Fjarðarfréttir - 04.07.2024, Blaðsíða 12

Fjarðarfréttir - 04.07.2024, Blaðsíða 12
12 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2024 Bæjastjórn samþykkti á fundi sínum 19. júní sl. kaup á 1.668 m² húsnæði á 2. hæð í Firði fyrir rúmlega 1,1 milljarð króna. Húsnæðið er bæði í nýbyggingunni og í núverandi Firði en miklar breyt­ ingar verða gerðar á niðurröðun versl­ ana í Firði. Hafnarfjarðarbær kaupir um 1.118 m² í eldri byggingunni og um 550 m² í nýbyggingunni. Kaupverðið er 1.115.374.630 kr. eða um 668.570 kr. á m². Greiðir kaupandi. 100 milljónir kr. við samþykkt tilboðs, 338,5 milljón kr. við undirritun kaup­ samnings, 338,5 milljón kr. 6 mánuðum síðar og 338,5 milljón kr. við undirritun afsals. Eignin afhendist eigi síðar en 15. febrúar 2026 en kaupsamningur verður gerður eigi síðar en 1. febrúar 2025. Endanlegt kaupverð tekur breytingum til hækkunar miðað við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar. Við leitum að leiguhúsnæði í Hafnarfirði fyrir starfsemi Leikfélags Hafnarfjarðar Húsnæðið getur verið af ýmsum toga en þarf að geta rúmað litlar leiksýningar með u.þ.b. 40 áhorfendum. Að auki þarf a.m.k. eitt minna rými, geymslu og salerni. 3ja fasa rafmagn. Tekið er á móti hugmyndum, tilboðum og framboði í netfangið: leikfelag@gmail.com Leikfélag Hafnarfjarðar er áhugaleikfélag, opið öllum sem hafa áhuga á að iðka leiklist. Félagið býður upp á námskeið og leiksýningar, höfundasmiðju og félagsstarf af ýmsum toga. Sveindís Anna Jóhannsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Hafnarfjarðar. Tók hún við af Önnu Guðnýju Eiríksdóttur sem sinnti starfinu frá stofnun. Sveindís var framkvæmdastjóri hjá Félagsráðgjafafélagi Íslands en er einnig vel kunnug endurhæfingarþjónustu. Hún hefur m.a. starfað áður hjá Starfsendur­ hæfingu Hafnarfjarðar, Samvinnu starfs­ endurhæfingu á Suðurnesjum og Reykja­ lundi en þar starfaði hún sem for­ stöðufélagsráðgjafi. Sveindís er félags­ ráðgjafi með MA próf og sérfræðileyfi í félagsráðgjöf á heilbrigðissviði ásamt því að vera menntaður handleiðari og sátta­ maður. STARFSEMI SEM HEFUR VAXIÐ OG DAFNAÐ Upphaflega var starfsendurhæfingin hugsuð sem nær þjónusta fyrir íbúa Hafn ar fjarðar, eins og nafnið gefur til kynna. Fljótlega þróaðist starfsemin þó þannig að þjónustan stendur öllum íbúum höfuð borgar svæðisins til boða. Frá upphafi hefur starfsemin verið fjármögnuð af þjón ustugjöldum, fyrstu þrjú árin frá rík inu, en síðan í vaxandi mæli frá Virk starfs endurhæfingarsjóði, sem er helsti og mikilvægasti sam starfs­ aðili Starfsendur hæfingar Hafnarfjarðar. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og Vinnumála stofn un hafa einnig vísað fólki í þjónustu stöðvar innar og eru mikilvægir samstarfs aðilar. Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar hefur vaxið og dafnað og starfa nú alls sjö starfs menn þar. Markmið starfsins er sem fyrr að aðstoða fólk, sem hefur dottið út af vinnumarkaði, að ná fótfestu á vinnu­ markaði á ný. Þátttaka í endurhæfingu er heilmikil vinna í samstarfi við fjölda fag fólks, fjölskyldu, vini og aðkomu ýmissa þjónustukerfa. Anna Guðný Eiríksdóttir og Sveindís Anna Jóhannsdóttir, nýr framskvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Hafnafjarðar. Sveindís Anna er nýr fram kvæmda­ stjóri Starfsendurhæfingar Brúnleita svæðið sýnir hið keypta svæði fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar. Hafnarfjarðarbær kaupir rúma 1.600 m² í Firði undir Bókasafn Hafnarfjarðar Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.