Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Síða 34
fundi íþróttabandalags Hafnarfjarðar, með því
að samþykkja eftirfarandi tillögu, sem borin var
fram af fulltrúum Hauka og Gísla Sigurðssyni.
„Fundurinn lætur í ljós óánægju sína yfir því
aðgerðarleysi, sem ríkt hefur varðandi byggingu
á íþróttasvæði fyrir Hafnfirðinga. Skorar fundur-
inn á íþróttanefnd bæjarins, sem á að hafa verk-
efni þetta með höndum, og sýna meiri rögg í starfi
sínu eftirleiðis, en lnin hefur gert hingað til, þar
sem fyllsta nauðsyn krefst þess, að nú strax verði
lrafizt handa um að koma upp íþróttasvæði og þá
á þeim stað, sem æskilegastur er, í Víðistöðum."
Á þessum sama fundi báru fulltrúar Hauka
einnig frani aðra tillögu, sem fjallar ekki síður
um nauðsynjamál íþróttastarfseminnar í bænum.
Tillagan var samþykkt, og birtist hún orðrétt:
„Fundurinn lýtur svo á, að fyllsta nauðsyn beri
til að komið verði upp sem fyrst fullkomnu
íþróttahúsi í bænum, og telur eðlilegast að
íþróttamenn og konur hafi sjálf forgöngu um að
koma slíku húsi upp.
Felur fundurinn stjórn Í.B.H. að annast frekar
framsfanar málsins.“
o o
Þessi tillaga var ltorin fram vegna þess, að skil-
yrðin til íþróttaiðkana innanhúss eru orðin hin
erfiðustu.
Leikfimishúsið, sem var og er enn eina athvarf-
ið fyrir íþróttastarfsemi íþróttafélaganna á vet-
urna, er orðið svo lítið og ófullnægjandi, að jvar
kemst varla annað fyrir en skólaleikfimin, og sjá-
anlegt að ástandið í þessum efnum muni enn
versna, með vaxandi starfi íþróttafélaganna og
fjölgun í skólunum.
Þess vegna er aðkallandi þörf fyrir nýtt, stórt
og fullkomið fimleikahús.
#
Það sem síðan hefur skeð í þessum málum er í
stuttu máli jretta:
Aðalfundur Hauka, sem haldinn var í vetur,
ítrekaði fyrri samþykktir fél. um að íþróttasvæði
yrði kornið upp í Víðistöðum, og átaldi harðlega
Jrað sleifarlag, sem nú ríkir um það nrál.
íþróttabandalag Hafnarfjarðar átti á s.l. sumri
viðtal við íþróttanefnd bæjarstjórnarinnar, til að
ýta á eftir framgangi byggingar íþróttasvæðis og
annarra nauðsynjamála íþróttamanna.
Niðurstaða Jress fundar var sú, að íþróttanefnd
lýsti' J)ví yfir, að hún ætlaði sér að hefjast handa
áður en langt um liði.
Síðar, í desembermánuði s.l., skrifaði íþrótta-
bandalagið bæjarstjórninni mjög ýtarlegt bréf.
Var Jress óskað ákveðið í bréfinu, að bygging
íþróttasvæðisins yrði hafin, svo og bygging á nýju
íþróttahúsi.
Þannig standa rnálin nú, þegar grein Jressi er
skrifuð. Unr frekari framgang þeirra er Jrað að
segja, að í aprílmánuði næstk. verður ársþing
íþróttabandalagsins haldið. Þess er að vænta, að
Jrar gefizt íþróttaæskunni í bænum tækifæri til
Jress að undirstrika sínar fyrri samþykktirogbrýna
viljann til sóknar fyrir þessum sem öðrum nauð-
synajmálum sínum.
*
Nú, Jregar Haukar standa á þessum nrerku
tímamótum og líta yfir farinn veg, finnst mér
að Jreir geti vel við unað, á hvern veg rækt
hefur verið baráttan fyrir bættum skilyrðum til
íþróttaiðkana. Haukar hafa mjög víða átt frum-
kvæði að framkvæmdum, sem lrafa verið til hags-
bóta fyrir starfsemi íþróttafélaganna, og Haukar
hafa háð og heyja skelegga baráttu fyrir fram-
gangi þessara tveggja rnestu velferðarmála fyrir
íþróttalífið í bænum, senr eru bygging íþrótta-
svæðisins í Víðistöðum og bygging íjrróttahúss.
#
Þessi tvö verkefni eru enn óleyst, en verulegur
skriður er kominn á um framkvæmd þeirra.
En „ekki er sopið kálið Jró í ausuna sé komið,“
segir gamall og góður málsháttur. Það er full-
víst, að jressi, sem og önnur velferðarmál lrafn-
firzkra íþróttamanna og' kvenna, verða aldrei
framkvæmd á viðunandi hátt nema íjnóttaæskan
sjáll’ hafi þar liönd í bagga.
Eina tryggingin fyrir bættunr íþróttaskilyrðum
í Jressum bæ er stari: íþróttafélaganna og vilji með-
lima þeiri'a til að berjast fyrir málefninu.
Hafnfirzkir íjrróttamenn og konur Iiafa nú þeg-
ar sýnt það með glæsilegum íþróttasigrum sín-
um, að Jrau verðskulda lretri aðbúnað til æfinga
og keppni en Jressi bær hefur nú upp á að bjóða.
Það er tími til konrinn að knýja alvarlega á
dyr hjá bæjarstjórn og krefjast úrbóta.
Það er einnig og þá eigi síður orðið tínrabært,
að hafnfirzk íþróttaæska leggi krafta sína franr
og hefji sókn fyrir hugðarmálum sínum og láti
eigi staðar numið fyrri en skilyrðin til íþróttaiðk-
ana hafa verið bætt með íþróttasvæði að Víðistöð-
um, fullkonrnu íþróttalrúsi og hafizt hafi verið
handa unr undirbúning ýnrissa annarra íþrótta-
mannvirkja, sem hinir komandi tímar gera nauð-
synleg.
34
AFMÆLISBLAÐ H A U K A