Bergmál - 01.08.1955, Page 9
B ER G M Á L
1 9 5 5 ------------------------
hugmyndar um gildi peninga.
Hún hafði ánægju af fallegum
og dýrum hlutum og nú var hún
gift manni, sem var höfðing-
lyndur og hafði ánægju af að
spilla henni með eftirlæti. Og
satt að segja held ég að -Peter
frændi hafi bókstaflega í fyrstu
hvatt hana til þess að eyða pen-
ingum.
Sennilega hefir karlsauðurinn
fundið það óljóst undir niðri, að
hún væri ekki hamingjusöm og
vonað eins og margir menn hafa
vonað, bæði fyrr og síðar að allt
myndi breytast til batnaðar, að-
eins ef að hann ynni ennþá meir
en nokkru sinni áður til þess að
geta látið hana hafa enn meiri
peninga til að eyða, en án þess
að athuga það, að með því van-
rækti hann hana ennþá meira
en nokkru sinni fyrr. En hvað
sem því viðvíkur, þá eyddi
Soffía áreiðanlega á tímabili
margfalt meiru, heldur en Peter
frændi hafði efni á.
Rayburn Keep var stór 16.
aldar búgarður og á þessum
tíma var það enn venja, að
þjónustufólkið, vinnufólkið,
vikapiltarnir og annað starfs-
fólk á búgarðinum settust að
máltíðum sínum ásamt húsráð-
endum í hinum gríðarstóra
borðsal og faðir minn sagði mér
að hann myndi til þess, að oft
hefðu um þrjátíu og fimm manns
setið þar undir borðum. Peter
frændi var fyrsta flokks skytta
og reiðmáður og var fjöldi
veiðimanna oft í boði þarna
á þessum skemmtanalífstíma,
sem segja má að hafi verið hon-
um til ánægju engu síður en
Soffíu. En hvað sem því líður,
þá kostuðu þessar veizlur ekki
minna fyrir það.
Eins og ég hefi áður sagt þér,
þá var Peter frændi talinn góður
búhöldur og græddi hann áreið-
anlega drjúgan skilding á naut-
griparækt sinni. En það hefði
áreiðanlega þurft margfaldar
tekjur á við það sem hann hafði
til að standa undir kostnaðinum
við þessar veizlur, sem Soffía
stofnaði til. Brátt fór honum að
skiljast, að þetta gæti ekki
gengið svo til lengdar.
í fyrstu maldaði hann í móinn
góðlátlega, en Soffía tók ekkert
tillit til þess. Þá fór hann að
verða fyrir alvöru skelfdur.
Soffía frænka gældi við hann
en stríddi honum jafnframt
fyrir ótta hans og hélt enn
stærri veizlur en áður. En loks
þegar það var næstum orðið of
seint þá varð hann loks reiður
og setti hnefann í borðið. En þá
var hún ekkert nema blíðan og
7