Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Side 28

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Side 28
Guðsveinn Þorbjörnsson: RAF HA-mótin Rafha-mótin eru öll hafnfirzkum íþróttamönn- um kunn, þ. e. a. s. úrslit, en síður framkvæmd þeiira. Mót þessi liafa vakið deilur á milli félag- anna, þó ekki svo alvarlegar, að vegna þeirra hafi ekki verið um eðlilegt og gott samstarf milli fé- laganna að ræða. Þessi mót gefa sérstakt tilefni til þess, að þau séu skýrð fyrir áhugamönnum um hafnfirzk íþróttamál. Raftækjaverksmiðjan h.f. í Hafnarfirði gaf ár- ið 1943 bikar til að keppa um í knattspyrnu. Var svo ákveðið í reglugerð um þessa bikai'keppni, að keppt skyldi um bikarinn í I. aldursflokki milli félaganna hér (Hauka og F. H.), og að eingöngu þeim, sem náð höfðu 19 ára aldri, skyldi heimilt að taka þátt í þessari keppni, þ. e. enginn úr yngri flokkunum átti að fá að keppa í þessu móti. Að öðru leyti var reglugerðinni hagað eins og um opinbert mót væri að ræða. Reglugerðin var svo staðfest af Í.S.Í. Keppt var í fyrsta skipti um þennan bikar árið 1943 og vann F. H. Leik þennan kærðu Haukar, vegna þess að þeir töldu einn leikmann F. H. ólöglegan, vegna keppni sinnar með Víking fyrr á árinu. í „Almennum reglum I.S.I. um knatt- spyrnumót" segir skýrt um þetta ákvæði, að sé um opinber mót að ræða, megi sami maður ekki keppa fyrir tvö félög á árinu. Eftir margítrekaðar áskoranir var loks felldur úrskurður í máli þessu, og var hann svohíjóðandi: „að leikurinn skyldi teljast löglegur“. Á síðasta aðalfundi Hauka var þessi úrskurður ræddur ýtarlegar og var einróma samþykkt að áfrýja hoxrum. Árið 1944 var svo keppt aftur. Vann þá F. FI. eftir tvo leiki. Fyrri leikurinn varð jafntefli og þurfti því að keppa aftur, en þann leik vann F. H. Árið 1945 var svo keppt í þriðja sinn. Leikið var 17. ágúst, og lyktaði þeim leik með jafntefli (1:1). Seinni leikurinn átti svo að fara frarn 13. okt., eða eftir að Haustmótinu var lokið. Voru gerðar ítrekaðar tilraunir til þess af hálfu Hauka að seinni leikurinn færi fram áður en Haustmót- ið byrjaði í I. 11., en það var ekki tekið til greina af F. H., sem sá um mótið. Þegar stjórn F. H. til- kynnti að leikurinn skyldi fara fram 13. okt., fóru Haukar fram á að lronum skyldi frestað um einn dag, þ. e. færi fram á sunnudegi í stað laugar- dags. Ástæðan fyrir þessaii beiðni Hauka var sú, að flestir keppendur félagsins voru ýmist bundnir störfum vegna atvinnu sinnar eða félagsins, og var jxað í sambandi við lilutaveltuna. Beiðni jressari var synjað. Haukar mættu ekki til leiks og F. H. taldi sig hafa unnið mótið, eins og getið var um á Íþróttasíðu Morgunblaðsins í haust. Haukar geta ekki fallist á þessa skoðun Árna Ágústssonar, sem ritaði greinina í ÍJxróttasíðu Morgunblaðs- ins. Haukar munu skjóta þessu máli til réttra aðila til athugunar. í sambandi við Jretta mál munu Haukar leggja fram tillögu á næsta þingi Í.B.H. um Jxað, að stjórn bandaiagsins raði niður öllurn leikjum fyrirfram og ákveði um leið að þeir skuli fara fram á þeim tíma, sem reglugerðir segja til um, en ekki löngu eftir á. Þá myndu meðlimir beggja fé- laga að einhverju leyti geta liagað sumarfríum eftir þeini niðurröðun leikjanna. íslandsmeistaranafnbót sína. Þá höfðu orðið nokkrar breytingar á liði þeirra, en j:>að tekur alltaf nokkurn tíma að byggja það upp aftur. F.H. sýndi einnig góðan leik, en stúlkurnar virtust vei'a óheppnar, og gefur markafjöldinn ekki rétta mynd af styikleik þeirra. Haukastúlkurnar sýndu góðan leik, en þeim hættir oft við að nota ekki öll þau tækifæri, sem þeim gefast, til að skjóta á mark mótherja. Mótinu lauk með hófi, sem íþróttabandalag Is- firðinga hélt öllum þátttakendum mótsins. Einn- ig hafði Í.B.Í. boðið þátttakendum í ferðalög um nágrenni ísafjarðar. Bæjaistjói'n ísafjarðar bauð þátttakendum í ferðalag til Flateyxar og Þingeyr- ar, með viðkomu að Núpi í Dýrafiiði. Guðmund- ur Hagalín, forseti bæjarstjórnar ísafjaiðai', var með í förinni og skemmti með upplestri og frá- sögn, einnig útskýrði hann ýms örnefni. Það er óhætt að fullyrða, að þetta mót fór í alla staði hið bezta fram, og er það þeim, sem að Jxví stóðu, til sóma, og er ekki að efa, að næsta móts mun verða beðið xxieð ójDieyju af þátttakendxim þeim, sem höfðu tækifæri til að fylgjast með því. 28 AFMÆLISBLAB H A U K A

x

Afmælisblað Hauka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.