Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Blaðsíða 5
5
H
já
lp
ar
st
ar
f
ki
rk
ju
nn
ar
þ
ak
ka
r
st
uð
ni
ng
in
n
Amína býr í Kebri Beyah í Sómalífylki í Eþíópíu þar sem Hjálp-
arstarf kirkjunnar vinnur með sárafátækum bændum að bættum
hag þeirra. Dæmigerðum degi ver Amína í að sækja vatn, elda
mat og gera við hústjald fjölskyldunnar. Á meðan býr maðurinn
hennar til viðarkol úr dauðum trjábolum sem hann finnur á
víðavangi og hugar að húsdýrum fjölskyldunnar.
Konur á svæðinu hafa ekki haft völd til að taka ákvarðanir um
landnotkun, búfé eða fjármál heimilisins og fá mjög takmarkað
tækifæri til að taka þátt í sveitarstjórn. Þetta valdaleysi kvennanna
í fylkinu hefur haft neikvæð áhrif á heilsu og lífsafkomu
kvennanna og fjölskyldna þeirra.
Eitt meginmarkmiða verkefnis Hjálparstarfsins á svæðinu er að
stuðla að auknu valdi og áhrifum kvenna samfélaginu öllu til far-
sældar. Konunum er boðið að taka þátt í sparnaðar- og lánahóp-
um með það að markmiði að þær geti hafið eigin atvinnurekstur.
Amína tekur nú þátt í slíkum hópi með 15 öðrum konum.
Í kjölfar fræðslu og láns kom Amína sér upp verslun með eldhús-
áhöld sem hún selur nágrönnum sínum. Ágóðann notar hún til
að kaupa nauðþurftir fyrir börnin sín og stundum vatn sem hún
sækir um langan veg, enn sem komið er, en Hjálparstarfið áætlar
að grafa vatnsþró við þorpið þar sem Amína býr undir lok ársins
2019.
Í Kebri Beyah í Sómalífylki Eþíópíu býr Amína (fyrir miðju) með eigin-
manni sínum og fjórum börnum. Í fyrra leituðu fjögur systkin á unglings-
aldri sem höfðu flúið frá átakasvæðum í Suður-Súdan ásjár hjá fjölskyld-
unni og búa nú með þeim. Elsta systirin er hér lengst til hægri.
Valdefling kvenna
er forsenda farsældar