Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Side 17
Einn sigur Hauka þetta ár var á landsmóti í
handknattleik (innanhúss), er 2. £1. lélagsins verð-
ur íslandsmeistari, sigraði alla keppinauta sína
mjög glæsilega.
Eins og áður er sagt, var þetta mjög viðburða-
í'íkt ár fyrir liafnfirzkt íþróttafólk. Þrátt fyrir
erfið skilyrði þess, tókust öll mótin mjög vel og
voru hafnfirzku íþróttafólki til sóma. Það bar
mjög á því að margt eldra fólk fylgdist með mót-
unum af áhuga, og er ánægjulegt að sjá, að við-
horf þess breytist til batnaðar með hverju ári sem
líður. Eldra fólkið sér það og finnur, að íþróttirn-
ar eru ekki aðeins leikur, heldur iðkar unga fólk-
ið íþróttir til að þroska sjálft sig andlega og lík-
amlega.
9.
Starfsemi félagsins á árinu 1945 er ekki síðri
en árin á undan. Þá nær kvenfl. Hauka þeim ár-
angri að verða Islandsmeistari (innanhúss) og er
það í fyrsta skipti, sem kvenflokkur nær þeirn ár-
angri. Að undanteknu einu ári, sem Haukar
sendu ekki á þetta mót, var flokkurinn ávallt í úr-
slitum gegn hinum gamla og góða keppinaut Ar-
manni. Þá verður og 2. fl. karla íslandsmeistari í
annað sinn. Á þetta mót, sem var að venju haldið
í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar í Reykjavík,
sendu Haukar, auk áður nefndra tveggja flokka,
lið í meistarafl. og L fl. karla. Meistarafl. félagsins
var ekki eins sterkur og oft áður, en 1. fh, sem nú
var sendur í fyrsta skipti, var mjög nálægt því að
ná fyrsta sæti, en hins vegar má það teljast mjög
góður árangur, að sigra í tveimur flokkum af
fjórum.
Þá sigraði kvenfl. Hauka á hraðkeppnimótinu.
Að þessu sinni voru þátttakendur fjögur félög:
Haukar, F. H., Ármann og K. R. Léku Haukar og
Ármann saman og var það fjörugur og tvísýnn
leikur. Hauka-stúlkurnar náðu ekki yfirburðum
fyrr en á síðustu mínútum leiksins (4:2). Léku
Haukar síðan gegn K. R., sem hafði unnið F. H.
Unnu Hauka-stúlkurnar þann leik mjög glæsi-
lega (7:1).
Á Hafnarfjarðarmótinu sigraði kvenfl. Hauka,
en meistarafl. karla tapaði fyrir F. H. Var þetta í
fyrsta skipti, sem Haukar töpuðu fyrir F. H. í
meistaraflokki.
Kvenfl. tók þátt í meistaramótinu í handknatt-
leik, sem að þessu sinni var háð á ísafirði, en eins
og kunnugt er vann íþróttabandalag ísfirðinga
þessa keppni, en Hauka-stúlkurnar voru næstar
með 4 stig.
Á knattspyrnumótunum, sem haldin voru hér
milli Hauka og F. H., unnu Haukar vor- og
haustmót með 18 stigum og þar með titilinn1
Knattspyrnumeistarar Hafnarf jarðar í þriðja sinn
í röð. F. H. hlaut 8 stig eftir bæði mótin. Að þessu
sinni unnu Haukar í öllum flokkum á vormót-
inu, en töpuðu í I. og 3. fl. á haustmótinu. Þetta
ár byrjuðu knattspyrnuæfingar fremur seint, af
því að gerðar voru þær endurbætur á Iþróttavell-
inum, að borið var ofan í hann og hann síðan
valtaður.
S. 1. haust hófust æfingar í þremur flokkum í
leikfimishúsi Barnaskólans, undir stjórn Baldurs
Kristjónssonar, sem kennir leikfimi og hand-
knattleik. Eru það 1. og 2. fl. karla, sem æfa sam-
an, drengir 14—16 ára pg kvenfl.
10.
I svo stuttu yfirliti sem þessu er skiljanlegt, að
ekki er hægt að gera sögu félagsins ýtarlegri sk.il.
Félagið hefur t. d. æft fleiri íþróttir en knatt-
spyrnu, handknattleik og leikfimi. Margir með-
limir félagsins hafa t. d. keppt fyrir það á frjáls-
íþróttamótum í Reykjavík.
I þessi 15 ár hefur starfsemi Hauka miðazt við
það, að gera einstaklinga þess félagslyndari, starf-
sarnir og þá síðast en ekki sízt hraustari, bæði and-
lega og líkamlega. Um nöfn fleiri einstaklinga
en þeirra, sem ég hef hér nefnt, mun ég ekki geta
sérstaklega; það verður að bíða betri tíma, en
aftur á móti vil ég geta þess, að þau 15 ár, sem fé-
lagið hefur starfað, hafa Haukar keppt yfir 350
leiki í knattspyrnu og handknattleik og hafa kepp-
endur verið í hverjum leik frá 5 og upp í 11.
Mun engum dyljast, að mikil vinna liggur í
þessu starl’i félagsins, fyrst að æfa íþróttirnar, þá
að heyja kappleiki og síðan að vinna að ýmsum
málefnum þess. Allt þetta starf hefur verið unnið
af mörgum fórnfúsum meðlimum, sem hafa fund-
ið ánægju í því að vinna að málefnum félagsins,
æfa og heyja kappleiki fyrir það. í Hauka hafa
valizt góðir félagar, og það hefur gert starfið létt-
ara en ella. Urn leið og ég get þessa, vil ég einnig
taka það fram, að ýmsir menn utan félagsins hafa
lagt málefnum þess lið, og er það allstór hópur.
Eg segi aðeins: þökk sé þeim öllum fyrir beina og
óbeina aðstoð, sent þeir hafa veitt félaginu síðan
Jrað var stofnað.
11.
Þá kem ég að síðasta kafla Jressa yfirlits, en ég
vil láta liann ná fram í tímann. Ég mun nefna
hann: Framtíðaróskir „Hauka“ um bætt skilyrði
ípróttamanna til iþróttaiðkana hér í bænum.
A F M Æ L I S B L A +) H A U K A
17