Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Blaðsíða 20

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Blaðsíða 20
Fyrsta vísis til knattspyrnustarfsemi í Hafnar- firði verður vart nokkru eftir aldamót. Um svipað leyti, árið 1912, eru svo stofnuð hér tvö knatt- spyrnufélög, sem nefndust „Kári“ og „Geysir", og eru það fyrstu knattspyrnufélög, sem stofnuð eru í Hafnarfirði. Árið 1919, hinn 9. júní, er stofn- að hér knattspyrnufélagið „Framsókn" og fáunr dögum síðar, eða 17. júní, er svo annað félag stofnað, er nefnt var el'tir fæðingardegi sínum „17. júní“. Fyrir forgöngu þessara félaga var byggður knattspyrnuvöllur sá, er notaður er enn þann dag í dag af hafnfirzkunr knattspyrnumönnum. Þess merka skerfs, er þeir, senr að vallarbyggingunni stóðu, lögðu til eflingar knattspyrnunni í bæn- um, er nánar getið af öðrum lrér í blaðinu. Árið 1926 er svo stofnað hér Knatspyrnufélag Hafnar- fjarðar og ári síðar, eða 1927, Knattspyrnufélagið „Þjálfi". Öll þessi félög unnu knattspyrnustarfseminni lrér ómetanlegt gagn, en erfið skilyrði á öllum sviðum háðu starfsemi Jreirra svo mjög, að Jreim varð ekki langra lífdaga auðið. Árið 1929 var stolnað hér „Fimleikafélag Hafn- arfjarðar". Fyrstu árin æfði Jrað frjálsar íþróttir og fimleika. Knattspyrna var ekki æfð hjá F. H. fyrr en 1939, en til þess tíma voru margir félagar úr F. H. einnig í „Haukum“ og æfðu þar knatt- spyrnu. Hafa þeir verið aðalkeppinautar Hauka. Vor og haust hafa þessi félög haldið hér knatt- spyrnumót í þrem aldursflokkum og teflt þar fram sínum beztu mönnum. Fyrir Jrrem árurn gaf svo Raftækjaverksmiðja Hafnarfjarðar fagran bik- ar til að keppa um í I. fh, og er þeirri keppni enn ólokið. I þessum mótunr hafa skipzt á töp og sigr- ar fyrir báða aðila. Oft hefur keppnin orðið æði hörð og tvísýn, en, að því er ég tel, ávallt drengi- leg og skemmtileg. Knattspyrnufélagið Haukar hefur nú starfað hér í 15 ár. Við sem höfðum tekið þátt í starfsemi Jress á liðnum árum, eigum að sjálfsögðu rnargs að minnast nú, er við lítum yfir farinn veg. Það hefur gengið á ýmsu, við höfum unnið sigra, en einnig beðið ósigra, eins og gengur. Mér er Jrað 1 jóst, að sigrar okkar eru fáir og smáir utan- bæjar, en ég vil mega biðja þá, sem miða árangur okkar við hvern unninn leik, að minnast Jress, við hvaða skilyrði við höfðum starfað. Völlurinn, sem er á óhentugum s'tað í bænum, er allt of lítill. Einnig háir Jrað mjög öllum, senr knattspyrnu iðka, að ekkert skýli er við hann. í hvernig veðri senr er verðum við að afklæða okkur á bersvæði, þar sem ekkert skjól er að hafa af hvaða átt sem vindar. Og Jrað er fleira, sem háð hefur hafnfirzkri knattspyrnustarfsemi, sem ræð- ur miklu um Jrað, hver árangurinn er. Atvinnu- skilyrði voru, að minnsta kosti fram að stríðs- byrjun, þau, að flestir knattspyrnumannanna stunduðu erfiðisvinnu. Það Jrarf ekki lítið þrek til |jess, eftir langan og erfiðan vinnudag, að sækja II. FLOKKIIR 1945 Aftari röö, frd vinstri: Beinteinn Sigurðsson, Olafur Eyjólfsson, Guðm. Guðmundsson, Vilhjálm- ur Skúlason, Sigfús Borgþórsson, Brynjólfur Jóhannesson. Fremri röð, frá v.: Oskar Hall- dórsson, Jón Pálmason, Ragnar Sigurðsson, Bjarni Tryggvason, Þo)~i>arður Þowarðarson. 20 AFMÆLISBLAÐ H A U K A

x

Afmælisblað Hauka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.