Bændablaðið - 15.08.2024, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024Viðtal
Á meðan vætutíð sumarsins hefur
ekki endilega glatt hinn almenna
Íslending hafa sveppaáhugamenn
iðað í skinninu. Gekk sá orðrómur
að vegna vætunnar hafi tínsla nú
verið möguleg fyrr en ella en telja
margir að ferðir í sveppamó eigi
helst að eiga sér stað síðsumars.
Fagmenn á borð við Guðríði
Gyðu Eyjólfsdóttur, einn helsta
sveppafræðing hérlendis, gefa lítið
út á það. Hún segist hafa í lengri tíma
reynt að benda fólki á að tínslu sveppa
er rétt að hefja mun fyrr en í ágúst
og september, ekki sé óvenjulegt að
hún geti hafist um miðjan júlí. Segir
Guðríður lerkisveppinn vera mettan
um það leyti, að minnsta kosti á
Norðurlandi og kúalubbinn kominn
eitthvað á undan.
Í byrjun september sé hins
vegar sveppatíðin nær oftast búin.
Næturfrost geti hafist um það leyti og
því sé nær að fylgjast vel með hvenær
sveppirnir fari að stinga upp kollinum
um mitt sumar og þá hægt að vakta
það svæði með tilliti til tínslu þegar
þeir séu fullvaxnir.
Þá er ágætt að tína það sem maður
þarf til sinnar neyslu og ekki taka
minni, óvaxta sveppi heldur leyfa
þeim að vaxa og þroskast áfram. Svo
má hafa bak við eyrað að ef mikill
þurrkur er, þá koma kannski engin
sveppaldin fyrr en í byrjun september
og uppskeran eftir því.
Sveppir eru annars mislengi að
vaxa. Kantarellur taka til dæmis
langan tíma að stækka almennilega
og ætti að leyfa þeim litlum að vera
í friði.
Væta, hiti og árið á undan
„Væta er ekki bara málið þegar kemur
að vexti sveppanna,“ segir Guðríður.
Hiti leiki þar stórt hlutverk og því
geti þeir sem spenntir voru fyrir
vætunni í sumar staldrað aðeins við.
„Það var til dæmis ákaflega blautt
á sunnan- og vestanverðu landinu
einhvern tíma fyrir nokkrum árum
– og þá var ekkert sérstaklega góð
spretta í þeim landshlutum. Fyrir
marga þessara matsveppa skiptir
árið á undan máli því þeir eru tengdir
trjám, sem mynda svepprót. Ekki
allir en margir. Í rauninni skiptir
árið á undan tréð máli því það
skaffar sveppunum næringu. Þeir fá
sykurefni frá trénu yfir í sig og skaffa
vatn og öll áburðarefnin í staðinn,
nota þannig sveppina í raun í staðinn
fyrir rætur. En mjög mörg tré hafa
stuttar og þykkar rætur, til að mynda
lerkirætur sem einnig eru með stuttar
hliðarrætur.
Svepprótin tengist þessum hliðar-
rótum, fer inn í rótina og vefur sig um
feitar forðafrumur sem eru í ytri hluta
rótarinnar og vefur sig utan um líkt
og tvinni á tvinnakefli. Eru þannig
í náinni snertingu við frumurnar og
þannig fara þessi efnisskipti fram.
Tréð lætur þessar sambýlisörverur
sínar fá svona frá tíu til tuttugu prósent
af þeim sykri sem það býr til með
ljóstillífun. Það fer niður í ræturnar og
þar fara fram skiptin á áburðarefnum.
Þannig að ef tré gengur vel eitt árið
þá hafa sveppirnir það afskaplega gott
hið næsta.“
Guðríður segir það misjafnt í
hvaða landshluta sveppirnir vaxa,
en nú í ár blómstri matsveppirnir á
Vestfjörðum. Kantarellurnar má finna
þar og á útkjálkum norðanlands.
Á vef Náttúrufræðistofnunar
kemur fram að hérlendis eru skráðar
nálægt 3.000 tegundir sveppa, þar
af eru fléttur og fléttuháðir sveppir í
kringum 850 talsins, en á hverju ári
bætast nokkrar tegundir við. Af þeim
eru hátt í fjörutíu þeirra taldir hæfir
til átu en þó miseftirsóknarverðir.
Kúalubbi, lerkisveppur, kóngssveppir
og furusveppir eru hvað algengastir
svo og reyðilubbi, en einnig þykja
kantarellur spennandi kostur.
Guðríður stendur fyrir sveppa-
göngum Skógræktarfélags Eyfirðinga
og er uppskeran yfirleitt elduð að
göngu lokinni. Þá er fólki kennt
að hreinsa sveppina, sem svo er
smjörsteiktir og rjómalagaðir, eldaðir
á prímus og bornir fram með brauði.
Hún segir afar misjafnt hvort sveppir
finnast og gæti hún þess að hafa með
sér nokkur stykki úr eigu sinni til þess
að gæða fólki á ef lítið finnst.
Nýtt afbrigði tröllasmjörs
„Það er skemmtilegt að segja frá
því að það var sveppasýning hér í
Kjarnaskógi á sunnudeginum um
verslunarmannahelgina þar sem
stóð til að ég héldi sýningu á þó
nokkrum sveppum og mér sjálfri,“
segir Guðríður.
„Á bílastæðinu neðarlega við
skóginn stóð stærðarinnar kurlhaugur,
heitur og hlýr – en í slíkum haugum
finnast oft hentugir sveppir til slíkra
sýninga og var þessi allvænlegur að
sjá. Það kom mér þó heldur betur
á óvart þegar ofarlega í haugnum
sat þessi heljarmikli slímsveppur,
sá stærsti sem ég hef nokkurn tíma
séð. Skærgulbrún klessa sem úr
láku seigfljótandi, gulir dropar af
einhverju slímkenndu. Þetta reyndist
vera risa tröllasmjör, þrjár gróhirslur
rauðs afbrigðis tröllasmjörs, Fuligo
septica var.rufa. Tröllasmjörið hefur
fundist hér einhvern tíma áður, fyrir
60–70 árum í gróðurhúsum reyndar,
en aldrei hef ég vitað til eða séð neitt
þessu líkt hérlendis. Mér reiknast til
að hann hafi verið 25 sentímetrar
í þvermál og ætli hann hafi ekki
verið 40 sentímetrar á hinn kantinn,
sat svona kannski 5 sentímetra hár
þakinn gulum slímdropum,“ segir
Guðríður og mælir með að fólk líti
við á bílastæðinu í Kjarnaskógi og
skoði gripinn, enda sé þetta afbrigði
ný lífvera fyrir landið.
Íslenskar nytjar:
Töfrar sveppatínslunnar
– Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur rakst á nýtt afbrigði í Kjarnaskógi
Rautt afbrigði tröllasmjörssvepps, Fuligo septica var. rufa sem ber við himin á kurlhaugi í Kjarnaskógi.
Myndir / Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Hér sést netið sem gróhirslan er gerð úr og líkami
slímsveppsins (sem er frumvera en ekki alvöru
sveppur) sem er seigfljótandi og gulur.
Kurlhaugur sem var hlýr að innan og við topp hans
voru þrjár gróhirslur rauðs afbrigðis tröllasmjörs,
Fuligo septica var. rufa.
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir.
Kóngssveppur. Mynd / Wikipedia
Lerkisveppir. Mynd / Wikipedia
Furusveppir. Mynd / Wikipedia
Kantarellur. Mynd / Wikipedia
Reyðilubbi/rauðhetta. Mynd / Wikipedia