Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Blaðsíða 4
4
H
já
lp
ar
st
ar
f
ki
rk
ju
nn
ar
þ
ak
ka
r
st
uð
ni
ng
in
n
Akel er bóndi í Kebri Hanten í Sómalífylki í Eþíópíu en þar er
stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í þróunarsamvinnu.
Akel fékk þurrkþolin fræ til ræktunar og ræktar nú papriku,
tómata, pipar, lauk, gulrætur og fleira á landskika sínum. Akel
og fjölskylda hans eiga sína eigin vatnsþró og úr henni veitir
hann vatni á akurinn. Akel leggur sitt af mörkum í verkefni
Hjálparstarfsins með því að kenna öðrum bændum sem búa
við sára fátækt skilvirkar ræktunaraðferðir á þessu mikla þurrka-
svæði.
Landrof og eyðimerkurmyndun einkenna svæðið og er það
rakið til öfga í veðri sem verða æ meiri. Bændurnir sem taka
þátt í verkefni Hjálparstarfsins hefta landrof með því að hlaða
steinum og setja vírnet í djúpa skurði sem beljandi regnið hefur
myndað þegar loks hefur rignt á glerharðan jarðveginn eftir
langa þurrkatíð. Bændurnir grafa hins vegar grunna skurði fyrir
regnvatn á ræktarlandi sínu og sjá þannig til þess að regnvatnið
hafi farveg í stað þess að flæða yfir og eyðileggja ræktar- og beiti-
land enn frekar. Þeir vinna vinnuna en Hjálparstarfið greiðir fyrir
þjálfun, áhöld og efni sem til þarf.
Meðal meginmarkmiða verkefnisins er að bæta aðgengi að
drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu og að fólkið geti aukið
fæðuöryggi sitt með umhverfisvernd og bættum aðferðum í
landbúnaði. Brunnar hafa verið grafnir og þar sem það hefur
ekki verið mögulegt hafa verið grafnar vatnsþrær fyrir regnvatn.
Þá hafa dýraliðar verið þjálfaðir til að meðhöndla dýrasjúkdóma
og bólusetja búfé. Hjálparstarf kirkjunnar hefur starfað með
Lútherska heimssambandinu í Sómalífylki í Eþíópíu frá árinu
2007 eða í 12 ár.
Akel bóndi
hjálpar Hjálparstarfi
kirkjunnar við að
ná árangri
Aðgengi að vatni, skilvirkni og umhverfisvernd er það sem
til þarf svo akuryrkja og búfjárrækt verði sjálfbær í Sómalífylki
í Eþíópíu.