Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 15.08.2024, Blaðsíða 48
48 Skoðun Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024 Starfsemin á Sauðfjársetrinu á Ströndum hefur gengið mjög vel í sumar og aðsókn verið góð. Nú er fram undan Íslandsmót í hrútadómum sem verður þann 18. ágúst og hefst keppnin sjálf kl. 14, en kjötsúpuveisla og markaðsdagur fyrr um daginn á vegum Beint frá býli. Í s l a n d s - meistaramótið í hrútadómum hefur verið haldið frá árinu 2003, en féll niður tvö ár í röð vegna Covid. Í ár er því keppnin haldin í 20. sinn og hlökkum við mikið til. Þennan dag kemur fólk alls staðar að af landinu, bændur og búalið, til að taka þátt eða fylgjast með, en það hafa verið á bilinu 300 og upp í 500 gestir á hrútaþuklinu undanfarin ár. Á síðasta ári stóð Jón Stefánsson frá Broddanesi á Ströndum uppi sem sigurvegari og er núverandi Íslandsmeistari. Strandamönnum þykir alltaf nokkuð gott þegar heimafólk vinnur titilinn og munu því væntanlega reyna eins og þau geta til að halda í þann heiður. Sigurvegarinn í flokki vanra fær verðlaunagripinn Horft til himins til varðveislu í eitt ár en auk þess eru veglegir vinningar í báðum flokkum. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn. Á þessu ári er Beint frá býli dagurinn haldinn samhliða hrútaþuklinu í Sævangi frá kl. 13–16, sem er sérlega skemmtilegt. Þar munu framleiðendur verða með kynningu og sölu á sínum vörum. Gert er ráð fyrir að um 10 framleiðendur taki þátt í markaðnum og verður fjölbreytt úrval vara til sölu. Nánari upplýsingar um þann viðburð má finna á heimasíðunni beintfrabyli.is. Náttúrubarnahátíð og skemmtiferðaskip Sauðfjársetrið á Ströndum er sjálfseignarstofnun og viðurkennt safn sem sinnir öllum þáttum safnastarfs, en er líka mikilvæg menningarmiðstöð í héraðinu. Hér hittist heimafólk og á saman góðar stundir á margvíslegum viðburðum. Sumarið hefur gengið vel og aðsóknin verið frábær það sem af er sumri. Gestir á Kaffi Kind, sem rekin er í tengslum við Sauðfjársetrið, hafa einnig verið margir. Náttúrubarnahátíð var haldin með pomp og prakt um miðjan júlí og gekk mjög vel en það komu rúmlega 300 manns á hátíðina. Markmið Náttúrubarnahátíðarinnar er að kenna fólki að veita náttúrunni athygli og að börn upplifi og fræðist um náttúruna í gegnum leik úti í náttúrunni. Sú nýbreytni er í sumar að við fórum að fá skemmtiferðaskip í heimsókn til okkar á setrið. Undirbúningur hefur staðið yfir í rúmt ár, við fengum eitt skip í fyrrasumar til prufu og svo hafa komið skip átta sinnum í heimsókn í sumar. Þetta eru skemmtiferðaskip í minni kantinum og eru öll frá norska skipafélaginu Hurtigruten. Þetta hefur gengið frábærlega, gestirnir koma á safnið og skoða sýningar, fá rabarbaraköku og kaffi, fara í fjallgöngu og fuglaskoðun, tína rusl í fjörunni og ýmislegt fleira. Náttúrubarnið og þjóðfræðingurinn Dagrún Ósk Jónsdóttir fer svo jafnan með fyrirlestur og safnaskemmtun um íslenskar þjóðsögur og flytur farþegum pistilinn um borð í skipinu. Við vonum svo sannarlega að það verði framhald á þessum heimsóknum. Fjórar sýningar uppi Starfsemin er öflug og reksturinn hefur verið í jafnvægi síðustu ár. Nokkrar sýningar eru jafnan á Sauðfjársetrinu. Fastasýningin heitir Sauðfé og sveitafólk á Ströndum og er í aðalsalnum í Sævangi sem var áður félagsheimili Tungusveitunga. Auk þess eru nú uppi þrjár aðrar sýningar. Sýning um förufólk og flakk í gamla sveitasamfélaginu sem opnuð var árið 2022 og svo voru tvær nýjar sýningar opnaðar í vor. Annars vegar Ullarfléttan sem er á listasviðinu, Ásta Þórisdóttir, listakona á Hólmavík, hannaði þá sýningu. Hins vegar er málverkasýning Hólmfríðar Ólafsdóttur í Kaffi Kind. Fjórða sérsýningin er svo utandyra, við göngustíginn Sjávarslóð sem liggur frá Sauðfjársetrinu út í Orrustutangann. Þá sýningu er hægt að skoða allan sólarhringinn og allt árið en fjöldi upplýsingaskilta er við stíginn og einnig listaverk og skúlptúrar eftir listamanninn Arngrím Sigurðsson. Verðlaun og viðburðir Það gladdi okkur óskaplega að fá tilnefningu til íslensku safnaverðlaunanna í vor, fyrir starf í þágu samfélagsins. Þá fékk safnið líka Lóuna – menningarverðlaun Strandabyggðar núna í sumar. Sauðfjársetrið er opið daglega yfir sumartímann, frá kl. 10–18, og yfir veturinn í tengslum við viðburði og heimsóknir hópa. Setrið stendur einnig fyrir margvíslegum viðburðum, bæði fyrir heimamenn og gesti, til dæmis Þjóðtrúarkvöldvöku sem jafnan er haldin í september og sviðaveislu í október. Heimafólk kemur saman og spilar félagsvist á safninu og þar eru líka sögustundir yfir veturinn, tónleikar af og til, og síðustu ár hafa þar verið æfð og sýnd leikrit í samvinnu við Leikfélag Hólmavíkur. Eftir að skemmtiferðaskipin fóru að koma í heimsókn á þessu ári er meirihluti gesta Sauðfjársetursins í fyrsta skipti erlendir ferðamenn, en sýningartextar eru á íslensku, ensku, þýsku og frönsku. Helstu bakhjarlar Sauðfjársetursins eru Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og Safnasjóður, en sá stuðningur gerir allt þetta starf mögulegt og erum við þeim því mjög þakklát. Verið öll hjartanlega velkomin á Sauðfjársetrið í sumar. Höfundur er framkvæmdastjóri Sauðfjárseturs á Ströndum. Íslandsmeistaramót í hrútadómum Ester Sigfús- dóttir. Frá Íslandsmótinu í hrútadómum árið 2015. Sverrir Guðbrandsson frá Bassastöðum og hrúturinn Kroppur. Það er ástæða til að fagna því að skriður sé kominn á innviða- uppbyggingu förgunar auka- afurða dýra á Íslandi. S ö f n u n og ráðstöfun dýraleifa í efsta áhæ t tu f l okk i og opinbert eftirlit hefur í áraraðir verið ófullnægjandi. Þarna liggja m i k i l v æ g i r hagsmunir undir varðandi matvælaöryggi, varnir gegn dýrasjúkdómum og umhverfisvernd. Að baki liggja viðskiptahagsmunir enda hefur söfnunarkerfi dýraleifa og ráðstöfun þeirra gengið á skjön við alþjóðlegar skuldbindingar gagnvart EES-samningnum sem er grundvallarstoð fyrir viðskipti með sjávarafurðir og önnur matvæli. Söfnunarkerfi dýrahræja og sláturúrgangs er undirstaða þess að uppfylla skuldbindingar Íslands um tilhlýðilega meðhöndlun og vinnslu aukaafurða dýra og tryggja öryggi manna og dýra hvað varðar smitsjúkdómavarnir. Frumkvæði stjórnvalda Aukaafurðir dýra eru sá hluti sem ekki er nýttur til matvælaframleiðslu. Slíkar afurðir falla til við veiðar, slátrun, frumframleiðslu matvæla sem og aðra matvælaframleiðslu, í náttúrunni, á sveitabæjum, í sjávarútvegi, við slátrun og vinnslu á mjólkurafurðum. Fólki og dýrum í nánd getur stafað áhætta af aukaafurðum, sem unnt væri að minnka með viðeigandi meðhöndlun. Ríkið hefur haft frumkvæði að einu landsbundnu söfnunarkerfi fyrir dýrahræ og sláturúrgang, líkt og tíðkast í nágrannalöndum. Verkefnið fellur að hluta innan lögbundins hlutverks sveitarfélaga varðandi meðhöndlun úrgangs. Sérstaklega mikilvægt er að koma á útfærslu á söfnunarkerfi dýraleifa á landsvísu í „áhættuflokki eitt“, og tryggja viðeigandi úrvinnslu eða förgun. Efninu verði fundinn farvegur með vinnslu þess á Dysnesi í Eyjafirði. Verkefni líforkuvers Félaginu Líforkuveri ehf. hefur verið fengið það hlutverk að vinna tillögu að útfærslu samræmds söfnunarkerfis dýraleifa í áhættu- flokki eitt á landsvísu. Að auki vinnur félagið að undirbúningi innviðauppbyggingar á Dysnesi svo hægt sé að vinna efnið með ábyrgum hætti. Það er í eigu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Akureyrar- bæjar, Hörgársveitar og Kjarna- fæðis/Norðlenska. Félagið hefur leitað innlendrar og alþjóðlegrar ráðgjafar til að meta hvaða kröfum þyrfti að mæta hér á landi og hver kostnaðurinn yrði. Samvinna á Dysnesi Það er ljóst að ríkisvaldið þarf að tryggja fjármögnun söfnunarkerfis dýraleifa á landsvísu í áhættuflokki eitt. Vegna kostnaðar verður einungis ein slík úrvinnsla reist á Íslandi. Það skyldi vera á Dysnesi í Eyjafirði. Að þessu verkefni verða margir að koma eigi vel að vera. Sveitarfélög, afurðastöðvar og atvinnurekendur í landbúnaði þurfa hér að taka virkan þátt. Ástæða er að fylgjast með uppgangi félagsins Líforkuvers við Dysnes. Undir liggja miklir hagsmunir matvælaiðnaðar auk þess sem verkefnið er í anda nýrra tíma umhverfisverndar. Gengi verkefnið eftir yrði það mikil lyftistöng fyrir mikla uppbyggingu hafnarinnviða sem stefnt er að á Dysnesi. Því metnaðarfulla verkefni væri loks hrint af stað. Það væri vel fyrir athafnalíf byggðar við Eyjafjörð. Það yrði gæfuspor fyrir Ísland. Höfundur er oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Norðausturkjördæmi. Líforkuver á Dysnesi við Eyjafjörð Njáll Trausti Frið- bertsson. Til að tryggja matvælaöryggi, varnir gegn dýra- sjúkdómum og umhverfisvernd þarf að byggja innviði hér á landi fyrir söfnun. Félaginu Líforkuveri ehf. hefur verið fengið það hlutverk að vinna tillögu að útfærslu samræmds söfnunarkerfis dýraleifa í áhættuflokki eitt á landsvísu. Mynd / smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.