Bergmál - 01.08.1955, Side 46
B E R G M Á L-------------------
Max tók í hönd hans og stóð upp.
Hann var nú miklu styrkari en
fyrr og fann að hann var að
hressast. „Komið þessa leið,“
sagði maðurinn og tók um hand-
legginn á Max. „Ég verð að ná
í töskuna mína fyrst,“ sagði
Max í flýti.
„Auðvitað.“ Maðurinn beið á
meðan Max fór og setti fatnað-
inn niður í töskuna, en kom því
næst aftur með ferðatöskuna í
annarri hendi og skjalatöskuna
í hinni.
„Er taskan þung, á ég að halda
á henni fyrir yður?“
„Þakka yður fyrir, það er
óþarfi.“
Max var nú alúðlegri en áður
og lagði niður fyrir sér í hugan-
um hversu komið væri. Maður-
inn hafði horft á allar aðfarir
hans, séð hann setja fatnaðinn
niður í töskuna og það fyrsta
sem honum hugsaðist var það,
að til þess að geta haft yfirhönd-
ina yfir þessum ókunna manni,
þá varð hann að vita eitthvað
meira um hann, það var eina
ráðið til þess að eiga ekki neitt
á hættu.
Hann hafði enga löngun til
þess að fara heim með mannin-
um, ef þar skyldu vera fleiri
menn fyrir, en er hann hafði
spurt manninn nokkurra spurn-
--------------------Ágúst
inga, hafði hann komizt að öllu,
sem hann þurfti að vita. Heppn-
in var með honum, maðurinn
sem kynnti sjálfan sig sem
herra Charnot, bjó aleinn í litlu
húsi niður við sjóinn, aðeins
nokkur hundruð metra í burtu.
Max ákvað að fresta öllum að-
gerðum, þar til þeir kæmu heim
í húsið.
Þetta var fremur lítið hús,
sem stóð alveg fram við strönd-
ina og sneru gluggar setustof-
unnar út að hafinu. Charnot
vísaði Max til baðherbergis o'g
fór síðan fram til þess að búa
til kaffi. Á meðan Max þvoði
sér og snyrti sig til, hugsaði
hann ráð sitt. Nú á þessari
stundu höfðu græna skjalatask-
an og taskan með fatnaðinum
ekkert sérstakt gildi fyrir
Charnot, en jafnskjótt og sagt
yrði frá ráninu í blöðunum og í
útvarpinu þá myndi Charnot
muna eftir töskunum og hann
• mundi geta gefið lögreglunni
nákvæma lýsingu á Max. Sú lýs-
ing myndi jafnframt ná til gráa
Citroen bílsins og þá myndi lög-
reglan jafnframt vita, að þeir
þyrftu að leita að karlmanni en
ekki konu. Max mátti ekki við
því að svo langt gengi. Charnot
var hlekkur sem gat leitt lög-
regluna til hans og þann hlekk
44