Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Page 29
Guðný Guðbergsdóttir:
Stofnun og stærstu árangrar kvenflokksins
Þann 16. janúar 1938 var haldinn stjórnarfund-
ur í Knattspyrnufélaginu Haukum, þar sem rætt
var um stofnun kvennaflokks innan félagsins. A
fundinum mættu 11 stúlkur, og var 5 af þeim fal-
ið að undirbúa stofnfund, sem lialda átti þrem
dögum síðar.
Stofnfundurinn var svo haldinn þ. 11. janúar
að Hótel Birninum. Þar mættu 23 stúlkur, sem
allar gengu í flokkinn. Þá var ákveðið, að flokk-
urinn skyldi liafa sína sérstjórn, en síðar var horf-
ið frá því ráði og flokkurinn hafður sem deild
innan félagsins. Þar sem að fundinum var ekki
lokið þetta kvöld, var haldinn framhaldsstofn-
fundur þ. 4. febr., og þá voru 18 stúlkur teknar í
flokkinn, svo að alls voru stofnendur 41. Á þess-
um fundi skýrði Hermann Guðmundsson, þáver-
andi formaður Hauka, frá fyrirhugaðri starfsskrá
flokksins. Þá var ákveðið að skipta stúlkunum í
tvo flokka, eftir aldri og í samráði við kennarann.
Kosin var á fundinum skemmtinefnd fyrir flokk-
inn, einnig voru kosnar tvær stúlkur til að að-
stoða kennarann við yngri flokkinn. Þar með lauk
þessum fundi, sem talinn er með merkustu við-
burðum í sögu Hauka.
Byrjað var strax að æfa handknattleik í fim-
leikasal Barnaskólans af miklurn álruga.
Fyrsti kappleikur kvenfl. var gegn Ármanni þ.
24. apríl 1938, ogvann kvenfl. Hauka með 29:13,
og má segja, að vel hafi verið farið af stað. Um
sumarið var svo æft að Víðistöðum.
Næsta ár, þ. 22. jan., keppti kvennaflokkurinn
við Ármann í annað skipti. Sigruðu Haukar einn-
ig, en með færri mörkum en í fyrra skiptið, eða
með 19:10.
Þessir fyrstu sigrar lyftu ákaflega mikið undir
áhuga okkar á handknattleiknum, því að ef illa
hefði verið farið af stað, er ég hrædd um að flokk-
urinn væri ekki það, sem hann er nri orðinn. Við
höfum háð marga tvísýna leiki síðan við byrjuð-
um að keppa. Af þeim minnist ég fyrst og fremst
úrslitaleiksins á Islandsmótinu 1943, jrar sem við
lékurn á móti Ármanni á íþróttavellinum í
Reykjavík. Þrátt fyrir rigningu og bleytu á vell-
inum, var leikurinn hraður og skemmtilegur. Við
ÍSLANDSMEISTARAR 1945
(innanhúss)
Aftari röð, frd vinstri: Guðný
Gaðbergsdóttir, Sigurlaug Arn-
órsdóttir og Kristin Þorvarðar-
dóttir.
Fremri röð, frd vinstri: Svava
Júliusdóttir, Guðbjörg Magnús-
dóltir, Soffía Júliusdóttir.
A F M Æ L I S B L A Ð H A U K A
29