Fjarðarfréttir - 04.07.2024, Qupperneq 13

Fjarðarfréttir - 04.07.2024, Qupperneq 13
www.fjardarfrettir.is 13FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2024 Fjölmargir Hafnfirðingar, og eflaust fleiri, sem skörtuðu þjóðbúningi, röðuðu sér til myndatöku fyrir utan Hafnarborg á þjóðhátíðardaginn. Hefur þetta verið gert að frumkvæði Guðrúnar Hildar Rosenkjær en hún var löglega forfölluð á Bessastöðum að taka við fálkaorðu fyrir starf sitt að hefja upp virðingu og halda utan um sögu íslenska þjóðbúningsins. Þarna mátti sjá fólk á öllum aldri en yngsti einstaklingurinn var tæplega 8 mánaða sem klæddist glænýjum prjón­ uðum þjóðbúningi sem Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir gerði fyrir Kristínu Harðardóttur sem hannaði búninginn. Fjölmargir búninganna voru gerðir á námskeiðum í Annríki sem Guðrún Hildur og Ásmundur Kristjánsson reka. Hafnfirðingar glæsilegir í þjóðbúningum Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Teitur Jónasson tekur við akstri fyrir eldra fólk og fatlað fólk Pantaðar ferðir standa – Ný verðskrá fyrir eldra fólk Rútufyrirtækið Teitur Jónasson ehf. sinnir allri akstursþjónustu fyrir eldra fólk og fatlað fólk í Hafnarfirði frá 1. júlí. Hægt er að panta og afpanta stakar og fastar ferðir í síma 515 2720 og á netfanginu ferd@teitur.is. Opnunartími þjónustuvers er frá kl. 8-16 virka daga og verður fyrirkomulag pantana með sama hætti og áður en hjá nýjum þjónustuaðila. Ferðum á vegum akstursþjónustu bæjarins fyrir eldra fólk verður samhliða fjölgað úr 8 í 16 á mánuði. Pantaðar ferðir standa Þau sem hafa pantað ferðir fram í tímann hjá núverandi þjónustuaðila, Hópbílum, þurfa ekki að gera það aftur hjá nýjum þjónustuaðila, en hægt er að senda póst eftir 30. júní á ferd@teitur.is og fá staðfestingu á bókuðum ferðum. Nánar hfj.is/FerdTeitur Eldra fólk sem vill fjölga ferðum getur sent inn umsókn í gegnum Mínar síður á vef bæjarins. Einnig má skila umsóknum á eyðublaði sem nálgast má í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6. Ný verðskrá fyrir eldra fólkið Fyrir þau sem eldri eru, er vert að vita að nýjar reglur tóku gildi 15. maí 2024. Þeim fylgir ný gjaldskrá frá 1. júlí sem er tekjutengd. Verðið er óbreytt fyrir fólk með fötlun Hvar auglýsir þú? Sæktu app fyrir snjallsíma! Fjarðarfréttir fyrir iPhone og Android GJÖF TIL ÞÍN

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.