Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Síða 15

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Síða 15
kvenfl. Hauka í. R., en tapaði úrslitaleik gegn Ármanni. Mót þetta fór vel fram og fylgdust Hafnfirðingar með því af miklum áhuga. Eins og áður er sagt, liófust mót í knattspyrnu í þremur aldursflokkum milli félaganna hér. Var svo ákveðið, að haldið skyldi vor- og haustmót og keppt yrði í tveimur umferðum í hverjum flokki. A vormótinu fóru leikar svo, að F. H. sigraði í öllum flokkum, en á haustmótinu sigr- uðu Haukar í 3. fl., en F. H. í 1. og 2. fl. Keppt var um bikara í öllum flokkum, þrjá á vormót- inu og þrjá á haustmótinu. Þá gaf I.S.I. bikar og var svo ákveðið, að Jrað félag, er hlyti flest stig eftir bæði mótin, skyldi hreppa bikarinn og titil- inn „Knattspyrnumeistarar Hafnarfjarðar“, og þetta ár var það F. H., sem vann bikarinn, hlaut 20 stig, en Haukar 8 stig. Bikar þessi er farand- gripur og vinnst því ekki til eignar, en í reglu- gerðum hinna er svo ákveðið, að þeir vinnist til eignar, ef þeir eru unnir þrisvar í röð, eða fimnr sinnum alls. Snemma á árinu 1940 var haldinn aðalfundur í félaginu og hlutu kosningu í stjórn: íorm.: Guð- sveinn Þorbjörnson, ritari: Sigurrós Oddgeirs- dóttir, gjaldkeri: Jón F.gilsson, fjármálaritari: Sævar Magnússon, varaform.: Karl Auðunsson, meðstjórnendur: Lárus Sigurðsson og Kristín Þorvarðardóttir. Stjórn þessi var mjög samhent að vinna að málefnum félagsins og litlar breyt- ingar hafa verið gerðar á henni síðan. Ég vil sér- staklega geta þess, að þegar jón Egilsson tók við gjaldkerastörfum félagsins, en hann hefur verið gjaldkeri þess síðan 1940, voru í sjóði rúmar 6 krónur og litlar eignir, en nú nema eignir félags- ins um 30 þúsund krónum, þrátt fyrir rnikil út- gjöld á liðnum árum. Næstu ár er íþróttalíf í Hafnarfirði í miklum blóma, og vil ég geta þess, að árið 1942 voru Hafn- Halldór Arnason firðingar, en J)að var sameinað lið úr Haukum og F. H., íslanclsmeistarar í 1. fl. í knattspyrnu. Fé- lagslíf Hauka er gott, og árangrar félagsins fara ört vaxandi. Þó er það svo, að árið 1941—42 eru árangarar ekki verulega góðir, en árið 1943 skipt- ir svo um, að á vor- og haustmóti í knattspyrnu hér vinnur félagið alla leiki, hlýtur 24 stig, skorar 40 mörk gegn 8. Á Handknattleiksmóti íslands 1943, sem að venju var haldið í Reykjavík í húsi Jóns Þor- steinssonar, nær meistarafl. Hauka þeim árangri að verða íslandsmeistari, og er það í fyrsta skipti sem félagið nær þeim árangri. Kepj)t var í tveim- ur riðlum, og skyldu efstu félögin í riðlunum síðan kepjra til úrslita. Haukar lentu í riðli með Fram, íþróttafélagi Háskólans, Víking og K. R. Haukar unnu Fram og I. H. auðveldlega, en leik- irnir við Víking og K. R. voru okkur erfiðari. Ég minnist sérstaklega leiksins á móti Víking. Leikur sá var mjög jal'n og spennandi. Er tvær mínútur voru eftir af leik, hafði Víkingur 2 mörk yfir, og á þessum tveimur mínútum skoruðu Haukar 3 mörk og unnu Jiar með leikinn með 18:17. Valur sigraði í sínum riðli og lentu Haukar |>ví í úrslit- um gegn Val. Áhugi Hafnfirðinga á þeim leik Gisli Sigurðsson afhenclir meistaraflokki og kvenflokki Hauka verðlaun á fyrsta Hafnarf jarðarmóti i hancl- knattlcik. AFMÆLISBLAÐ H A U K A 15

x

Afmælisblað Hauka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.