Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Qupperneq 4

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Qupperneq 4
4 H já lp ar st ar f ki rk ju nn ar þ ak ka r st uð ni ng in n Akel er bóndi í Kebri Hanten í Sómalífylki í Eþíópíu en þar er stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í þróunarsamvinnu. Akel fékk þurrkþolin fræ til ræktunar og ræktar nú papriku, tómata, pipar, lauk, gulrætur og fleira á landskika sínum. Akel og fjölskylda hans eiga sína eigin vatnsþró og úr henni veitir hann vatni á akurinn. Akel leggur sitt af mörkum í verkefni Hjálparstarfsins með því að kenna öðrum bændum sem búa við sára fátækt skilvirkar ræktunaraðferðir á þessu mikla þurrka- svæði. Landrof og eyðimerkurmyndun einkenna svæðið og er það rakið til öfga í veðri sem verða æ meiri. Bændurnir sem taka þátt í verkefni Hjálparstarfsins hefta landrof með því að hlaða steinum og setja vírnet í djúpa skurði sem beljandi regnið hefur myndað þegar loks hefur rignt á glerharðan jarðveginn eftir langa þurrkatíð. Bændurnir grafa hins vegar grunna skurði fyrir regnvatn á ræktarlandi sínu og sjá þannig til þess að regnvatnið hafi farveg í stað þess að flæða yfir og eyðileggja ræktar- og beiti- land enn frekar. Þeir vinna vinnuna en Hjálparstarfið greiðir fyrir þjálfun, áhöld og efni sem til þarf. Meðal meginmarkmiða verkefnisins er að bæta aðgengi að drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu og að fólkið geti aukið fæðuöryggi sitt með umhverfisvernd og bættum aðferðum í landbúnaði. Brunnar hafa verið grafnir og þar sem það hefur ekki verið mögulegt hafa verið grafnar vatnsþrær fyrir regnvatn. Þá hafa dýraliðar verið þjálfaðir til að meðhöndla dýrasjúkdóma og bólusetja búfé. Hjálparstarf kirkjunnar hefur starfað með Lútherska heimssambandinu í Sómalífylki í Eþíópíu frá árinu 2007 eða í 12 ár. Akel bóndi hjálpar Hjálparstarfi kirkjunnar við að ná árangri Aðgengi að vatni, skilvirkni og umhverfisvernd er það sem til þarf svo akuryrkja og búfjárrækt verði sjálfbær í Sómalífylki í Eþíópíu.

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.