Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Page 6
ÁVA R P
JÓNS MAGNÚSSONAR
Þeir, sem fylgzt liafa með þróun íþróttahreyf-
ingarinnar í Hafnarfirði síðustu árin, minnast
þeirra félagssamtaka, sem mest og bezt liafa unn-
ið í þágu æskulýðsins til eflingar andlegu og lík-
amlegu atgervi og aukinni menningu félaga
sinna.
Fimmtán ára starfsemi Knattspyrnufélagsins
Hauka hefur verið merkur og mikilvægur þátt
ur í íþróttasögu Hafnarfjarðar. Félagið var stofn-
að af ungum og áhugasömum æskumönnum, sem
vildu sýna í verki, ásamt öðrum íþróttafélögum
í bænum, að Hafnf irðingar væru ekki eftirbátar
annarra landsmanna um íþróttaiðkanir og afrek.
Haukar hafa á liðnum árum unnið marga og
mikla íþróttasigra, einkum á sviði handknatt-
formanns Fimleikafélags Hafnarfjarðar
leikskeppninnar. Enda hefur félagið átt á að
skipa ágætum handknattleiksliðum, bæði í flokki
kvenna og karla. Hafa þeir flokkar borið hróður
Hafnarfjarðar um land allt með sigrum sínum á
íslandsmótum.
íþróttafélögin hér í bæ heyja oft á tíðum harð-
vítugar og tvísýnar íþróttaorustur. En þrátt fyrir
Jrað eru íþróttamenn engir óvinir, aðeins and-
stæðingar í drengilegri og prúðmannlegri íþrótta-
keppni. Þeir takast í hendur áður en leikur hefst
og hrópa sigurhróp hver f'yrir öðrum í leikslok.
Þannig er framkoma sannra íþróttamanna og
góðra drengja, þó að enginn sé annars bróðir í
leik.
Með jretta sjónarmið í huga gleðst ég og Fim-
leikafélag Hafnarf jarðar yfir velgengni og sigrum
Hauka á undanförnum fimmtán árum og óska
þeim vaxandi þróttar og Jrroska á heillaríkri
framtíðar- og framfarabraut.
ÁVARP
GRÍMS KR. ANDRÉSSONAR
varaformanns Sundfélags Hafnarfjarðar
Ég vil með fáum orðunr minnast 15 ára starfs
Knattspyrnufélagsins ,,Hauka“. — Stofnendur
„Hauka“ voru 13 drengir, sem flestir voru á ferm-
ingaraldri.
Þeir settu sér strax markmiðið hátt í íþróttum,
enda er hægt að segja, að á Jressum liðnu starfs-
árum þeirra hafi þeir eflzt að íþrótt og frægð.
„Haukar“ hafa unnið marga sigra, og með
íþróttastarfsemi sinni er óhætt að fullyrða það,
að þeir hafa orðið bæjarfélagi sínu til sóma á
liðnum starfsárum, og muni setja sér markið liátt
að nýju.
Nú telja ,,Haukar“ 350 meðlimi, stúlkur og
pilta, svo að félagskraftar eru nægir fyrir hendi
til starfa, enda eru llokkar félagsins margir, sem
iðka íþróttir nú. íþróttir eru nauðsynlegar, Jrær
gefa fyrirheit til handa þeim, sem iðka þær,
drenglyndi og karlmennsku, enda hefur jtað
6
AFMÆLISBLAÐ H A U K A