Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 35

Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 Líf & starf Fyrsta okks ítalskar útiísar Gæddu garðinn, útisvæðið, svalirnar eða innkeyrsluna nýju lí 2-3cm þykkar útiísar frá Casalgrande Padana og DelConca sem hægt er að líma niður, leggja í sand eða setja á hæðarstillandi stóla. Verið velkomin í Flísabúðina og fáið ráðgjōf sérfræðinga okkar. Stórhöfða 21, 110 Reykjavík | 545 5500 | flis@flis.is | flisabudin.is Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is AKURShús - íbúðarhús og frístundahús Afhent óuppsett í einingum eða uppsett á byggingarstað – Allt eftir þínum óskum Kynntu þér húsabæklinginn okkar á akur.is og fáðu verðáætlun í húsið þitt Íslensk hönnun & framleiðsla ára 1959- 2024 Sendu okkur línu á akur@akur.is Lítill verslunarrekstur í stöðugri þróun Á Melum á Flúðum er lítil sveitabúð sem hét Litla Melabúðin, en nafninu var fyrir fáeinum árum breytt í Litla Bændabúðin, sem hugsuð er sem miðpunktur fyrir grósku uppsveitanna. Rakel Ósk Kristófersdóttir, nýráðin rekstrarstjóri búðarinnar, hefur verið að bæta við vöruúrvalið í sumar. Litli verslunarreksturinn er í stöðugri þróun, að sögn Rakelar. „Við leggjum áherslu á að selja hreina og góða matvöru úr nærumhverfi en höfum líka verið að auka sölu á matvöru frá smáframleiðendum víðs vegar að á landinu. Svo höfum við síðustu vikur verið að þróa vöruúrvalið enn frekar í áttina að því að vera meira eins og kaupmaðurinn á horninu. Bætt við hefðbundnum matvörum eins og til dæmis mjólkurvörum og þurrvöru en líka sérvöldum innfluttum matvörum sem fólk rekst kannski almennt ekki á í hefðbundinni verslunarferð svo það fylgir því ákveðin upplifun að kíkja til okkar og jafnvel prófa eitthvað nýtt,“ segir hún. Kaffihús Rakel segir að önnur nýjungin sé áhersla á kaffisölu með tilheyrandi bakkelsi og smurðum rúnstykkjum til að styrkja rekstrargrundvöll verslunarinnar. „Við bjóðum upp á kaffisölu í take-away og vonumst til að með þessu getum við haft lengri og meiri opnunartíma, líka yfir vetramánuðina til að þjónusta nærumhverfið okkar betur. Þess vegna reynum við að leggja áherslu á aukið úrval núna og reynum að ná til ferðamanna til að hafa svigrúm til að styrkja reksturinn,“ segir Rakel Ósk. Afurðir beint frá garðyrkjustöðinni „Búðin gefur okkur líka tækifæri, samhliða ræktuninni í garðyrkju- stöðinni, til að vera í ákveðnum tengslum við neytendur og markaðinn. Garðyrkjustöðin hefur verið með alls konar kryddjurtir og tómatasortir í prufu, eggaldin, kúrbít og aðrar stærðir af gúrku. Í sjálfu sér getum við prófað okkur áfram með alls konar tegundir í litlu magni og fengið smá tilfinningu fyrir hvernig þær eru í ræktun og hvaða viðtökur þær myndu fá á almennum markaði,“ heldur Rakel áfram. „Við erum líka með vottaða eldunaraðstöðu og þegar tækifæri gefst prófum við okkur áfram að vinna til dæmis úr öðrum flokki eða útlitsgölluðu grænmeti einhverjar vörur til sölu í búðinni til að styrkja verðmæti framleiðslunnar hjá okkur. En við reynum líka að hvetja aðra á svæðinu til að hafa samband ef þau vilja koma einhverju í sölu og framtíðarsýnin okkar byggir á því að við getum verið miðpunktur fyrir alla þá grósku sem er í matvælaframleiðslu í uppsveitunum,“ segir Rakel að lokum. Hún vísar áhugasömu fólki um Litlu Bændabúðina að fylgjast með henni á Instagram og Facebook. /smh Lara Clemente, sem er frá Brasilíu og vinnur við afgreiðslu í búðinni, er hér með Rakel Ósk Kristófersdóttur í Litlu Bændabúðinni á Melum. Eggaldin og kúrbítur eru fremur fágætt íslenskt grænmeti. Margvíslegar tómatategundir beint úr garðyrkjustöðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.