Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Síða 3

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Síða 3
3 H já lp ar st ar f ki rk ju nn ar þ ak ka r st uð ni ng in n car rental rent a car REYKJAVIK Meðal þess sem börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar fá að kynnast í vetur er þróunarsamvinna á vegum Hjálparstarfs kirkj- unnar. Fermingarbörnin fá að kynnast aðstæðum sem fólkið á verkefnasvæðum býr við og rætt er um sameiginlega ábyrgð á því að allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi. Í kjölfar fræðslunnar ganga fermingarbörnin í hús og safna framlögum til verkefna sem kynnt hafa verið. Fyrir söfnunina fá börnin leiðbeiningar um framkomu, öryggi og að gleyma ekki að vera vel klædd. Börnunum er uppálagt að fara alltaf tvö og tvö saman og foreldrar eru hvattir til að ganga með þeim. Börnin fá endurskinsmerki merkt Hjálparstarfi kirkjunnar til að bera á meðan fjáröflun stendur. Á unglingsárum þegar skilningur vex og ungt fólk er að móta sér lífsstíl er mikilvægt að fá að setja sig í samhengi við aðra í heim- inum og skynja kraft sinn til þess að breyta rétt og hafa áhrif. Við teljum að með verkefninu gefist tækifæri til að fræða fermingar- börnin um gildi náungakærleika á áþreifanlegan hátt. Með því skapast einnig mótvægi við síbylju neikvæðra frétta og tækifæri til að skynja að öll getum við lagt eitthvað af mörkum. Ef þú vilt styðja söfnun fermingarbarna til vatnsverkefna Hjálpar- starfs kirkjunnar í Afríku, geturðu hringt í söfnunarsíma 907 2003 og gefið 2.500 krónur eða lagt upphæð að eigin vali inn á reikn- ing 0334-26-56200. Kennitala 450670-0499. Nánari upplýsingar á www.help.is. Tökum vel á móti fermingarbörnunum! Fermingarbörn ársins 2020 ganga í hús 29. – 31. október og safna fé til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku Börn í fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar ganga í hús í sóknum um land allt dagana 29. – 31. október næstkomandi með bauk frá Hjálparstarfi kirkjunnar sem er merktur, númeraður og lokaður með innsigi. Börnin gefa þannig af tíma sínum til að safna fé til verkefna Hjálparstarfsins í Afríku.

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.