Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Page 24

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Page 24
Bjarni Sveinsson: Handknattleikur i. Margir handknattleiksmenn álítia að hand- knattleikur hal'i fyrst verið iðkaður í Danmörku og byggja skoðun sína á því, að þar hafi leikurinn fyrst verið skipulagður. í bók um handknattleik, sem nýlega hefur borizt hingað frá Danmörku, er nokkuð sagt frá upphafi handknattleiksins þar. Bók þessi, sem heitir „Haandbold“, er rituð af Aksel Pedersen. Er hún mjög ýtarleg, skiptist í marga kafla, sem fjalla um ýmsar greinar hand- knattleiksins. I bók þessari segir svo, að upphaf handknatt- leiksins sé talið vera í Danmörku í latínu- og gagnfræðaskóla rétt fyrir aldamótin (1898). Við þennan skóla kenndi maður að nafni Holger Niel- sen íþróttir. Hann tók eftir því, að nemendur skólans höfðu gaman af að Jrví henda knettinum á milli sín, því þeim hafði verið bannað að sparka knettinu fyrr en kennarinn var viðstaddur. Hol- ger Nielsen sá að þetta gat orðið alhliða íþrótt og samdi kerfi um leikinn. Fyrstu handknattleiksreglur samdi Holger ár- ið 1906, og þá var leikurinn aðeins útileikur. Árin 1911—12 byrjaði annar danskur maður, Frederik Knudsen, að kenna handknattleik inn- anhúss við íþróttaskólann í Kaupmannahöfn og gaf út nýjar reglur árið 1918, sem voru fyrstu reglur innahúss. Fyrsta handknattleiksmót í Danmörku er hald- ið 1921, og tóku þátt í því 15 flokkar. Mót þetta vann K.F.U.M. Boldklub, er hlaut fádæma hrifn- ingu áhorfenda og þátttakenda fyrir leik sinn. Dómari þessa móts var Holger Nielsen, sá hinn sami er uppgötvaði leikinn við skólann, er hann kenndi við. Arið 1934 voru fyrstu alþjóðareglur í hand- knattleik samdar, og eftir það voru jrað aðallega Danmörk, Svíþjóð, Austurríki og Þýzkaland, sem gerðu mikið að því að útbreiða leikinn. Síðan hefur handknattleikur'inn náð mikilli út- breiðslu, og má segja að engin íþrótt, sem iðkuð er hér á landi, hafi náð jafnmikilli útbreiðslu á svo skömmum tíma. 2. Handknattleik hafa Haukar iðkað frá því á lyrsta ári félagsins, og munu Haukar vera með fyrstu íþróttafélögum, sem tóku að iðka hand- knattleik sem aðalíþrótt á vetrum. Áður höfðu Þátttakendur Hauka i ÍSIancls- móti i liandknattleik 1943 24 AFMÆLISBLAÐ H A U K A

x

Afmælisblað Hauka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.