem
áhugasamur er um tækifærið. Tekið er á móti hugmyndum til og
með 12. ágúst í gegnum netfangið: menning@hafnarfjordur.is.
Hægt er óska eftir ítarlegri upplýsingum
og bóka skoðun á fasteign hjá þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar í gegnum netfangið:
hafnarfjordur@hafnarfjordur.is eða síma:
585-5500.
Hús og garður tækifæranna
í Hellisgerði
hfj.is/HugmyndHellisgerdi
Nánar:
Kaldáin er nú algjörlega vatnslaus og
ekkert kemur úr upptökum hennar í
Kaldárbotnum. Þetta gerist reglulega
þegar grunnvatnsstaða lækkar en
Hafnarfjarðarbær og Reykjavíkurborg
dæla köldu vatni úr sama vatnsgeym
inum. Þegar saman fer mikil notkun og
náttúrulega lækkun á grunnvatnsstöðu
flæðir ekkert vatn upp úr jörðu í
Kaldárbotnum skammt frá Kaldárseli.
Jafnframt hefur lækkað í Hval
eyrarvatni og þó ekkert hafi verið
staðfest um ástæðu þess þá hafa menn
tekið eftir að lækkun í Hvaleyrarvatni
fer saman með minnkun á rennsli í
Kaldánni.
Ýmsir mælar vakta grunn
vatnsstöðuna en þegar þetta er skrifað
hefur blaðið ekki vitneskju um það
hvort þetta hafi áhrif á vatnsrennsli
neðanjarðar til sjávar sunnan Hafnar
fjarðar.
Farvegur Kaldár alveg vatnslaus
Grynnkar í Hvaleyrarvatni og líklega tengjast þessi tvö vatnasvæði
Frábær leikur fyrir alla fjölskylduna
27 ratleiksstaðir vítt og breitt um bæjarlandi.
Stendur til 24. september
Ratleikur
Hafnarfjarðar
ratleikur.fjardarfrettir.is
Frítt ratleikskort
Kortin fást á sundstöðum, Bókasafninu, Fjarðarkaupum,
ráðhúsinu, N1 og víðar — Þeim fer fækkandi!
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Myndin er tekin inn fyrir vatns-
verndar girðinguna og eins og sjá má
rennur ekkert vatn í farvegi Kaldár