Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 10
10 Fréttir Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 Búist er við að neysla á land- búnaðarvörum á heimsvísu aukist um 13 prósent á næstu tíu árum. Jafnframt er viðmiðunarverð þeirra talið muni lækka lítillega að raungildi. Gert er ráð fyrir að framleiðsla heimsins á landbúnaðarvörum aukist að meðaltali um 1,1 prósent á ári á komandi áratug. Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) og Matvælastofnun Sam- einuðu þjóðanna (FAO) segja í nýrri skýrslu, Landbúnaðarhorfur 2024– 2033, að neysla landbúnaðarvara á heimsvísu muni aukast um 13 prósent á næstu tíu árum. Áætlað er að vöxtur í mjólkurframleiðslu í heiminum verði meiri en í öðrum landbúnaðarafurðum á því tímabili, um 1,6 prósent á ári. Jafnframt muni viðmiðunarverð landbúnaðarafurða lækka lítillega að raungildi á tímabilinu. Það komi þó ekki endilega til með að endurspeglast í smásöluverði á matvælum því þar séu margar breytur, svo sem í umhverfis-, félags-, pólitísku og efnahagslegu tilliti. Lág- og meðaltekjulönd knýja áfram vöxt landbúnaðarafurða. Lögð er í skýrslunni áhersla á að þróttmiklir alþjóðlegir markaðir fyrir landbúnaðarvörur verði áfram mikilvægir fyrir fæðuöryggi þjóða og lífsviðurværi dreifbýlis. Þjóðir heims hafi aukið framleiðslu sína hratt, með nýrri tækni, nýsköpun og nýtingu á náttúruauðlindum landanna. Mjólkurframleiðsla vex meira en aðrar greinar Samkvæmt OECD/FAO munu neytendur áfram hafa mjólkurvörur í hávegum sem mikilvægan hluta af heilbrigðu og næringarríku mataræði. Í takt við hækkandi tekjur og fólksfjölgun er áætlað að neysla haldi áfram að aukast á heimsvísu til meðallangs tíma. Einkum knýja Indland og Pakistan þann vaxtarbrodd. Neysla á hvern íbúa á unnum mjólkurvörum heldur einnig áfram að aukast. Áætlað er að mjólkurframleiðsla í heiminum verði meiri en í öðrum landbúnaðarafurðum á komandi áratug, um 1,6 prósent á ári. Búist er við meira en helmingi framleiðsluaukningar í Indlandi og Pakistan. Gert er ráð fyrir að löndin samanlagt muni standa fyrir yfir 30 prósentum af mjólkurframleiðslu heimsins árið 2033. Innan ESB er gert ráð fyrir að mjólkurframleiðsla minnki lítillega vegna minni eftirspurnar, framleiðslutakmarkana sem tengjast umhverfislöggjöf og útbreiðslu annarra framleiðslukerfa. Um það bil 7 prósent af þeirri mjólk sem framleidd er í heiminum verður vara á alþjóðlegum mörkuðum. Meira alifuglakjöt innan ESB Spáð er að kjötframleiðsla í heiminum muni aukast um 12 prósent á tímabilinu og ná 388 milljónum tonna miðað við skrokkþyngd (cwe). Búist er við stærstum hluta framleiðsluaukningar í Asíu og talið að alifuglakjöt styrki þegar markaðsráðandi stöðu á kjötmarkaði. Gert er ráð fyrir að neysla á kjúklingi, svínakjöti, nautakjöti og lambakjöti aukist um 16 prósent til ársins 2033. Kjötneysla aukist um 0,5 kíló á mann á ári og verði komin í 28,6 kílóa ársneyslu á mann árið 2033. Í prósentum talið eykst neysla á mann um 2 prósent árið 2033. Það er þó aðeins þriðjungur af vexti síðasta tíu ára tímabils. Ásamt Indlandi og Kína er búist við að kjötneysla aukist mest í Víetnam, Bandaríkjunum og Brasilíu. OECD/FAO bendir á alþjóðlega þróun þar sem neytendur verði sífellt næmari fyrir dýravelferð og umhverfis- og heilbrigðismálum sem tengjast dýraframleiðslu, sem samkvæmt OECD/FAO gæti leitt til minni kjötneyslu á mann. ESB er nefnt sem dæmi. Þar er gert ráð fyrir að í stað neyslu kjöts af nautakjöti, svínum og sauðfé komi alifuglakjöt. Á heimsvísu er einnig talið að alifuglakjöt standi undir helmingi aukningar kjötneyslu. Hár framleiðslukostnaður, m.a. fóðurkostnaður, og strangara regluverk hefur haft rík áhrif á kjötframleiðslu undanfarin ár, auk ýmissa sjúkdóma. Talið er að framleiðendur þurfi að bæta framleiðni sína til að viðhalda samkeppnishæfni, m.a. með afkastaaukningu á grunni bættrar ræktunar og skilvirkari verkferla, bættri fóðurnýtingu og meiri sláturþyngd. Hlutfall landbúnaðarhráefnis sem fer í fóður er talið munu aukast eftir því sem dýraframleiðsla vex og eflist. Kornframleiðsla eykst um 350 milljónir tonna Vöxtur korneftirspurnar mun skv. skýrsluhöfundum ekki aukast og á það rætur að rekja til minnkandi eftirspurnar eftir fóðri, lífeldsneyti og iðnaðarnotkunar korns. Vöxtur í eftirspurn korns er fyrst og fremst tengdur fólksfjölgun í lægri millitekjulöndum. Búist er við aukinni eftirspurn eftir hveiti og hrísgrjónum í Asíu en í Afríku er reiknað með aukinni neyslu á hirsi, dúrru og hvítum maís. Hrísgrjón eru einnig að aukast í fæðu sumra Afríkulanda. Talið er að kornframleiðsla á heimsvísu aukist um 350 milljónir tonna og verði 3.200 milljónir tonna árið 2033. Um 40 prósent aukningarinnar verður í Asíu. Að meðaltali fara 17 prósent af kornframleiðslu heimsins á alþjóðlega markaði. Losun dregst saman Christina Furustam, sérfræðingur hjá Landssamtökum bænda í Svíþjóð, bendir í umfjöllun sinni um skýrslu OECD/FAO að einkar jákvætt sé að Afríka muni á komandi árum eiga vaxandi hluta framleiðslu- aukningar kornvöru. Þá muni land- búnaðarframleiðsla heims losa minna af gróðurhúsalofttegundum á hverja einingu en áður. Hún tiltekur einnig að mjólkurvörur styrki stöðu sína sem uppspretta næringar og orku fyrir neytendur. /sá Landbúnaðarhorfur 2024–2033: Mesti vöxturinn í mjólkurframleiðslu – Þrettán prósenta aukningu spáð í heimsneyslu landbúnaðarvara Í nýrri skýrslu OECD/FAO um landbúnaðarhorfur á heimsvísu til ársins 2033 er áætlað að vöxtur í mjólkurframleiðslu í heiminum verði meiri en í öðrum landbúnaðarafurðum, árlega um 1,6 prósent til 2033. Hér má sjá evrópskar kýr í stórbrotnu alpalandslagi. Mynd / Pete Linforth-Pixabay Á Espiflöt í Reykholti í Biskups- tungum hefur á undanförnum vikum verið unnið að hækkun á einu gróðurhúsi blómabændanna sem þar reka garðyrkjustöð sína, í því skyni að skapa skilyrði til aukinnar framleiðslu. Mikill uppgangur hefur verið í blómaframleiðslu á undanförnum árum, eða allt frá því að Covid- faraldurinn skall á Íslandi í byrjun árs 2020. Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasam- tökum Íslands, stýrir garðyrkju- stöðinni á Espiflöt og segir hann að tekið hafi verið gamalt og vel byggt 1.200 fermetra gróðurhús og það hækkað um 1,5 metra. „Við fengum hollenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þannig aðgerðum til að sjá um verkið. Með aukinni lofthæð skapast betri skilyrði inni í gróðurhúsinu hvað varðar loft og raka. Við getum líka sett upp öflugri vaxtarlýsingu,“ segir Axel. Axel gerir ráð fyrir að uppskeran aukist um 30–50 prósent þegar framkvæmdinni er lokið og gróðurhúsið komið í fullan gír aftur. „Sala á blómum jókst mjög í Covid og hefur ekkert dregist saman síðan. Þetta hefur aukið á tekjur okkar og við nýtt það til að reyna að gera enn betur eins og þessi aðgerð sýnir.“ /smh Gróska hjá blómabændum – Aukin framleiðsla á Espiflöt með hækkun á gróðurhúsi Frá framkvæmdunum á Espiflöt. Axel Sæland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.