Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Side 5

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Side 5
ÁVARP JÓHANNS ÞORSTEINSSONAR formanns íþróttabandlags Hafnarfjarðar Allsstaðar þar, sem menning er á háu stigi, er íþróttalíf í miklum blóma. íþróttafélögin leggja sinn skerf til menningarmálanna á hverj- um tíma og hverjum stað. Hafið þið veitt því athygli, að gullaldarsaga okkar er að mestu leyti íþróttasaga? Hafið þið hugsað út í það, að þá stendur andleg menning að mörgu leyti mjög Iiátt? Hafið þíð tekið eftir því, að þó að saga gullaldarinnar sé að miklu leyti vígasaga, þá eru drenglyndi og orðheldni í rneiri metum ltöfð, en oft endranær. — Ég hygg að íþróttirnar geri manninn kappsamari, glaðari og nýtari mann í hvívetna. Það er til margskonar félagsskapur með mis- munandi markmiðum, allt frá litlum skemmti- félögum til stórra félaga til framdráttar ýmsum þjóðþrifamálum, hvort sem uni er að ræða góð- gerðarfélög, sem vinna að einhverju tilteknu verkefni, eða landsmálafélög, sem láta sér ekkert óviðkomandi. — Með nokkrum rétti mætti segja, að þjóðfélagið eigi allt undir þessum mörgu og mismunandi félögum. Flest þessara félaga beita starfsemi sinni útávið til þess að koma fram einhverjum ákveðnum málefnum, en hvernig það tekst, er mest undir félagsmönnum komið. En til eru líka félög, sem beina starfsemi sinni inn á við, að félagsfólkinu sjálfu, og kappkosta að þroska félaga sína í einhverju ákveðnu, eða alliliða, og gera þá þar með liðtækari í hvert j)að félagsstarf, sem síðar bíður þeirra, gera þá að sem nýtustum Jrjóðfélagsborgurum. lega og orðið hafnfirzkum íþróttamönnum til sóma. Þeir hafa orðið öllum aufúsugestir vegna framkomu sinnar. Að lokum vil ég leyfa mér að þakka Haukum fyrir vinsemd og sýndan sóma á ýmsan hátt um leið og ég óska félaginu farsældar á íþróttasvið- inu í framtíðinni. Ben. G. Waage Það er þetta, sem er verkefni íþróttafélaganna. — Það er uppeldisstarf. — íþróttastarfið í félögun- um er sjálfboðastarf, unnið af frjálsum vilja og framkallað af heilbrigðri þörf eða löngun til þroska og manndóms. Það er gleðilegur vottur um vorhug unga fólksins, hvernig það flykkir sér um íþróttafélögin og iþróttirnar, ekki vegna laga- boða, heldur af frjálsum vilja. Knattspyrnufélagið „Haukar“ minnist nú 15 ára afmælis síns. 15 ár eru ekki langur tími; ekki hár aldur. Það er miðað við mannsæfina aðeins bernskuárin. Eftir 15 ár hefur félagið fyrst náð þeim aldri, sem maðurinn þarf, til þess að ná fullum líkamlegum þroska. Stofnendurnir vorn aðeins 13, en félagar eru nú um 350. Ef vöxtur félagins yrði hlutfallsl. jafn- mikill næstu 15 ár, ættu félagarnir að verða orðn- ir um 7 Jnisund á 30 ára afmælinu. Ég er nú ekki að spá neinu um Jrað, að svo muni verða, og þyk- ir Jrað meira að segja tæplega sennilegt, en það er Jrá vegna Jress, að afmælisbarnið hefur verið óvenjulega bráðþroska. Og þó að félagið hafi nú þegar margt vel gert og myndarlega, Jrá er það von mín og vissa, að hvort sem það í náinni fram- tíð vex meira eða minna að félagatölu, muni það enn vaxa að afli og atorku, til gagns og sóma fyrir sjálft sig og aðra, fyrir bæjarfélag sitt og ])jóð- félag. Ég ætla mér ekki að segja sögu félagsins, það munu aðrir gera. En ég vil aðeins að síðustu segja Jietta: / félaginu eru ennþá nær allir stofnendur þess og surnir þeirra taka enn þátt i iþróttaœfingum og kappleikum. Þetta er stutt lýsing á félaginu, en hún segir furðu mikið um Jrað. Heill stofnendunum. Heill og heiður þeim og félaginu fyrir þjóðnýtt starf. Jóhann Þorsteinsson AFMÆLISBL A tí H A U K A

x

Afmælisblað Hauka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.