Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Side 13
lagsmenn, er í blaðið rituðu, voru allir langt inn-
an við tvítugsaldur. Er óhætt að fullyrða, að meg-
intilgangi blaðsins liafi verið náð. Árið eftir boð-
uðu Haukar til almenns borgarafundar, þar sem
íætt skyldi um íþróttamál bæjarins. Á þennan
fund var bæjarfulltrúum boðið, auk þess skóla-
stjórum og kennurum skólanna hér. Á þessum
fundi, sem var mjög fjölsóttur, má segja að fyrsta
skrefið í sundlaugarmálinu hafi verið tekið, því
að þá snemma á árinu var skipuð sérstök nefnd,
til að undirbúa það mál..
3.
Vorið 1933 réðu Haukar nýjan kennara í knatt-
spyrnu. Var það Halldór Árnason úr Val í Reykja-
vík. Halldór var áhugasamur félagi í Val; hafði
hann iðkað knattspyrnu um nokkurt skeið og var
í fyrsta liði Vals, sem vann íslandsmótið, en það
var árið 1930. Haukar voru ákafir aðdáendur
Vals, og mér er ekki grunlaust um það, að flestir
okkar hafi litið á Val sem stóra bróður, því bæði
félögin voru stofnuð innan K.F.U.M., og þótti
okkur Jdví mjög ánægjulegt, að Haukar skyldu fá
knattspyrnukennara úr Val. Halldór mætti á
hverri einustu æfingu félagsins um sumarið og var
auk Joess viðstaddur flesta kappleiki þess, því þá
um sumarið var oft keppt við félögin í Reykja-
vík. Öllum eldri félögunum eru æfingarnar frá
Jressu surnri minnisstæðar og allur sá tími, er Hall-
dór kenndi hjá félaginu. ÖIl þau ár, sem hann
kenndi hjá Hakum, þáði hann engin laun fyrir
kennsluna, og árangur kennslu hans var ómetan-
legur. Halldór lézt árið 1940 af afleiðingum slyss,
er hann varð fyrir, þegar hann var að gegna störf-
um sínum í Slökkviliði Reykjavíkur.
Haustið 1933 réðu Haukar í þjónustu sína
Baldur Krisl jónsson leikfimiskennara, sem þá var
nýútskrifaður frá Iþróttaskólanum á Laugar-
vatni. Baldur er rnjög góður kennari og hefur
hann kennt hjá Haukum nokkra vetur síðan og er
nú í vetur kennari félagsins, og vænta félags-
menn góðs árangurs af kennslu hans.
4.
Næstu árin dofnar heldur yfir félaginu, og er
J^að einkum á sumrin ,sem starfsenri félagsins
dregst saman, því þá má segja að unga fólkið
Jryrpist úr bænum í atvinnuleit, og fara Haukar
ekki varhluta af því, Jjar sem langflestir félagarn-
ir eru verkamenn og sjómenn. Hins vegar var
skennntilegt félagslíf á vetrum.
Hermann Guðmundsson hafði Jjví hlutverki
að gegna að vera formaður félagsins Jressi erfiðu
ár, og það'fullyrði ég, að ef hans hefði ekki notið,
þá væri Haukar ekki að minnast afmælis síns nú.
Á þessum árum stundaði Hermann sem fleiri sjó-
inn á sumrum, en er heim kom á haustin, Jrá tók
liann til óspilltra málanna og hlífði sér lítið við
þau störf. Stjórninni var augljóst, að eitthvað
þurfti að gera, til að örva íþróttalífið í bænum.
Hér í bænum hafði t. d. lítið borið á að stúlkur
iðkuðu íþróttir, en seinni hluta ársins 1937 fór
að vakna almennur áhugi á j>ví, að stofnaður væri
kvennaflokkur innan Hauka. Stjórnin var þess
fullviss, að ef Jrað yrði gert, þá myndi félagslífið
taka miklum breytingum til batnaðar, og þess
vegna boðaði hún til fundar með nokkrum stúlk-
um í bænu m, er áhuga höfðu á þessu máli. Á
þessum fundi voru mættar 11 stúlkur og var af
þeirra hálfu kosin nefnd til að uindirbúa stofnun
flokksins.
Þann 19. janúar 1938 var haldinn stofnfundur
flokksins og gengu þá 18 stúlkur í hann. Þ. 4.
febrúar er svo haldinn framhaldsstofnfundur og
gengu þá 23 stúlkur í flokkinn.
Þetta ár hafði byrjað vel með stofnun kven-
flokksins, og hefjast innanhússæfingar bæði hjá
stúlkum og piltum í febrúar. Æfinagr eru vel
sóttar, félagslíf með afbrigðum gott. Þá eru einnig
leiknir nokkrir handknattleiksleikir, bæði hjá
III. FI.OK.KUR 1932:
Efri röð frd v.: Hallgrímur Steingrímsson, Guðmundur
Atlason, Jóhannes Einarsson, Karl Auðunsson, Páll Guð-
jónsson, Arnlaugur Sigurjónsson.
Fremri röð frá v.: Gunnar Guðmundsson, Olafur Sveins-
son, Sigurjón Guðmundsson, Helgi Vilhjálmsson, Geir
Jóelsson.
A F M Æ 1.1 S B I. A F) H A U K A
13