Afmælisblað Hauka

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Qupperneq 19

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Qupperneq 19
I. FLOKKUR 1945 Efri röð, frá vinstri: Jón Pálmason, Brynjólfur Jóhannesson, Svanur Jónsson, Karl Auðunssön, Guð- niunclur Þórðarson, Egill Egilsson. Fremri röð, frá v.: Stefán Egilsson, Friðþjófur Sigurðsson, Ragnar Sig- urðsson, Guðmundur Eyþórsson, Jón Egilsson, Sigurbjörn Þórðarson, Vilh jálmur Skúlason. Fræg er þessi bæn eins af kirkjunnar mönnum frá þeim tíma: „Guð minn, stöðvaðu þennan leik á sunnudögum.” En Drottinn sinnti ekki bænar- kvaki hans. Leikurinn var iðkaður í svipuðu formi marga áratugi eftir að rödd þessa hógværa manns hafði látið til sín heyra. En svo kom að því, að mönnum fór að skiljast, að til þess að leikurinn gæti skipað þann sess meðal íþróttamanna, sem honum bar, yrði að setja honum lög og ákveðnar reglur. I kringum 1863 eru leiknum svo settar reglur, og ákveðið að liann skuli leikinn af 22 mönnum, 11 í hvoru liði. Form leikvallarins og stærð er einnig ákveðin. Enda þótt leikurinn fyrr á öldum ætti stundum í erfiðri baráttu við þröngsýni, hleypidóma og heimsku, og það ekki alltaf að tilefnislausu, þá átti hann þó í sér þann lífsneista, sem aldrei slokknaði. í stað þess að leggjast niður, devja út af og gleymast við bönn og bannfæringar, tekur liann á sig ný form, breytist og mótast smátt og smátt. Nú er svo komið, að knattspyrnuleikurinn er einhver allra vinsælasta útiíþrótt meðal flestra ])jóða heims. íslendingar, engu síður en aðrar þjóðir, hafa sýnt það, að þeir kunna að meta hann að verðleikum. II. Fyrsta knattspyrnufélag, sem stofnað var hér á landi, var Knattspyrnufélag Reykjavíkur, árið 1899. Nokkru fyrr, eða 1895, hafði leikurinn þó borizt hingað með skozkum prentara, og voru það nokkrir ófélagsbundnir skólapiltar og prentarar í Reykjavík, sem iðkuðu hann sér til hressingar og skemmtunar. Árið 1908 eru svo „Fram“ og „Vík- ingur“ stofnuð. Knattspyrnufélagið „Valur“ er stofnað 1911 og loks hefur „í. R.“ tekið að æfa knattspyrnu ásamt frjálsum íþróttum. III. FLOKKUR 1915 Efri röð, frá vinstri: Vilhjálm- ur Jónsson, Vilhelm Jensson, Hafsteinn Halldórsson, Ellert Kristjánsson, Guðjón Jónsson, Karl Finnbogason, Guðmundur Kr. Guðmunclssoji, Aðalsteinn Finnbogason. Fremri röð, frá v.: Anton Jóns- son, Sigurður Ingimundarson, Halldór Bjarnason, Magnús Jó nsso n, Sigurlaugur Kristjánsson. A F M /E L I S B L A Ð H A U K A 19

x

Afmælisblað Hauka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.