Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Qupperneq 14
Gisli Sigurðsson
stúlkum og piltum. Kvenflokkurinn lék sinn
fyrsta leik gegn Ármanni í apríl 1938 og unnu
Haukastúlkurnar þann leik. Síðan hefur kven-
flokkurinn háð marga og fjöruga leiki við Ár-
mann og hefur oft munað mjóu, hvort liðið sigr-
aði. —
í október 1938 var haldinn aðalfundur í félag-
inu, og baðst Hermann þá undan endurkosningu
í formannssæti, og var Ársæll Pálsson þá kosinn
formaður í hans stað. Hermann hafði þá verið
formaður Hauka síðan árið 1933. Störf þau, sem
Hermann hefur unnið fyrir Hauka, verða seint
metin að verðleikum. Ef reikna ætti út alla þá
tíma, sem hann hefur fórnað í þágu félagsins og
síðan meta Jrær stundir til verðs, þá væri það all-
rífleg fjárupphæð. Ávallt er hann var formaður
félagsins og allt fram á þennan dag hefur liann
allrei hlíft sér við þau störf, sem hann hefur tekið
að sér fyrir Jrað eða hafnfirzka íþróttamenn.
Árið 1939 má vissulega telja markvert ár í sögu
Hauka. Snemma á árinu varð Ársæll Pálsson að
segja af sér formennsku í félaginu, vegna þess að
hann flutti úr bænum vegna atvinnu sinnar. Æf-
ingar voru þá fremur lélega sóttar, og hver ástæð-
an fyrir því var, skal ekki rakin hér. Þá voru uppi
raddir um ])að innan félagsins, að sameina bæri
íþróttafélögin í bænum, og var þá átt við Hauka
og Fimleikafélag Hafnarfjarðar. F. H. iðkaði þá
lrjálsar íþróttir og fimleika og voru í félaginu
margir góðir íþróttamenn. þá var það svo, að flest-
ir íþróttamenn voru í báðum félögunum og marg-
ir iðkuðu knattspyrnu í Haukum, en æfðu svo
með F. H. frjálsar íþróttir og leikfimi. Það kom
oft fyrir, að hagsmunir beggja félaganna gátu rek-
izt á, t. d. að knattspyrnuleikir fóru fram á sama
tíma og íþróttamennirnir þurftu nauðsynlega að
æfa fyrir frjálsíþróttamót, en eins og áður er sagt
iðkuðu margir bæði knattspyrnu og frjálsar íþrótt-
ir. Málið virtist liafa talsvert fylgi innan Hauka,
og á fundi, sem haldinn var þ. 21. apríl 1939, var
rætt um þetta mál. Virtust flestir fundarmenn á
einu máli um j)að, að úr sameiningu gæti orðið,
en töldu Jrað samt ýmsum vandkvæðum bundið.
Tillaga var samþykkt Jress efnis, að stjórn F. H.
skyldi boðuð á fund til að ræða þetta mál. Fundur
stjórna félaganna var síðan haldinn og var málið
rætt, en þó ekkert frekar gert í Jrví. Aðalági'ein-
ingsefnið virtist vera Jrað, að hvorugt félaganna
vildi leggja nöfn sín niður.
Á fundi, sem haldinn var í Haukum 7. maí s. á.,
skýrði stjórn félagsins frá viðræðunum um sam-
eininguna og rétt áður hafði borizt bréf um mál-
ið. Eftir ýtarlegar umræður og nákvæma athugun
á bréfi því, er borizt hafði frá F. H., áleit fundur-
inn að úr sameiningu gæti ekki orðið og voru sam-
þykktar tillögur um það.
Skömmu seinna ákvað stjórn F. H., að stofnuð
skyldi knattspyrnudeild innan þess, og sögðu sig
þá úr Haukum rnargir beztu knattspyrnumenn
félagsins og fóru yfir í hina nýstofnuðu deild
F. FI. Var Jretta að vísu talsvert álall fyrir Hauka í
bili, en Jrað var eins og Jreir, senr eftir urðu, væru
ákveðnari en nokkru sinni íyrr að starfa vel fyrir
félagið. Hauka-félagar gerðu sér fulla grein fyrir
því áfalli, sem varð við burtför knattspyrnumann-
anna til F. H., en voru jafn sanfærðir um, að Jretta
myndi verða íþróttalífinu í Hafnarfirði til heilla,
j)ví að })á myndi skapast samkeppni innanbæjar
og aukinn áhugi, enda hefur árangurinn sannað,
að þessi skoðun Hauka-félaga var rétt.
6.
Árið 1940 næst liið langþráða takmark Hauka,
en það var að koma á opinberu móti milli félag-
anna hér. Sama ár hefst landsmót í handknatt-
leik í J)rem flokkum, 1. og 2. fl. karla og kvenfl.
Á aðalfundi Í.S.Í., senr haldinn var í Reykjavík
1938, báru fulltrúar Hauka franr tillögu Jress efnis
að stjórn Í.S.Í. athugaði möguleika á Jrví, að hald-
ið yrði landsnrót í handknattleik, og að hún léti
senrja nýjar handknattleiksreglur. Skömmu seinna
fól svo stjórn Í.S.Í. Aðalsteini Hallssyni íþrótta-
kennara að semja reglurnar.
Árið 1940 ]). 30. marz var svo auglýst að hefjast
skyldi í Reykjavík landsmót í handknattleik og
sendu Haukar þá 1. fl. og kvenííokk á nrótið. Af
6 félögum í 1. fl. urðu Haukar þriðju í röðinni.
í kvenflokki tóku aðeins þátt 3 félög: Haukar,
Árnrann og íþróttafélag Reykjavíkur. Sigraði
14
AFMÆLISBLAÐ HAUKA