Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 2
2 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Garðyrkjustöðin Sunna á
Sólheimum er hætt ræktun á
lífrænt vottuðum garðyrkju
afurðum.
Á Sólheimum var ákveðið
á síðasta ári að taka í notkun
sveppa massa frá Flúðasveppum
sem áburðargjafa og í kjölfarið
var áskrift að vottunarþjónustu
Vottunarstofunnar Túns sagt
upp, sem er eina sinnar tegundar
hér á landi. Þó má enn sjá
vottunarmerki á vörum frá Sunnu
í verslunum. Gunnar Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Vottunar
stofunnar Túns, segir málið komið
í ferli.
„Hliðarmiði afurðanna ber
Evrópu sambandslaufið og
kenninúmer Túns. Á einstaka
umbúðum hefur verið límt yfir
merkið en það eru greinilega
gloppur í því,“ segir Gunnar.
Lífræn vottun frá 1996
Talið er að upphaf lífrænnar
ræktunar á Íslandi hafi verið á
Sólheimum í Grímsnesi fyrir
rúmlega 90 árum. Þá settist Sesselja
Sigmundsdóttir þar að og hóf að
rækta grænmeti með hugsjónir
lífrænnar ræktunar að leiðarljósi.
Hefur Sunna haft lífræna vottun
frá árinu 1996, sem var fyrsta árið
sem Tún veitti slíkar vottanir.
Að sögn Gunnars eru 8–10 ár
síðan ráðgjafarnefnd Túns um
reglur ákvað að loka á notkun á
sveppamassanum, eftir að hafa veitt
nokkurra ára aðlögunartíma fyrir
framleiðendur til að fasa hann út.
Kristinn Ólafsson, framkvæmda
stjóri Sólheima, segir að ekki sé
notast við tilbúinn áburð hjá
Sunnu. „Við notum sveppamassa
sem er með um sex prósent af
kjúklingaskít, frá hænum sem eru
ekki vottaðar. Tún hefur neitað að
samþykkja hann þó þetta sé leyft í
löndunum í kringum okkur og sé
innan skekkjumarka samkvæmt
reglugerðum Evrópusambandsins,“
segir Kristinn.
Heimilt að nota
fjölþætt áburðarefni
Spurður almennt um leyfileg
áburðarefni til ræktunar á lífrænt
vottuðum afurðum, segir Gunnar að
reglugerðir um lífræna framleiðslu
tilgreini fjölþætt áburðarefni sem
heimilt er að nota.
„Þar á meðal búfjáráburð
úr hefðbundinni búfjárrækt, að
því tilskildu að áburðurinn sé
rétt meðhöndlaður, gerjaður og
niðurbrotinn, og að hann sé ekki
upprunninn úr verksmiðjubúskap.
Þá er rétt að taka fram að áburður
má ekki innihalda erfðabreytt
efni, úr fóðurgjöf eða leifar
hefðbundinna lyfja. Hér á landi er
unnt að hagnýta þang og þara og
afurðir þess, afurðir fiskimjöls og
kjötmjölsframleiðslu, sumt af þessu
er vottað lífrænt og annað sjálfbært.
Þá er unnt að nota áburð frá lífrænni
sauðfjárrækt, nautgriparækt og
alifuglarækt, svo og hefðbundinni
svo framarlega sem ofangreind
skilyrði eru uppfyllt.“
Opinberan stuðning skortir
Gunnar segir tal um að hér á landi
skorti leyfileg áburðarefni fyrir
lífrænt vottaða ræktun sé mjög
orðum aukið. „Ég hef að minnsta
kosti ekki séð nein haldbær gögn
sem styðja slíkar fullyrðingar. Hins
vegar skortir opinberan stuðning
og fræðslu til þess að nýta fáanleg
efni til áburðarframleiðslu sem
uppfyllir kröfur. Slíkan stuðning
og þekkingu vantar bæði hjá
mögulegum áburðarframleiðendum
og hjá bændum.
Almennt má hins vegar benda á
að ef umsækjandi eða vottunarhafi
leitar eftir heimild til að nota
óvottuð aðföng verður viðkomandi
að sýna fram á að aðföngin innihaldi
leyfileg efni. Ef ekki er sýnt fram
á það þá getur viðkomandi ekki
notað umrædd aðföng til lífrænnar
ræktunar. Þetta hefur átt við um
svepparotmassa.“
Aðgengi og upplýsingar
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir er
formaður VOR, félags framleiðenda
í lífrænum búskap, og segir hún að
eitt af brýnu málunum í framtíðinni
sé að aðgengi að nauðsynlegum
aðföngum líkt og áburðarefnum
sé eins og gott og hægt er, til að
tryggja framtíð lífræns landbúnaðar.
„Í því samhengi langar mig að
benda á aðgerðaáætlun stjórnvalda
til eflingar lífrænnar ræktunar, sem
ég geri mér vonir um að sé rétt að
fara að líta dagsins ljós. Í drögum
hennar, sem matvælaráðuneytið
birti í nóvember síðastliðnum,
kafla 3.2, er einmitt fjallað um
aðföng, meðal annars mikilvægi
þess að kortleggja uppsprettur
lífræns áburðar og auka gegnsæi
fyrir notendur þeirra, svo augljóst
sé fyrir notendur að um leyfileg
áburðarefni sé að ræða – og að
innihald og næringargildi sé ljóst,“
segir hún.
Mikilvægt sé og augljós
hagræðing fyrir framleiðendur að
hafa aðgengi að upplýsingum um
hvar lífræn leyfileg áburðarefni til
notkunar í vottaðri framleiðslu sé
að fá og eins hvert raunverulegt
næringargildi og innihald þeirra sé.
„Það getur í raun skipt sköpum bæði
fyrir starfandi framleiðendur og
ekki síður þau sem eru að taka sín
fyrstu skref í vottaðri framleiðslu.
Þetta er eitt af grunnatriðunum.“
Framleiðsla og sala
á áburðarefnum
„Þá eru líka ótalin verðmætin sem
geta skapast vegna framleiðslu og
sölu á téðum áburðarefnum,“ heldur
Elínborg áfram.
„Það er síðan skoðun VOR að
heimildir eigi að vera eins rúmar
og hægt er og að samræmi við
útfærslur í öðrum löndum Evrópu sé
sem mest, án þess þó að það komi
niður á trúverðugleika vottunarinnar.
Heimildirnar verða að vinna með
framleiðendum og gera sem flestum
kleift að starfa innan ramma vottaðrar
framleiðslu.
Þarna er til dæmis mikilvægt að
reglugerðir geri ráð fyrir að nýir
áburðargjafar geti komið fram og
hefti ekki nýsköpun og þróun.“ /smh
HVERNIG GEKK
HEYSKAPURINN?
Rétt fóðurgjöf er forsenda þess að
ná hámarksárangri í mjólkur-
framleiðslu.
Pantaðu heysýnatöku
og ráðgjöf hjá Líflandi
í tæka tíð
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar
Sólheimar án
lífrænnar vottunar
– Notast enn við óleyfilegar vottunarmerkingar á vörum sínum
Enn má sjá vottunarmerki á vörum
Sunnu, þótt lífrænni vottaðri
framleiðslu hafi verið hætt síðasta
sumar.
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir.
Frá garðyrkjustöðinni Sunnu á Sólheimum.
Nýlega hafa verið gefnar út
verðskrár með afurðaverðs
hækkunum til bænda fyrir
nautgripakjöt þar sem gert
er ráð fyrir um sex prósenta
meðaltalshækkun.
Ný verðskrá Sláturfélags
Suðurlands tók gildi 15. júlí. Í
tilkynningu segir að kýr, naut og
alikálfar hækki um átta prósent,
en aðrir flokkar um fjögur prósent.
Einnig er greidd átta prósenta viðbót
ofan á þá verðskrá sem var í gildi frá
1. apríl 2024.
Misjafnt milli flokka
Einar Kári Magnússon, aðstoðar
sláturhússtjóri hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga, segir að hækkanir hjá
þeim séu einnig misjafnar á milli
flokka og því mismunandi hvernig
útkoman sé fyrir bændur. Mest
sé verðhækkun á kýrkjöti, eða 11
prósent að jafnaði, ungneyti hækki
um rúm fimm prósent en verð fyrir
ungar kýr standi nokkuð í stað.
Meðalhækkunin sé um sex prósent.
Meira þarf til
Rafn Bergsson, formaður deildar
nautgripabænda hjá Bænda
samtökum Íslands, fagnar öllum
hækkunum á afurðaverði. „Það hafa
verið mjög erfið rekstrarskilyrði í
nautakjötsframleiðslu síðastliðin ár.
Líkt og rekstrarverkefni Ráðgjafar
miðstöðvar landbúnaðarins um
afkomu í nautakjötsframleiðslu
hefur sýnt þá hafa afurðatekjur ekki
staðið undir framleiðslukostnaði.
Svo ég fagna auðvitað öllum
hækkunum á afurðaverði á
nautakjöti, þó meira þurfi vissulega
til. Vonandi verða fljótlega frekari
hækkanir til bænda,“ segir Rafn.
/smh
Hækkun á
afurðaverði
Um sex prósenta hækkanir eru á
afurðaverði nautgripabænda.
Mynd / smh
Bændablaðið
www.bbl.is